Fréttablaðið - 02.03.2006, Síða 18

Fréttablaðið - 02.03.2006, Síða 18
 2. mars 2006 FIMMTUDAGUR18 fréttir og fróðleikur ■ HVUNNDAGSHETJA BELINDA EIR ENGILBERTSDÓTTIR Meðlimur í björgunarsveit á Akranesi. Bjargaði manni sem hafði verið spark- að í barkakýlið á í Vestmannaeyjum sumarið 2005. FREYJA HARALDSDÓTTIR Sýndi mikinn dugnað með því að ljúka stúdentsprófi á þremur og hálfu ári. Er einnig með metnaðarfull framtíð- arplön. GUÐBJÖRN MAGNÚSSON Hefur gefið blóð nálægt 150 sinnum og hefur enginn Íslendingur oftar gefið blóð en hann. JÚLÍUS JÚLÍUSSON Kraftmikill og dríf- andi maður sem fær margar hugmyndir og hikar ekki við að hrinda þeim í framkvæmd. Má þar nefna Fiskidaginn mikla á Dalvík. STEFÁN PEDERSEN Hefur mörg undanfarin ár komið á dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki og stytt heim- ilisfólki stundir, oftast með upplestri á kvöldin. ■ UNG HETJA BJARKI JÓHANNSSON Brenndist alvarlega í nóvember 2005 og lá á sjúkrahúsi mánuðum saman. Kom þá fram í fjölmiðlum og varaði börn og unglinga við að leika sér að eldi. DAGBJÖRT LILJA KRISTJÁNSDÓTTIR UNNUR ANDREA SÆVARSDÓTTIR Vinkonur sem brugðust rétt við þegar brjóstsykurmoli festist í hálsi bróður Unnar. GYLFI BRAGI GUÐLAUGSSON Blaðberi sem varð snemma morguns var við eld í íbúðarhúsi við Stigahlíð og hringdi á Neyðarlínuna. ■ UPPFRÆÐARI ÁRSINS ARNBJÖRG EIÐSDÓTTIR Einstaklega metnaðarfullur grunnskólakennari og námsefnishöfundur. GUÐMUNDUR PÁLL ÓLAFSSON Til- nefndur fyrir metnað við útgáfu sérlega fræðandi bóka um náttúru Íslands, síðast Fugla í náttúru Íslands sem kom út á síðasta ári. MARGRÉT PÁLA ÓLAFSDÓTTIR Höfundur Hjallastefnunnar sem miðar að jafnréttisuppeldi. Stefnunni var fyrst hrint í framkvæmd í leikskólum en nú starfar einnig grunnskóli í anda hennar. ÞRÁINN HAFSTEINSSON OG ÞÓRDÍS LILJA GÍSLADÓTTIR Standa fyrir framúrskarandi frjálsíþróttastarfi meðal unglinga í ÍR og hafa haldið einstaklega vel utan um hópinn. ÖSSUR GEIRSSON Hefur sinnt metnað- arfullu starfi með Skólahljómsveit Kópavogs í tólf ár. Árið 2005 varð elsti hópurinn í fyrsta sæti í hljómsveitar- keppni í Gautaborg í Svíþjóð þar sem hljómsveitir frá allri Evrópu kepptu. ■ FÉLAGASAMTÖK SEM HAFA SINNT BÖRNUM AF SÉRSTÖKUM METNAÐI OG ALÚÐ BLÁTT ÁFRAM - FORVARNAVERK- EFNI UMFÍ GEGN KYNFERÐISLEGU OFBELDI Systurnar Svava og Sigríður Björnsdætur hafa unnið einstaklega óeigingjarnt og ötult forvarnastarf gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum. REGNBOGABÖRN Hafa lagt mikið af mörkum til að opna umræðuna um einelti og stutt við marga sem hafa orðið fyrir barðinu á því. SKÁKFÉLAGIÐ HRÓKURINN Hefur unnið umfangsmikið útbreiðslustarf á skákkunnáttu meðal barna bæði hér heima og erlendis. ■ TIL ATLÖGU GEGN FORDÓMUM COMPETO - JAFNINGJAFRÆÐSLA HAFNARFJARÐAR Byggir á hugmynda- fræðinni um að ungur fræði ungan. Competo hefur vakið marga unga Hafn- firðinga til umhugsunar um fordóma. TOSHIKI TOMA Prestur innflytjenda sem hefur unnið óeigingjarnt starf við að bæta íslenskt samfélag með því að benda á fordóma og koma með nýja vinkla inn í umræðu, bæði um innflytj- endamál og trúmál. V-DAGS SAMTÖKIN V-dagurinn hefur vakið mikla athygli og beint sjónum bæði karla og kvenna að kynbundnu ofbeldi. ■ SAMFÉLAGSVERÐLAUNIN BYRGIÐ LÍKNARFÉLAG Hefur veitt mörgum alkóhólista skjól og líkn og sýnt mjög góðan árangur í meðferð- arstarfi. FORMA - SAMTÖK ÁTRÖSKUNAR- SJÚKLINGA Á ÍSLANDI Hafa sýnt óvenjulegan dugnað og eljusemi í baráttu sinni gegn átröskunarsjúk- dómum og hjálp við þá sem glíma við sjúkdóminn og aðstandendur þeirra. GEÐHJÁLP Stöðugt vaxandi starfsemi til stuðnings fólki með geðsjúkdóma og aðstandenda þeirra. KONUKOT - NÆTURATHVARF FYRIR HEIMILISLAUSAR KONUR Reykjavíkur- deild Rauða krossins hefur byggt upp góða aðstöðu fyrir konur sem ekkert annað heimili eiga. ÓMAR RAGNARSSON Fáir einstakling- ar hafa lagt meira af mörkum við að kynna hálendi Íslands fyrir landsmönn- um. Kynning hans hefur vakið áhuga margra fyrir því að upplifa sjálfir þá fegurð sem þar er að finna. SAMFÉLAGSVERÐLAUN TILNEFNINGAR TIL SAMFÉLAGSVERÐLAUNANNA 2005 Hugmyndir Yoko Ono um alþjóð- lega friðarviku í nafni Johns Lennon hafa vakið mikla athygli hérlendis. Kolbrún Halldórsdóttir þingkona hefur verið með fingur- inn á púlsinum í íslensku menning- arlífi um árabil. Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir íslenskt menningarlíf? Ég held að þetta geti haft mjög jákvæða þýðingu. Svona stór nöfn í alþjóðlega menn- ingarheiminum eru í auknum mæli að sýna Íslandi áhuga og ég lít á það sem viðurkenningu fyrir það sem við stöndum fyrir í menningarlegu tilliti. Hvað má það kosta að þínu mati að fylgja þessum hugmyndum eftir? Það má kosta talsverða fjármuni að koma svona hlutum heilum í höfn. Tækifærið sem um ræðir er svo dýrmætt. Gleymum því heldur ekki að suma hluti getum við ekki metið til fjár. Kannski er þetta einn þeirra. Hverjir eiga að koma að skipu- lagningu viðburðar eins og þessa? Reykjavík sem sveitarfélag hefur þarna ákveðna forgöngu. Ég hvet borgar- stjórn til að fara strax í samtal við þá sem starfa á sviði lista og menningar í borginni og leita eftir hugmyndum þeirra. SPURT & SVARAÐ FRIÐARVERÐLAUN Dýrmætt tækifæri KOLBRÚN HALL- DÓRSDÓTTIR Heildarloðnuafli íslenskra skipa. Heimild: 1966-1996, Hagstofa Íslands. 2006, Fiskistofa. Svona erum við NFS ER Á VISIR.IS Bein útsending á VefTV og upptökur þegar þér hentar 1966 1986 1996 to nn 1976 2006 89 4. 64 2 1. 17 9. 05 1 12 4. 93 3 19 3. 94 2 45 8. 76 8 Hvers vegna er nýting náttúruauðlinda á Íslandi umdeild? Auðlindir Íslands eru mikilvægur þáttur í sköp- un atvinnutækifæra hér á landi en fáar þjóðir í Evrópu búa yfir jafnmikilli orku á sviði jarðhita og vatnsafls, og Ísland. Auk fengsælla fiskimiða er nýting náttúruauðlinda hér á landi mikilvæg- ur þáttur í lífi Íslendinga. Ekki eru þó allir lands- menn á eitt sáttir um nýtingu þessara auðlinda. Sérstaklega togast þar á sjónarmið þeirra sem vilja virkja og selja raforku til stóriðju annars vegar, og svo þeirra sem vilja varðveita íslenska náttúru fyrir hvers kyns raski. Sérstaklega vilja þeir sem aðhyllast seinni kostinn að íslensk náttúra verði betur nýtt til ferðaþjónustu, en þrátt fyrir mikinn vöxt í þeirri atvinnugrein á síðustu árum telja margir að hægt sé að nýta einstaka íslenska náttúru enn frekar í þágu ferðaþjónustunnar. Íslensk stjórnvöld hafa á undanförnum árum beitt sér fyrir aukinni nýtingu á vatnsafli til þess að byggja upp orkufrekan iðnað. Erlend stórfyrirtæki í áliðnaði hafi því skotið hér rótum og í framtíðinni, þegar uppbyggingu álvera hér á landi er lokið, má búast við því að Ísland verði einn mesti framleiðandi áls í heimi. Er hægt að nýta jarðhita betur? Hitaveitur víða um land sjá 80% af íslensku þjóðinni fyrir heitu vatni til notkunar á heimil- um og í fyrirtækjum. Þá er hitinn einnig nýttur til ræktunar grænmetis og gróðurs í gróður- húsum víða um land. Ýmsar erlendar tegundir ávaxta og grænmetis, t.d tómatar og gúrkur, eru í sífellt meira mæli ræktaðar hér á landi. Þá er jarðvarmi einnig nýttur við fiskeldi, en fiskeldi er töluvert stór atvinnugrein hér á landi. Gríðarlega mikill jarðhiti er ónýttur í jörðu niðri og hafa margsinnis komið fram hugmynd- ir um að nýta hann betur til atvinnusköpunar. Hugsanlegt er að jarðhiti verði notaður í sífellt meira mæli sem orkugjafi fyrir orkufrekan iðnað í framtíðinni. FBL-GREINING: NÝTING ORKUAUÐLINDA Á ÍSLANDI Hægt að nýta jarðhita enn betur FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H A R PA Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir Samfélagsverðlaun Frétta- blaðsins síðdegis í dag en þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru afhent. Þau eiga að draga fram það góða í samfélaginu. Samfélagsverðlaun Fréttablaðs- ins verða afhent í fyrsta sinn í dag. Hátt í 300 tilnefningar til verðlaunanna bárust frá almenn- ingi. Veitt verða verðlaun í fimm flokkum, auk aðalverðlaunanna sjálfra Samfélagsverðlaunanna, sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir. Steinunn Stefánsdóttir, for- maður dómnefndar, segir að þátttaka almennings hafi verið framar öllum væntingum. „Þetta er í fyrsta skipti sem við veitum þessi verðlaun og því átti ég ekki von á svona mikilli þátttöku,“ segir hún. Dómnefndin átti úr vöndu að ráða að velja úr þessum mikla fjölda tilnefninga og segir Stein- unn að hún hafi í sumum tilvik- um viljað tilnefna tíu eða fleiri, til dæmis í Hvunndagshetju- flokknum. Steinunn segir að dómnefndin hafi reynt að hafa það að leiðar- ljósi sem lagt hafi verið upp með, að veita samfélagsverðlaun og draga þar með fram það sem vel er gert og gott í samfélaginu því að alls staðar sé verið að gera eitthvað gott. „Við viljum líka benda sam- borgurum okkar á allan þann fjölda fólks sem lætur gott af sér leiða á margvíslegan hátt og er með því öðrum til eftirbreytni. Tilgangurinn er þannig að breiða út ákveðinn boðskap. Við getum öll, hvert á sinn hátt, gert eitt- hvað gott fyrir samfélagið.“ Steinunn segir að tilgangurinn sé líka sá að leita uppi góðar og fallegar sögur. „Fjölmiðlum er oft legið á hálsi að segja helst frá því sem er ljótt og leiðinlegt í samfé- laginu og því viljum við nota tæki- færið og segja frá því sem er gott og fallegt,“ segir hún. Samfélagsverðlaunin eru pen- ingaverðlaun, ein milljón króna. Aðrir verðlaunahafar fá ferða- og tölvuverðlaun. - ghs STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR „Við getum öll, hvert á sinn hátt, gert eitthvað gott fyrir samfé- lagið,“ segir Steinunn Stefánsdóttir, formaður dómnefndar. Hátt í 300 tilnefningar bárust frá almenningi og var því úr vöndu að ráða. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhendir Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins síðdegis í dag og er það mikill heiður, bæði fyrir Fréttablaðið og þann sem verðlaunin hlýtur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Samfélagsverðlaunin afhent í dag OPIÐ HÚS HJÁ SVFR Dagskrá: 1. Vegna fjölda áskorana endursýnum við hina 50 ára gömlu veiðikvikmynd með Jóhannesi á Borg o.fl. 2. Veiðistaðalýsing - Norðlingafljót 3. Kynning á nýjungum í veiðivörum - Vesturröst 4. Stórbrotnar veiðisögur 5. Myndagetraun 6. Happahylurinn gjöfuli - í boði Vesturrastar Föstudaginn 3. mars ALLIR VELKOMNIR - HÚSIÐ OPNAR KL. 20.00
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.