Fréttablaðið - 02.03.2006, Síða 24

Fréttablaðið - 02.03.2006, Síða 24
 2. mars 2006 FIMMTUDAGUR24 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 6.517 -1,13% Fjöldi viðskipta: 542 Velta: 4.506 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 56,10 -1,41% ... Alfesca 4,10 -3,07%... Atorka 6,15 +0,82% ... Bakkavör 53,70 -0,56% ... Dagsbrún 6,72 +0,75% ... FL Group 26,60 -0,75% ... Flaga 3,85 +0,52% ... Íslandsbanki 20,40 -2,39% ... KB banki 937 -0,85% ... Kögun 66,50 -0,3% ... Landsbankinn 28,50 -1,38% ... Marel 68,80 +0,00% ... Mosaic Fashions 17,30 -0,58% ... Straumur-Burðarás 19,30 -1,03% ... Össur 115,00 -0,43% MESTA HÆKKUN Vinnslustöðin +5,00% Hampiðjan +3,15% Atorka +0,82% MESTA LÆKKUN Alfesca -3,07% Íslandsbanki -2,39% Actavis -1,41% Ný tt! + Staðgreiðsluverð + Lægri vextir + Lægri kostnaður + Til allt að 36 mánaða + Framlengdur ábyrgðartími + Flutningstrygging + Vildarpunktar VISALán er ný og hagstæð leið til greiðslu- dreifingar við kaup á vörum eða þjónustu. – HAGSTÆÐAR AFBORGANIR Spurðu um ENNE M M / S ÍA Nánari upplýsingar á www.visa.is/visalan eða í síma 525 2000 Dagsbrún ætlar að gefa út fríblað í Danmörku, með Fréttablaðið sem fyrirmynd, hvort sem keypt verður í norsku fjölmiðlasam- steypunni Orkla Media eða ekki. Samkvæmt heimildum blaðsins er stefnt að útgáfu seinnipart sumars eða í haust. Þórdís Sigurðardóttir, stjórnar- formaður Dagsbrúnar, segir unnið að nánari útfærslu viðskiptahug- myndarinnar þar sem útgáfa Fréttablaðsins er yfirfærð á danskan markað. „Allt er þetta samt á vinnslustigi. Svo vill til að til sölu er stærsti útgefandi hér- aðs- og fréttablaða í Danmörku, Berlinske Tidende, og það er auð- vitað áhugaverður kostur. Hins vegar hefur ekki verið tekin ákvörðun um annað að sinni en að fylgjast með því ferli.“ Þórdís segir ekki liggja fyrir tölur um áætlaðan kostnað við útgáfuna, en telur að fyrst Fréttablaðið beri sig hér þá eigi hugmyndin fullt erindi til Danmerkur. Hún segir blaðið munu mótast af dönsku samfélagi og verða mannað Dönum. „En við vonumst til að geta innleitt þann kúltúr sem við teljum hluta af þeim árangri sem Fréttablaðið hefur náð hér heima.“ Í viðtali við Dagness Nærings- liv í Noregi sagðist Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, ekki telja að fjármögnun upp á 8 milljarða norskra króna væri vandamál fyrir félagið, enda væru að baki því sterkir aðilar. - óká Staðfæra á Fréttablaðið í Danmörku síðsumars eða í haust: Kaupin á Orkla ekki lykilatriði ÞÓRDÍS SIGURÐARDÓTTIR Þórdís er stjórn- arformaður Dagsbrúnar. Hún segir enn unnið að undirbúningi og útreikningum varðandi útgáfu fríblaðs í Danmörku. Hagnaður Símans jókst um 30 pró- sent milli áranna 2004 og 2005. Hagnaður ársins 2005 var 4.032 milljónir króna en 3.090 milljónir króna árið 2004. Rekstrartekjur jukust um tæp 8 prósent á árinu, voru 20.419 milljónir króna árið 2004 en 22.041 milljónir króna nú. Mikil umbrot voru í rekstri Sím- ans í fyrra. Íslenska ríkið seldi eignarhlut sinn í Símanum til Skipta ehf. og Skipti ehf., Íslenska sjónvarpsfélagið hf. og Landssími Íslands hf. voru sameinuð undir nafni Símans hf. Samruninn miðast við 30. júní 2005. Við samrunann var hlutaféð hækkað úr 7.036 millj- ónum króna í 30.930 milljónir. Heildareignir Símans námu 83.255 milljónum króna og eigið fé 32.801 milljónum og er eiginfjár- hlutfallið því 30 prósent. Arður að fjárhæð 6.333 milljónir var greidd- ur í apríl síðastliðnum og hefur verið færður til lækkunar á eigin fé félagsins. Arðsemi eigin fjár lækkaði á milli ára, úr 21,1 pró- senti í 19,6 prósent. - hhs Fjögurra milljarða króna hagnaður HÖFUÐSTÖÐVARNAR VIÐ ÁRMÚLA Hagn- aður Símans jókst um 30 prósent milli ára. Velta Strax-samstæðunnar, sem framleiðir aukabúnað fyrir farsíma, verður um 250 milljónir bandaríkja- dala á þessu ári, sem samsvarar tæpum sextán milljörðum króna, eftir að félagið keypti þýska dreifing- araðilann more International. Velta samstæðunnar meira en tvöfaldað- ist við yfirtökuna. Kjartan Örn Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri sölumála hjá Strax, segir að félagið sé þar með orðið einn af stærstu dreifingaraðilum á aukavöruhlutum í farsíma í Evrópu. Strax hefur náð sterkri mark- aðsstöðu í Bretlandi og Danmörku. Stærstu viðskiptavinirnir eru annars vegar farsímafyrirtæki, meðal annars TDC í Danmörku og breska farsíma- félagið O2, og hins vegar verslunar- keðjur, internetkeðjur og heildsalar úti um gjörvallan heim. Fyrir samrunann rak Strax skrif- stofur í London, Hong Kong og Miami, þar sem höfuðstöðvarnar eru, en more International rekur átta skrifstofur. Á árinu ætlar fyrirtækið að opna söluskrifstofu í Dubai og unnið er að opnun skrifstofu á Íslandi. Stærsti hluthafinn í Strax er Landsbankinn. - eþa Strax kaupir more Í DUBAI Strax stefnir að því að opna skrifstofu í Dubai á þessu ári og síðar á Íslandi. Á myndinni má sjá nýtísku- byggingu gnæfa yfir moskunni Zabil í janúarbyrjun. NORDICPHOTOS/AFP Straumur-Burðarás hefur eignast 5,5 prósenta hlut í norska net- leikjaframleiðandanum Funcom. Verðmæti hlutarins er í kringum 750 milljónir króna. Funcom er hástökkvarinn á norska hlutabréfamarkaðnum í ár en gengi félagsins hefur hækk- að um 110 prósent frá áramótum. Þekktustu netleikirnir kallast Anarchy online og The Longest Journey. Funcom gaf út nýtt hlutafé á dögunum fyrir tæpa 1,3 milljarða króna sem gekk að mestu leyti til stærri fjárfesta. Félagið ætlar að nota fjármunina til að styrkja þróunarstarf sitt en jafnframt að leita að tækifærum til að taka yfir önnur fyrirtæki. - eþa Kaupa hástökkvara Hagar hasla sér völl í sér- vöruverslun á nýjan leik með kaupum á fimm verslunum í Kringlunni. Pálmi Haraldsson í Fons hafði frumkvæði að því að kaupa Shell. Hagar hafa selt rekstur Skeljungs til Pálma Haraldssonar og Jóhann- esar Kristinssonar í Fons. Félagið hefur um leið keypt fimm tísku- vöruverslanir í Kringlunni af Sig- urði Bollasyni og Nönnu Björk Ásmundsdóttur. Umræddar verslanir eru sér- leyfisverslanir sem eru reknar undir merkjum bresku verslana- keðjanna Karen Millen, Ware- house, All Saints, Shoe Studio Group og Whistles, en Baugur Group, stærsti hluthafi Haga, á hlutdeild í þeim öllum. Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir að salan á Skeljungi hafi gengið hratt fyrir sig og þar á bæ séu menn kátir með niðurstöðuna. „Við höfðum hug á því að selja hluta af Skeljungi frá okkur en þessi frágangur hafði skamman aðdraganda.“ Hagar verða eftir söluna fyrst og fremst smásölufyrirtæki og áherslur fyrirtækisins verða skýr- ari að sögn Finns. Hann er ekki til- búinn að gefa upp söluverðið en segir þó að verslunarrekstur Skeljungs hafi styrkst eftir að Hagar tóku hann yfir og aukið verðmæti félagsins. Aðspurður um þau kaup sem Hagar réðust í í Kringlunni segir Finnur að félagið hafi haft hug að stækka við sig á sérvörumarkaði og kaupin séu liður í þeirri stefnu. Þessar verslanir opnuðu allar í Kringlunni á síðasta ári nema Karen Millen sem hefur verið starfrækt í nokkur ár og var áður undir merkjum NTC-verslunar- keðjunnar. „Ég seldi Skeljung á sínum tíma til að fjármagna mín kaup í Ice- land sem reyndist vera mjög happadrjúg fjárfesting og átti svo frumkvæði að því við Haga að kaupa Skeljung til baka. Við fórum í samningaviðræður og niðurstað- an er þessi,“ segir Pálmi Haralds- son í Fons. Gunnar Karl Gunnars- son verður áfram forstjóri Skeljungs að sögn Pálma. Olíufélagið Esso var á dögunum selt til fjárfesta en talið er að kaup- verðið hafi legið á bilinu 17-18 milljarðar króna. Skeljungur var tekinn af markaði af Steinhólum sumarið 2003 og nam markaðs- virði hans þá um tólf milljörðum króna. eggert@frettabladid.is HAGAR SELJA SKELJUNG EN KAUPA VERSLANIR Í KRINGLUNNI Fimm tískuverslunarkeðjur hafa bæst í safn Haga en Skeljungur fer úr því til Pálma Haraldssonar. Hagar selja Skeljung og kaupa í Kringlunni MARKAÐSPUNKTAR... Avion Group hf. hefur lokið sölu á skuldabréfum fyrir 160 milljónir Bandaríkjadala, tæplega 10,4 milljarða íslenskra króna. Bréfin eru til fimm ára og greiðist höfuðstóllinn að þeim tíma loknum. Hagnaður Bakkavarar á fjórða ársfjórð- ungi nam 11,3 milljónum punda, 1.229 milljónum króna, og jókst um 157 prósent milli ára. Aukninguna má fyrst og fremst rekja til yfirtöku Bakkavarar á Geest. Verðbólgan á Íslandi er aðeins 1,3 prósent samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs miðað við 2,2 prósent að meðaltali í ríkjum EES. Íbúðaverð er ekki meðtalið í samræmdu vísitölunni. Sissener á réttri leið Verðbréfafyrirtækið Kaupthing í Noregi og forstjóri þess, Jan Petter Sissener, hafa náð yfirlýstu markmiði sínu um að komast inn á lista yfir tíu umsvifamestu verðbréfa- fyrirtækin í Kauphöllinni í Osló. Samkvæmt tölum kauphallarinnar sem birtar voru í gær er Kaupthing í níunda sæti, en var í janúar í 23. sæti. Sissener lítur þó ekki á árangurinn nema sem áfanga á réttri leið, því innan þriggja ára segist hann vilja vera með Kaupthing á topp fimm ...og innan fimm ára meðal þriggja efstu. Kaup- thing er nú skráð fyrir 3,76 prósentum viðskipta í Kauphöllinni en DnB Nor Markets, sem er efst á listanum, fyrir 9,2 prósentum. Gróði og tap í FlyMe Rekstur sænska lággjaldaflugfélagsins FlyMe skilaði 1,4 milljarða tapi á síðasta ári og jókst tapið um 27 prósent á milli ára. Stjórnendur FlyMe eru þó bjartsýnir á að félagið fari að skila hagnaði á seinni hluta þessa árs. Fjölmargir Íslendingar eiga bréf í FlyMe en stærsti hluthafinn er Fons. Á dögunum lauk hlutafjárútboði þar sem selt var hlutafé fyrir 2,3 milljarða króna og var tíföld umframeftirspurn. Hluthöfum var boðið að kaupa 10 hluti fyrir hvern einn sem þeir áttu fyrir á genginu 3 sænskir aurar. Viðskipti hafa verið með þessi nýju bréf á genginu 6-7 aurar þannig að hækk- unin eftir útboð er að minnsta kosti tvöföld. Peningaskápurinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.