Fréttablaðið - 02.03.2006, Side 82

Fréttablaðið - 02.03.2006, Side 82
 2. mars 2006 FIMMTUDAGUR42 maturogvin@frettabladid.is Hættum að reykja í samfélagi á vefnum þar sem allir fá styrk hver frá öðrum og enginn þarf að standa einn í baráttunni. Með sameiginlegu átaki drepum við í fyrir fullt og allt. Skráðu þig í átakið á vidbuin.is Þar er auk þess hægt að finna allar upplýsingar um málið. viðbúin tilbúin stopp www.vidbuin.is ÍS LE N S K A A U G LÝ S IN G A S TO FA N /S ÍA LY F 3 1 5 2 4 0 3 /2 0 0 6 > Ekta ólífuolía ...frá Ĺ occitane gerir matreiðsluna sérlega spennandi og svo bragðast hún ógurlega vel. Höfuðþrúga suðurafrískrar vín- gerðar er pinotage. Vín úr henni eru jafnan djúprauð, kröftug og heit. Sumum finnst þau minna á brennt gúmmí, á jákvæðan hátt þó! Pinotage er blendingsþrúga sem var búin til fyrir tæpri öld, bræðingur pinot noir og cinsaut. Prófessor Abraham Izak Per- old gerði tilraunir til að bæta gæði pinot noir þrúgunnar á víngarði í héraðinu við Góðvonarhöfða árið 1925. Ekki er ljóst hverju prófess- orinn vildi ná fram því hann skildi engar skýrslur eftir sig. Flestir telja að hann hafi verið að reyna að bæta pinot noir þrúguna með tilviljunarkenndum hætti því cins- aut er mjög ólík þrúga en hefur þá kosti að vera auðræktanleg og sjúkdómalaus. Niðurstaðan var óvænt, móðurþrúgurnar eru báðar heldur litlausar en barnið pinotage djúprautt. Faðir þrúgunnar, Abraham Izak Perold, fæddist í Höfðaborg árið 1880. Hann varð doktor í efna- fræði frá þýskum háskóla og flug- mæltur á tungur helstu vínþjóða Evrópu. Hann varð prófessor í efnafræði við Háskólann í Höfða- borg og var sendur í mikinn leið- angur á vegum stjórnvalda í Suður- Afríku til að finna þær þrúgur í gamla vínheiminum sem best gætu fallið að afrískum skilyrðum. Þegar hann kom úr leiðangrinum var hann gerður að fyrsta prófess- ornum í víngerð hjá Stellenbosch. Síðar varð hann háskólarektor en lést 1941 eftir langan og farsælan feril í víngerð. Afríska stjörnuþrúgan pinotage Suður-afrísk vín eru jafnan kraftmikil og bragð- rík en meginástæð- an fyrir vinsældun- um er eflaust hagstætt verð. Þótt suður-afrísk vín séu tiltölulega ný hér á landi eru fram- leiðendur þar- lendis engir nýgræðingar í víngerð. Neder- burg er eitt stærsta vínhús landsins og á sér yfir 200 ára sögu. Neder- burg hefur hlot- ið fleiri alþjóð- leg verðlaun en nokkur önnur víngerð í land- inu og verið í farar- broddi með nýjung- ar. Nederburg Shiraz Pinotage hentar vel með kjöti, sérstak- lega grilluðu. Nederburg Shir- az Pinotage hefur fengið góðar við- tökur á Norður- löndunum og fengið góða dóma í blöðum í Danmörku. Má nefna að Vina- visen gaf því fimm stjörnur eða hæstu ein- kunn. Kynningar- verð á suður- afrískum dögum 890 kr. NEDERBURG: Fimm stjörnu vín á 890 kr.! Haukur Már Helgason, rithöfund- ur, heimspekingur og kvikmynda- gerðarmaður, eldar af og til svo- kallað Úrsúlupasta. „Það er nefnt eftir konu sem kokkaði á leikskóla í Reykjavík þar sem vinir mínir unnu. Þetta er eðalréttur fyrir piparsveina,“ segir Haukur Már, sem var heima með flensu þegar Fréttablaðið ræddi við hann. Haukur viðurkennir að vera töluverður pastakarl en gerir þó ekkert alltof mikið af því að elda ofan í sig einan. Frekar vill hann fá vini sína í heimsókn og elda líka fyrir þá. „Pasta er svona leti- kokkaskapur. Einhver mesta unun í eldhúsi er þegar maður er alveg blankur og neyðist til að baka brauð í staðinn fyrir að kaupa það. Að baka brauð og elda súpu er að ég held munúðarfyllsta leiðin til að elda. Ég kann meira að segja að baka kanelsnúða líka,“ segir Haukur. „Maður þarf stundum að sleppa fram af sér beislinu og það er eins með bakstur og eldamennsku. Ef maður vill gera brauð þarf maður slatta af hveiti, smá ger, helling af olíu og vatni og þá er ekki hægt að klúðra því. Þótt það sé yndislegt að standa í eldhúsi og baka er það munaður sem maður leyfir sér ekki nema í lok mánaðarins.“ ÚRSÚLUPASTA: Pasta Ólífuolía Hvítlaukur Ostur Að sögn Hauks Más liggur mat- seldin afar beint við þegar menn vita af þessum hráefnum. Að við- bættum ólífum og lauk er matur- inn tilbúinn á borðið. Úrsúlupasta í uppáhaldi HAUKUR MÁR HELGASON Haukur reynir að sleppa fram af sér beislinu þegar kemur að eldamennsku. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Hvaða matar gætir þú síst verið án? „Nú þarf ég að hugsa mig vel um. Og þó, það er ostur. Ég borða ost á hverjum einasta degi og finnst hver tegund annarri betri. Fyrsta minningin um mat? Það er súkkulaðipáskakanína sem ég fékk í Ameríku þegar ég var lítil. Besta máltíð sem þú hefur fengið? Þær eru rosalega margar sem hafa verið stórkostlegar. En ætli lunda- veislan sem maðurinn minn efndi einu sinni til standi ekki upp úr. Ég borða lunda ekki oft, en hann var mjög góður. Það er kannski kom- inn tími til að endurtaka leikinn. Er einhver matur sem þér finnst vondur? Já, mér finnst súrsaðir lundabagg- ar hræðilegir og súrsaður matur í heild sinni. Það voru sko engir lundabaggar í lundaveislunni. Leyndarmál úr eldhús- skápunum? Ég er með alls konar töfrahráefni í til dæmis bolognese-sósu, en þau gef ég ekki upp. Hvað borðar þú til að láta þér líða betur? Þá fæ ég mér góðan kaffi- bolla, yfirleitt cafe-latte. Hvað áttu alltaf í ísskápnum? Ég á alltaf léttmjólk í kaffið, passa líka að eiga alltaf fullan kryddskáp. Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvaða rétt tækir þú með þér? Það væri pítsan hans pabba. Hún er ofboðs- lega góð. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur borð- að? Það hljóta að vera sniglar sem ég fékk á kín- verskum veitingastað í Boston á sínum tíma og hef enn ekki gert upp við mig hvort ég kunni að meta þá eða ekki. MATGÆÐINGURINN TINNA ÞORSTEINSDÓTTIR PÍANÓLEIKARI Súkkulaðikanínur og pítsan hans pabba

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.