Fréttablaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 10
10 1. september 2006 FÖSTUDAGUR PLATSPRENGJA Taílenskur lögreglu- maður heldur á poka sem fannst nærri heimili Thaksin Shinawatra forsætis- ráðherra í Bangkok í gær og reyndist innihalda platsprengju með harðorðri orðsendingu til Thaksins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BANDARÍKIN, AP Ungur bandarísk- ur lögfræðingur klifraði inn um glugga nágranna síns í Connecti- cut á mánudag og banaði honum með hníf. Þetta gerðist eftir að eiginkona lögfræðingsins tilkynnti honum að nágranninn hefði kynferðis- lega misnotað tveggja ára gamla dóttur þeirra. Barnið mun hafa sagt móður sinni frá meintri misnotkun nágrannans. Lögfræðingurinn var handtek- inn og ákærður fyrir morð og innbrot, en honum var sleppt lausum gegn tryggingu á miðvikudag. Lögregla hefur haft afskipti af mönnunum fyrr, þegar lögfræð- ingurinn kvartaði yfir ósæmilegri hegðun nágrannans. - smk Lögmaður drap nágranna: Hefndi fyrir misnotkun LÖGREGLUMÁL Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjór- ans er þessa dagana að fara nákvæmlega ofan í það hver hlutur grunaðra sé í fjársvikamálinu hjá Trygg- ingastofnun og taka afstöðu til þess í hvaða tilvikum sönnun um sekt liggur fyrir þannig að hægt sé að ákæra. Sakborningar eru á þriðja tug en starfsmaður Trygg- ingastofnunar telst vera höfuðpaurinn í málinu. Jón H. B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar, segir nokkuð ljóst hverjir hafi haft stærstu hlutverkin en þáttur ýmissa sé kannski óljósari. Ekki sé búið að ákveða hverjir og hversu margir verði ákærðir. „Það er verið að fara nákvæmlega ofan í það með hvaða hætti þetta var framkvæmt og hver var hlutur hvers og eins til að geta tekið afstöðu til þess í hvaða til- vikum sönnun er talin liggja fyrir. Rannsóknin beinist að því að upplýsa hvort grundvöllur sé fyrir ákæru eða ekki,“ segir hann. Fjárhæðin sem svikin var út nemur sjötíu og fimm milljónum króna og áttu millifærslurnar sér stað í átta hundruð tilvikum. Verið er að safna öllum bankagögnum og gera aðgengileg þannig að hægt sé að hefja frekari með- ferð. - ghs Rannsókn á 70 milljóna þjófnaði fyrrum starfsmanns Tryggingastofnunar: Hátt í þrjátíu manns viðriðnir málið NOREGUR Norðmenn sem fæddust á áttunda áratugnum hafa lélegt fjármálavit, kemur fram á fréttavef Aftenposten. Fjármálafyrirtækið Credit- Inform lét rannsaka skuldir fólks eftir fæðingarárum, sem og hversu vel fólk stendur í skilum. Sjö prósent Norðmanna sem fædd- ust árið 1970 borga ekki fyrir sig, um helmingi fleiri en þeir sem fæddust árið 1950. „Þeir sem eru komnir yfir sextugt ólust upp við þrengri fjárhag en yngri kynslóð- in. Þeir hafa meiri ábyrgðartil- finningu en þeir ungu,“ segir Hanne Broen, markaðsstjóri CreditInform. - smk Skuldugir Norðmenn: Lélegt fjármála- vit hjá ungum VIRKJANIR Guðmundur Pétursson, verkefnisstjóri hjá Landsvirkjun, fór vandlega yfir alla stærstu verkþætti framkvæmdanna við Kárahnjúka á hádegisfundi Verk- fræðingafélagsins í gær, og sagði virkjanirnar á svæðinu sterkar og öruggar. Þá fór hann yfir verká- ætlanir og hvernig verkferlum vegna framkvæmdanna miðar. Verkfræðingar spurðu Guð- mund, og sérfræðinga Landsvirkj- unar sem voru í salnum, út í athugasemdir Gríms Björnssonar jarðeðlisfræðings auk annarra þátta sem tengjast framkvæmd- unum við Kárahnjúka. Sagði Pálmi Ragnar Pálmason, einn sérfræð- inga Landsvirkjunar, athugasemd- ir Gríms vera lítilvægar. „Ég get svo sem sagt frá því, í þessum hópi, að athugasemdirnar eru satt að segja lítilvægar. Að mati okkar gætir misskilnings hjá Grími. Hann ruglar saman hættu á því að stíflunum sé hætt, vegna hættu á hreyfingum í iðrum jarðar, en þær skipta engu máli varðandi öryggi stíflnanna,“ sagði Pálmi Ragnar á fundinum í gær. Iðnaðarnefnd Alþingis fundaði um athugasemdir Gríms Björns- sonar á löngum fundi í fyrra dag. Meirihluti iðnaðarnefndar sendi frá sér fréttatilkynningu í gær þar sem segir meðal annars að „meiri- hluti iðnaðarnefndar fái ekki séð að það hefði breytt nokkru um ákvörðun fyrirhugaðra fram- kvæmda þótt þingmönnum hefðu verið birtar athugasemdir og spurningar Gríms Björnssonar.“ Minnihlutinn í iðnaðarnefnd sendi einnig frá sér fréttatilkynn- ingu þar sem segir meðal annars að „engin viðunandi skýring hafi verið gefin á þeirri ákvörðun iðnaðarráðuneytisins að greina Alþingi ekki frá athugasemdum Gríms Björnssonar.“ Að auki gerir minnihlutinn í nefndinni, sem skipaður er Katr- ínu Júlíusdóttur, Helga Hjörvar, Jóhanni Ársælssyni og Sigurjóni Þórðarsyni, þá kröfu að iðnaðar- ráðuneytið „taki saman greina- gerð um meðhöndlun málsins þar sem fram koma upplýsingar um allar bréfa- og tölvuskeytasend- ingar vegna þessa máls og önnur þau samskipti er að málinu snúa.“ Steingrímur J. Sigfússon var áheyrnarfulltrúi í iðnaðarnefnd og samþykkti bókun minnihluta nefndarinnar. magnush@frettabladid.is Segja öryggið í fyrirrúmi Verkefnisstjóri Landsvirkjunar fór í gær yfir starfs- ferla vegna Kárahnjúkavirkjunar. Athugsemdir Gríms Björnssonar byggja á misskilningi, sagði Pálmi Pálmason. Athugasemdirnar enn umdeilar. FRÁ FUNDI VERKFRÆÐINGAFÉLAGSINS Fjöldi verkfræðinga hlýddi á Guðmund Pétursson, verkefnisstjóra hjá Landsvirkjun, fara yfir ýmis verkfræðileg atriði varðandi Kárahnjúkavirkjun. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR ��������������������������������������������������������������� ����������� ��������������������� ��������������������������� ����������������������������� ������������������ ������ �������� ���� ������������� ������ ��� ����� ������� � ��������������� ���������������������� ������� ����������� �������������� ���������������������� ������������������������� ����������������������� �������������������������� ��������������������� ������������������������ IÐNAÐUR Síðustu kerin í kerskála þrjú í álveri Alcan í Straumsvík voru gangsett í gær, en öll kerin í skálanum voru tekin úr rekstri í sumar eftir alvarlega rafmagns- bilun. Verkinu er því lokið rúmlega tveimur mánuðum á undan áætlun en gangsetning keranna hófst um miðjan júlí síðastliðinn. Endanlegt mat á tjóni vegna rekstrarstöðvunarinnar liggur ekki fyrir en ljóst er þó að fram- leiðslutapið verður mun minna en óttast var í fyrstu og er nú áætlað um fjórtán þúsund tonn, sem er aðeins níu prósent af framleiðslu- getu álversins. - shá Álver Alcan í Straumsvík: Gangsetningu kera í Straumsvík lokið ÚR KERSKÁLA Ljóst er að tjón er mun minna en óttast var í fyrstu eftir raf- magnsbilun í álverinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA JÓN H. B. SNORRASON Segir ljóst hverjir hafi haft stærstu hluttverkin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.