Fréttablaðið - 01.09.2006, Síða 16

Fréttablaðið - 01.09.2006, Síða 16
 1. september 2006 FÖSTUDAGUR16 nær og fjær „ORÐRÉTT“ „Það er allt gott að frétta og haustið leggst vel í mig,“ segir Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona. „Þessa dagana tek ég þátt í sýningunni Footloose sem sýnd er í Borgarleikhúsinu og það er ofsalega gaman. Unni Ösp, leikstjóra sýningarinnar, hefur tekist mjög vel til í að raða í hlutverkin og ég reikna með að sýningar verði til ára- móta.“ Guðlaug leikur mömmuna í verkinu en hefur engar áhyggjur af því að hlutverkavalið skrifist á aldur hennar held- ur frekar á hversu góð leikkona hún sé. „Annars er ég bara búin að njóta þess að vera í fríi í sumar. Þegar maður vinnur mikið allan veturinn finnst mér gott að gera engin plön og getað skipulagt hvern dag eftir mínum hentugleika. Ég hef bara verið að dútla heima, halda matarboð og annað smálegt en fór síðan með syni mínum á Snæfellsnesið þar sem við mæðginin gistum tvær nætur á Hótel Búðum.“ Verkefni næstu missera eru að mestu óráðin hjá Guð- laugu en hún er ekki fastráðin hjá neinu leikhúsi. „Ég hef þó engar áhyggjur af verkefnaleysi og ef í harðbakkann slær get ég alltaf fengið vinnu við eitthvað annað en leiklistina. Ég reikna þó með því að ég verði á fullu í mínu fagi.“ Margir sjónvarpsáhorfendur skemmtu sér kon- unglega yfir þáttunum um Stelpurnar síðasta vetur en Guðlaug fór einmitt með hlutverk í þeim. Hún segir ekkert ákveðið um framtíð þáttanna en úti- lokar ekki að þær vinkonur birtist aftur á skján- um. „Þó það sé gaman að takast á við ný og spenn- andi verkefni uni ég mér líka vel heima og var ein- mitt að ljúka við að prjóna úlnliðshlífar. Þá þarf ég að fara að klára að hekla bekkinn á gardínurnar hjá mér, segir Guðlaug og viðurkennir að þessi verkefni séu kannski tákn þess að hún sé komin af ungl- ingsaldri. Guðlaug skorar að lokum á alla að vera menningarlega í vetur og mæta í leikhús. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? GUÐLAUG ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR LEIKKONA Slappar af fyrir komandi annirÓsköp hefðbundið „ Þetta er ósköp hefðbundið enda afgreitt eins og hjá hverjum öðrum Íslendingi.“ Árni Johnsen hefur hlotið uppreist æru að ákvörðun dómsmálaráðherra. Frétta- blaðið, 31. ágúst. Sjálfbær nýting „Þetta [hvalveiðar] er bara hluti af okkar sjálfbæru og ábyrgu nýtingu á auðlindum hafsins og sú nútíma- lega náttúruverndar- stefna sem menn vilja tileinka sér gengur út á sjálfbæra nýtingu en ekki friðun.“ Einar K. Guðfinnsson sjávar- útvegsráðherra segist ekki verða var við andmæli vegna hvalveiða. Fréttablaðið, 31. ágúst. Brúin á milli leikskóla og grunnskóla er viðfangsefni Sue Dockett, prófessors í menntunarfræðum við Uni- versity of Western Sydney í Ástralíu, en hún er hingað komin vegna ráðstefnu um menntamál. Ráðstefnan er á vegum EECERA sem eru samtök um menntarann- sóknir á sviði yngri barna og er haldin í Kennaraháskóla Íslands frá 30. ágúst til 2. september. „Þetta er stærsta ráðstefnan sem samtökin hafa haldið,“ segir Jóhanna Einarsdóttir, prófessor í menntunarfræðum yngri barna í Kennaraháskólanum og formaður undirbúningsnefndar ráðstefn- unnar, en um 580 manns frá 43 löndum hafa skráð sig. Vandasöm skil Sue Dockett er ein sérfræðing- anna sem munu flytja erindi á ráð- stefnunni. „Svipuð mál eru í deig- lunni á Íslandi og í Ástralíu varðandi hvernig við getum gert börnunum auðveldara að fara úr óformlegum leikskólum í skóla sem eru mun formlegri og leggja meiri áherslu á að fylgja nám- skránni,“ segir Sue. „Það er ekk- ert eitt módel sem er best, því það sem virkar á einum stað virkar ekki annars staðar. En við metum þessi skil milli skólastiganna á því hversu vel börnunum finnst þau falla inn í skólann og hversu vel þau eru tengd við skólann og kenn- arana. Margar umfangsmiklar rannsóknir í Bandaríkjunum og Bretlandi benda til þess að börn sem finna sterk tengsl við skólann og finnst þau tilheyra honum þegar þau byrja gengur betur í námi og eru lengur í skól- anum en börnum sem finnst skólinn ekki mjög góður staður til að vera á,“ segir Dockett. Jóhanna tekur undir þetta, en hún hefur starf- að með Dockett að rann- sóknum á færslunni milli skólastiga. „Það er mjög mikilvægt að þegar börn- in fara í skólann viti þau hverju þau eiga von á. Bæði í Ástralíu og á Íslandi reyna kennarar að kynna grunnskólann fyrir leikskólabörn- unum. Hér á landi fara leikskóla- kennararnir með börnin í heimsókn í grunnskólann árið áður en þau byrja en í Ástralíu taka foreldrar meiri þátt í þessu,“ segir Jóhanna. Samstarf leikskóla og grunnskóla Tengsl leikskóla og grunnskóla hafa verið í deiglunni undanfarið vegna ákvörðunar borgaryfir- valda um að kljúfa menntaráð í leikskóla- og grunnskólaráð. Sue bendir á að eigi skólastigin tvö að vera aðskilin í stjórnkerfinu verði samt sem áður að tryggja að ein- hver tengsl og samvinna séu á milli þeirra. „Í New South Wales-fylki, þar sem ég hef unnið í Ástr- alíu, sjá mismunandi deildir innan fylkis- stjórnarinnar um leik- skólamál og grunnskóla- mál. Það eru ekki mikil tengsl á milli þeirra, og það eru lítil sem engin tengsl milli kennaranna úr stéttunum tveimur. Leikskólakennararnir vita ekki mikið um það sem gerist í grunnskólanum og öfugt. Það þýðir að stundum er skortur á gagnkvæmri virðingu milli skólastiganna og það hefur slæm áhrif á þetta bil milli skól- anna,“ segir Sue. Leikurinn mikilvægur Dockett segir að ákveðin spenna ríki oft í leikskólunum þegar leik- skólakennarar leggja áherslu á leik á meðan foreldrarnir vilja að börnin fái forskot áður en þau byrji í skólanum og læri eitthvað að lesa og skrifa. „Ef börnin vilja læra er það gott, en það er ekki sniðugt að neyða krakka til að lesa og skrifa í leikskólum,“ segir Sue. „Mikilvægast er að börnum líði vel og séu full sjálfstrausts þegar þau byrja í skólanum. Ef þeim líður vel þegar þau byrja í skólan- um munu þau læra mikið, en ef þeim finnst þau vera beitt of mikl- um þrýstingi verður námið ekki jafn árangursríkt,“ segir Sue. Jóhanna segir að þrýstingurinn sé einnig mikill á Íslandi og að for- eldrar átti sig oft ekki á mikilvægi leiks. „Börnin læra margt í gegn- um leik. Þau læra á samskipti sín á milli, æfa tungumálið og aðra hluti sem eru svo mikilvægir á þessum aldri. Við höldum því fram að leik- ur sé mikilvægari en að kenna börnum að lesa og skrifa í leik- skólanum,“ segir Jóhanna. „Í sumum löndum er þessi þrýstingur að færast neðar í skóla- stigunum, til dæmis í Bretlandi. Það er eitthvað sem við höfum áhyggjur af,“ segir hún. Aginn Alltaf er verið að kvarta undan agaleysi í skólastarfinu en Sue er með gott svar við því. „Það besta til að koma í veg fyrir agavandamál er að láta börnin hafa eitthvað að gera sem hefur þýðingu. Stundum er það svo einfalt, sem og að kenn- arinn stoppi og skýri út fyrir börn- unum hvað þau séu að gera og hvers vegna það sé mikilvægt. Kennararnir gætu útskýrt „við þurfum að læra þetta fyrir þetta,“ eða „þetta er gott að læra af því að...“. Börn eru líklegri til að hlusta ef þau fá útskýringu,“ segir Sue. Hún segir að virðing sé lykil- atriði í skólastarfi. „Við skoðum hvernig börnin virða skólann og hvernig skólarnir virða börnin. Ef það eru ekki góð tengsl milli skól- ans og kennaranna og barnsins þá sjáum við veggjakrot um alla veggi og brotna glugga, því engin virðing ríkir,“ segir Sue að lokum. rosag@frettabladid.is Virðing er lykilatriði í skólastarfi SUE DOCKETT FYRSTI SKÓLADAGUR Dockett segir að ákveðin spenna ríki oft í leikskólunum þegar leik- skólakennarar leggi áherslu á leik á meðan foreldrarnir vilja að börnin fái forskot áður en þau byrji í skólanum og læri eitthvað að lesa og skrifa. Búnaðarsamband Suðurlands og Félag kúabænda á Suðurlandi stóðu fyrir kúasýningunni KÝR um síðustu helgi í Ölfushöllinni að Ingólfshvoli. Það var í fjórða sinn sem sú sýning er haldin. Þar bar að líta 46 gripir, þar á meðal nautin tvö Danna frá Nýja- bæ undir Eyjafjöllum og Stássa frá Nautastöðinni á Syðri Bæg- isá. Haldið var sérstakt kúa- fitness svo menn gætu séð hvort gripirnir væru ekki í góðu formi en því næst var kosinn besti grip- ur sýningarinnar en það var kálf- urinn Ör sem fékk þau verðlaun. Eygló Arna Guðnadóttir sem sýndi verðlaunagripinn fékk verðlaun í flokki sýnenda 11 ára og yngri. Aðstandendur sýningarinnar voru hæstánægðir með hana en um 600 gestir mættu en einnig voru þeir ánægðir með þátttöku barna og unglinga sem var mjög góð og einnig var greinilegt að sýnendur höfðu lagt mikið á sig og gripi sína við undurbúning. - jse Vel á sig komnar í kúa-fitness EYGLÓ MEÐ VERÐLAUNAKÁLFINN ÖR Besti gripurinn á sýningunni var valinn kálfurinn Ör sem hér er milli sýnandans Eyglóar Örnu Guðnadóttur og Þórólfs Sveinssonar, formanns Landssambands kúabænda. MYND/GUÐMUNDUR JÓHANNESSON DANNI FRÁ NÝJABÆ Nautið Danni fékk mikla athygli á sýningunni enda var hann annað af tveimur nautum sem þar bar að líta. Eins og sjá má er hann mikill vexti. MYND/GUÐMUNDUR JÓHANNESSON Heildarlausn fyrir snyrtinguna Lotus Professional R V 62 15 A Blár sápuskammtari Foam Blátt WC Compact statíf fyrir tvær rúllur Á tilboði í september Arngrímur Þorgrímsson Sölustjóri hjá RV 3.982 kr. 1.865 kr. 1.865 kr. Blár enMotion snertifrír skammtari Í dag rann út frestur Írana til að taka til- boði nokkurra vesturveldanna og láta af kjarnorkuáætlun sinni. Þeir sitja fast við sinn keip og segja önnur ríki ekki eiga að ráða því hvernig Íranar nýti auðlindir sínar en þeir segjast ekki munu nýta úran til að framleiða kjarnorkuvopn. En geta vesturveldin, sem sjálf hafa yfir kjarnorkuvopnum að búa, sagt Írönum fyrir verkum hvað þetta varðar? „Ég hef ekki kynnt mér þetta svo vel en ég skyldi ætla að þessi ríki sem eru að þrýsta á Írana hafi eitthvað fyrir sér í þessu máli,“ segir Guðný Hrund Karlsdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri á Raufarhöfn. „Einnig vona ég að menn hafi lært af þeim fjölmörgu mistökum sem átt hafa sér stað í Íraksstríðinu svo ekki komi til átaka á þessu viðkvæma svæði. En vissulega orkar það tvímælis að ríki sem búa yfir kjarnorkuvopnum setji öðrum stólinn fyrir dyrnar í þeim efnum en enn og aftur vona ég að þeir viti hvað þeir eru að gera.“ SJÓNARHÓLL KJARNORKUÁÆTLUN ÍRANA GUÐNÝ HRUND KARLSDÓTTIR FYRRVER- Orkar tvímælis
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.