Fréttablaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 72
72 28. janúar 2005 FÖSTUDAGUR 1. septembe 640 tonlist@frettabladid.is FYRST OG SÍÐAST SIGURÐUR EGGERTSSON Sendu SMS skeytið JA S2F á númerið 1900 og við sendum þér spurningu! Þú svarar með því að svara A, B eða C á númerið 1900. Þú gætir unnið! Aðalvinningur TOSHIBA tölva og Sims 2 Stuff Auka vinningar eru Ps2 tölvur • Sims leikir • DVD myndir • Fullt af öðrum tölvuleikjum og margt fleira V in n in g ar v er ð a af h en d ir h já B T Sm ár al in d. K ó p av o g i. M eð þ ví a ð t ak a þ át t er tu k o m in n í SM S kl ú b b. 9 9 kr /s ke yt ið . Þ ú fæ rð 5 m ín t il að s va ra s p u rn in g u. SMSLEIKUR Söngkonan Beyoncé Know- les gefur út sína aðra sólóplötu, B Day, á mánu- dag, sem jafnframt er 25 ára afmælisdagur hennar. Freyr Bjarnason hitaði upp fyrir plötuna sem hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. B Day er fyrsta plata Beyoncé síðan frumburðurinn Dangerously in Love kom út árið 2003 og skilaði hvorki meira né minna en fimm Grammy-verðlaunum í hús. Smá- skífulagið Crazy in Love gerði allt vitlaust og er án nokkurs vafa vin- sælasta lag Beyonce til þessa. Destiny´s Child kvödd Síðan sú plata kom út hefur Beyoncé haft í nógu að snúast. Hún lauk tónleikaferð vegna plöt- unnar árið 2004 og á síðasta ári kom út platan Destiny Fulfilled þar sem hún sagði endanlega skilið við stöllur sínar í stúlknabandinu vinsæla Destiny´s Child. Var þetta fjórða plata sveitarinnar, sem á að baki slagara á borð við Say My Name og Survivor. Einnig kom út safnplatan #1´s og til að fylgja þessu öllu saman eftir fóru þær stúlkur í tónleikaferð þar sem aðdáendurnir voru kvaddir í hinsta sinn. Fatalína og Deena Jones Meðfram þessu ævintýri stofnaði Beyoncé fatalínuna House of Deréon ásamt móður sinni, Tinu Knowles. Ekki er öll sagan sögð því í byrjun þessa árs hóf Beyoncé upptökur á kvikmyndinni Deena Jones sem er byggð á leikhúsverk- inu vinsæla Dream Girls. Eftir að fjögurra mánaða tökunum var lokið ákvað Beyoncé að taka sér langþráða pásu og hvíla sig í góðu yfirlæti við sundlaugarbakkann. Tveggja daga frí Hún entist ekki lengi fríinu því eftir tveggja daga afslöppun gat þessi mikli orkubolti ekki setið á sér lengur og hringdi í hóp þekktra upptökustjóra og fékk þá til að kíkja með sér í hljóðver í New York-borg. Í þessum hópi voru kappar á borð við The Neptunes, Sean Garrett, Swizz Beats og Rich Harrison, sem var einmitt maður- inn á bak við Crazy in Love. Sköpunargáfan á fullt Í New York kom Beyoncé strákun- um fyrir hverjum í sínu herberg- inu og flakkaði svo á milli þeirra með svipuna að vopni. Samdi hún og tók upp með þeim lögin en til að þeim yrði eitthvað úr verki reyndi hún að koma á samkeppni á milli þeirra, sem þó var ekki neikvæð að hennar sögn. „Allt gerðist svo snöggt og þess vegna þurfti ég ekki að redda dýrum flugferðum og glíma við alls konar önnur vandamál. Þetta gekk allt eins og í sögu og allir voru mjög spenntir að vera í hljóðverinu og gefa sköp- unargáfu sinni lausan tauminn,“ segir Beyoncé, sem nýtur þess að gera krefjandi hluti: „Ef hlutirnir eru auðveldir er öll spennan farin því ég vil ekki láta mér leiðast og hafa það þægilegt þegar ég er að búa til tónlist,“ segir hún. Þriggja vikna upptökur Eftir aðeins þriggja vikna upptökur var ellefu laga plata tilbúin auk fjórtán laga til viðbótar og Bey- oncé er hæstánægð með útkom- una. „Þetta er það besta sem ég hef nokkurn tímann gert,“ segir hún, sjálfsöryggið uppmálað. Fyrsta smáskífulag B Day, Deja Vu, hefur fengið góðar viðtökur en þar nýtur hún aðstoðar kærasta síns Jay-Z. Jessica hvað? Þess má geta að önnur vinsæl söngkona, Jessica Simpson, gaf út plötu fyrir skömmu sem nefnist A Public Affair. Þrátt fyrir frægð hennar má telja afar líklegt að hún falli í skuggann af Beyoncé, enda kemst hún varla með tærnar þar sem fröken Knowles hefur hælana í vinsældum. Orkuboltinn Beyoncé BEYONCÉ KNOWLES Söngkonan öfluga er mætt aftur með sína aðra sólóplötu, B Day. Mercury-verðlaunin verða afhent í 13. sinn við hátíðlega athöfn næsta þriðjudag. Reglur Mercury-verðlaunanna eru mjög einfaldar. Dómnefnd velur tólf plötur. Öll tónlist kemur til greina og það er eingöngu tónlistin sem farið er eftir. Ekkert annað skiptir máli. Að mínu mati eru Mercury-verðlaunin dæmi um mjög vel heppnuð tónlistarverðlaun. Það er að vísu iðulega deilt um það hver hreppir þau. Mörgum fannst t.d. vont að New Forms með Roni Size væri tekin fram yfir OK Computer með Radiohead árið 1997 og að hinn indversk-ættaði Talvin Singh ynni Blur árið 1999. Það má (og á) að sjálfsögðu að deila um einstaka tilnefningar og sigur- vegara, en aðalatriðið er að á hverju ári vekja Mercury-verðlaunin athygli á áhuga- verðum tónlistarmönnum sem annars færu framhjá manni. Tilnefningarnar skipta eiginlega meira máli en sigurvegarinn. Í ár eru margar fínar plötur tilnefndar. Flestir virðast veðja á að Arctic Monkeys, Guillemots, Thom Yorke eða Muse hljóti verðlaunin, en á meðal þeirra platna sem eru tilnefndar eru margar aðrar frábærar plötur, þ.á.m. White Bread Black Beer með Scritti Politti. Scritti Politti er afkvæmi Green Gartside sem er einn af þessum tónlistarmönnum sem hafa alveg sinn eigin stíl og virðast ónæmir fyrir tískustraumum og tíðaranda. Scritti Politti kom fyrst fram sem hljómsveit í London undir lok áttunda áratugar síðustu aldar og stakk þá mjög í stúf við post-pönk sveitir þess tíma. Tónlistin var ljúft, en hrjúft sambland af poppi, reggí og djassi. Sveitin dró sig í hlé eftir að Green veiktist í lok níunda áratugarins, en hann endurvakti hana sem sólóverkefni árið 1999. White Bread Black Beer er aðeins fimmta plata sveitarinnar á tæpum þrjátíu árum og sú fyrsta í sjö ár. Og enn hljómar Green öðruvísi en allt annað sem er í boði. White Bread Black Beer er ekkert endilega besta platan sem er tilnefnd í ár, en samt hiklaust plata sem á skilið að eftir henni sé tekið. Og þar koma Mercury-verðlaunin sterkt inn. Bestu tónlistarverðlaunin GREEN GARTSIDE Fyrsta Scritti Politti platan í sjö ár er tilnefnd til Mercury-verðlaunanna. > Í SPILARANUM Bob Dylan: Modern Times Razorlight: Razorlight Kelis: Kelis Was Here Tom Petty: Highway Companion Beirut: Gulag Orkestar > Plata vikunnar Lily Allen: Alright, Still „Frumraun Lily Allen er fínasta reggí- popp. Áhrifavaldar hennar skína þó kannski örlítið of mikið í gegn í annars frábærum lögum hennar.” BÖS TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Gulldrengirnir okkar í hljómsveitinni Sigur Rós eru komnir í langþráð frí eftir að tón- leikaferð þeirra um landið lauk um verslunarmannahelgina. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá voru allir tónleikarnir teknir upp fyrir útgáfu á væntanlegum DVD-diski sveitarinnar. Orri Páll Dýrason, trommuleikari Sigur Rósar, segir að nú standi yfir forvinna við gerð mynddisksins. „Við erum með 120 klukkutíma af efni svo það er heilmikil vinna í þessu. Við erum með mann í að hlaða efninu inn fyrir okkur og svo komum við að klippingu og fleiru síðar,“ segir Orri. Tónleikaferð Sigur Rósar vakti heilmikla athygli hérlendis, og reyndar víðar því fjöl- margir aðdáendur sveitarinnar komu hingað til lands af þessu tilefni. Búast má við að DVD-diskurinn eigi eftir að njóta talsverðra vinsælda meðal tónlistaráhugafólks. Orri Páll segir að búast megi við því að diskur- inn komi út snemma á næsta ári. „Við stefnum að því að klára þetta fyrir jól. Það er því líklegt að diskurinn komi út snemma á næsta ári.“ 120 klukkutímar af efni SIGUR RÓS Í ÁSBYRGI Frábærir tónleikar sveitarinnar á Miklatúni og í Ásbyrgi verða áberandi á væntan- legum DVD-diski. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK RADIOHEAD - OK COMPUTER Fyrsta platan sem ég man eftir að hafi haft djúp áhrif á mig. Ég var, og er, með tiltölu- lega seinþroska tónl istarsmekk og þótt Radiohead hefði þá þegar gefið út tvær breiðskífur og slegið í gegn um allan heim þá hafði ég ekki minnstu hugmynd um tilvist þeirra. OK Computer er mikið meistaraverk og opnaði augu mín fyrir bæði eldri plötu Radiohead, The Bends, og annarri tónlist í svipuðum fíling. UPPÁHALDSLAG: Ég var á Partilla- Cup í Svíþjóð að leika handknattleik og einn minna bestu vina, Bjarni Ólafur Eiríksson, leyfði mér að heyra lag af plötunni. Lagið var Karma Police og greip það mig við fyrstu hlustun og enn er það í miklum metum. MEGAS - Á BLEIKUM NÁTT- KJÓLUM Ég hef frá blautu barnsbeini verið alinn upp með Megas í eyrunum en aldrei hleypt tónlist hans alveg inn. Með Á bleikum náttkjólum opnaðist flóðgátt og ég sökkti mér í tónlist Megasar og uppgötvaði hve heppnir við Íslendingar erum að hafa slíkan mann í röðum okkar. Maður sem getur komið ótrúleg- ustu hugsunum og sögum í orð og fagrar laglínur á þann hátt sem mann óraði ekki fyrir. UPPÁHALDSLAG: Eitt lag heillar mig mest, Orfeus og Evridís. Þetta er eitt fallegasta lag sem ég hef heyrt og það er ekki laust við að mér vökni um augu er síðasta erindið hljómar: „Blesi minn í brekkunni góðu búinn er þér hvílustaður einhverntíma ái ég með þér örþreyttur gamall vonsvikinn maður.“ SIGURÐUR EGGERTSSON Handboltamaðurinn og grínarinn knái fetar sígildar slóðir í plötuvali sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.