Fréttablaðið - 25.04.2007, Blaðsíða 37
Iðjusemi hefur löngum ver-
ið álitin með mestu dyggð-
um hér á landi og letin að
sama skapi með verstu
löstum enda vofir hún ávallt
yfir.
Þorvaldur Þorsteinsson, rithöf-
undur og myndlistarmaður, ræðir
um þann löst og rekur með því
smiðshöggið á fyrirlestraröð um
dauðasyndirnar sjö í Grófarhús-
inu kl. 17.15 í dag. Fyrirlestraröð
þessi var flutt í Amtmannsbóka-
safninu á Akureyri fyrr í vetur og
hefur mælst afar vel fyrir bæði
norðan heiða og sunnan.
Þorvaldur segist hafa fengið að
velja sér synd og því varð letin
fyrir valinu. „Ég vildi velja þá sem
stendur mér næst og ég tengi mest
við. Þetta er syndin sem hrjáir
hvað flesta og ætli það verði ekki
þar sem maður verður endanlega
tekinn í bólinu.“ Þorvaldur segist
hafa notað þetta tækifæri til að
losna undan eigin ótta við letina og
komist að ýmsu þegar hann kafaði
dýpra í þær hugmyndir sem við
tengjum við þennan löst.
„Við erum öll upptekin af því að
gera aldrei nóg og vera ekki nógu
dugleg. Það er auðvelt að tengja
dug- og dáðleysi við það að vera
of latur. Í okkar samfélagi skiptir
ekki máli hversu mikið menn gera
– það er aldrei nóg og letin vofir
ávallt yfir. Þegar ég fór að skoða
letina út frá forsendum trúarinn-
ar og hinum dauðasyndunum kom
í ljós að hugmynd okkar um leti er
eiginlega byggð á misskilningi,“
segir Þorvaldur og áréttar að mik-
ilvægt sé að fólk geri sér grein
fyrir hvað átt er við með leti.
„Við höfum gripið í okkur svolít-
ið skrýtna og skakka mynd af let-
inni og heimfært upp á hana sitt-
hvað sem ekkert á skylt við dauða-
syndina.“
Hann segir að í fyrirlestri sínum
kalli hann hlustendur sína til nýrr-
ar ábyrgðar og segist vonast til
þess að þeir finni fyrir sama létti
og hann sjálfur gagnvart þessari
ógnvekjandi synd. „Fyrirlestur-
inn snýst svolítið um tegund af leti
sem við höfum hingað til ekki tekið
mjög alvarlega. Ef menn gera það
er voðinn vís – maður verður svo-
lítið öðruvísi þenkjandi en ég er
mjög spenntur fyrir þeirri breyt-
ingu sjálfur.“ Hann lætur ekki
meira uppi um erindi sitt að svo
stöddu en segir að ef vel takist til
muni efni fyrirlestursins að sönnu
halda vöku fyrir mönnums.
Þorvaldur vinnur einnig að því
að eyða annars konar ótta úr sál-
arkimum fólks því hann hefur um
nokkurra ára skeið staðið fyrir
námskeiðum í skapandi skrifum
á vegum fræðslumiðstöðvarinn-
ar Kennsla.is. Til hans leitar fólk á
öllum aldri sem í blunda höfundar,
fólk með mismunandi bakgrunn
og reynslu en Þorvaldur segir að
það gefist mjög vel að vera með
blandaða hópa á slíkum námskeið-
um. Hann útskýrir síðan að flest-
ir þátttakendanna hafi alls konar
skýringar á því af hverju þeir
ættu ekki að vera á námskeiði í
skapandi skrifum. „Á námskeið-
ið kemur fólk sem ekki segist geta
skrifað eða hafa neitt að skrifa
um. Ég hef þó ekki enn verið með
nemanda sem ekki hefur orðið að
endurskoða þann vanmátt sinn á
þessu námskeiði.“
Þorvaldur segir að allir geti
skrifað og markmið námskeiðsins
sé að eyða hræðslunni og koma
fólki af stað. „Ef við umgöngumst
skrifin eins og okkar eigin tján-
ingu á góðum degi, ef við skrifum
eins og við spjöllum við ástvini
okkar, getum við skrifað hvað sem
okkur sýnist.“
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðið má finna á heimasíðunni
www.kennsla.is
Hvíldu þig, hvíld er góð?
22 23 24 25 26 27 28
Fjörður • Hafnarfirði • 565 7100
Aðeins 4 verð í gangi
1000 kr 2000 kr
3000 kr 5000 kr
Opið 13-18 miðv. – föstud • 13-17 laugard. og sunnud.
Firði Hafnarfirði S: 555-4420
Text