Fréttablaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 16.05.2007, Blaðsíða 2
 Jacques Chirac, fráfarandi Frakklandsforseti, lauk síðasta heila vinnudegi sínum í embætti með sjónvarps- ávarpi til þjóðarinnar í gær- kvöldi. Tólf ára forsetatíð Chiracs lýkur í dag er nýkjörinn eftirmað- ur hans, Nicolas Sarkozy, tekur formlega við embætti. Chirac áformar að skapa sér nýjan starfsvettvang með því að koma á fót stofnun, sem nýtir orðstír hans á alþjóðavettvangi. Aðstoðarmenn hans segja að Chirac-stofnunin, svipað og stofnun Bills Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, verði helguð sjálfbærri þróun og samræðu menningarheima með sérstakri áherslu á Afríku. Tólf ára valdatíð Chiracs lýkur Stjórnvöld í Írak hafa nú bannað allar myndatökur á vettvangi sprengjuárása. Í samræmi við það var bæði fréttaljósmyndurum og kvik- myndatökumönnum vísað burt af vettvangi sprengjuárásar í Bagdad í gær. Stjórnvöld segja tilgang bannsins þríþættan. Með því á að koma í veg fyrir að fréttamenn og ljósmyndarar spilli fyrir vett- vangsrannsóknum, tryggja á að mannréttindi særðra séu virt og torvelda herskáum hópum og uppreisnarmönnum að stæra sig af árangrinum. Allar mynda- tökur bannaðar Katrín, væri ekki nær að kalla ykkur Vinstri grín? Vígamenn úr röðum Hamas-samtakanna sátu í gær fyrir vopnuðum liðsmönnum Fatah-hreyfingarinnar nærri mikilvægri landamærastöð frá Gaza-svæðinu inn í Ísrael. Átta manns lágu í valnum eftir skotbardagann, en það er mesta mannfall sem orðið hefur frá því vopnuð átök milli stríðandi fylkinga Palestínumanna brutust aftur út um helgina. Ísraelskir hermenn hleyptu líka af skotum vegna skotbardagans, en þar með skapaðist hætta á að Ísraelar drægjust inn í átökin. Minnst tuttugu manns hafa fallið í innbyrðis átökum vikunnar, sem hafa lamað meira og minna allt á Gaza og ýtt samstjórn Hamas og Fatah að barmi sundrungar. Samstjórnin var mynduð í mars með það fyrir augum að binda enda á innbyrðis átök fylkinganna. Á sama tíma og þessu fór fram var Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, staddur í opinberri heimsókn í grannríkinu Jórdaníu. Þar skoraði Abdullah II Jórdaníu- konungur á gestinn að setja tímaáætlun fyrir friðarvið- ræður við Palestínumenn, sem grundvallast myndu á friðartillögum arababaríkja sem ganga út á að þau viðurkenni Ísrael að fullu gegn því að það skili her- numdu landi og sjálfstætt Palestínuríki verði stofnað. Átta falla í fyrirsát Hamas Fátt skýrðist í gær um það hvort Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur myndu starfa áfram saman í ríkisstjórn. „Við erum á sama stað og við vorum í gær, við héldum hér ríkis- stjórnarfund og síðan hafa menn verið að spjalla saman, eins og geng- ur. Það er ekkert nýtt komið upp í málinu, það er í nákvæmlega sömu stöðu og það var í gær,“ sagði Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Hann sagði ágætar líkur á því að ríkisstjórnin starfaði áfram, það myndi skýrast á næstu dögum. „Það eru ágætar líkur á því, en það er ekki öruggt,“ sagði Geir. Spurður hvort Sjálfstæðisflokkur- inn væri að ræða við aðra flokka um hugsanlegt ríkisstjórnarsamstarf sagði Geir: „Nei, það er ekki hægt að segja að það sé neitt slíkt í gangi. En auðvitað tala þingmenn saman milli flokka, og það eru ýmsar vangaveltur í gangi.“ Jón Sigurðsson, formaður Fram- sóknarflokksins, sagðist að ríkis- stjórnarfundinum loknum eiga von á því að það kæmi í ljós á næstu dögum, jafnvel í dag, hvort ríkisstjórnin starfaði áfram. Ekki hefði þó verið tekin nein ákvörðun innan Fram- sóknarflokksins um það hvort flokk- urinn væri tilbúinn til áframhaldandi ríkisstjórnar- samstarfs. Líkur á sama samstarfi áfram Flaggskip náttúru- verndarsamtakanna Sea Shepherd kemur til Íslands eftir um mánuð, en það lagði úr höfn í Ástralíu í fyrrinótt að íslenskum tíma. Áhöfnin segist tilbúin að leggja líf og limi í hættu til að stöðva hval- veiðar Íslendinga. „Markmið okkar er að trufla og koma í veg fyrir ólöglegar hval- veiðar Íslendinga,“ sagði Paul Watson, forseti og stofnandi Sea Shepherd, í samtali við Fréttablað- ið í gær. Hann verður sjálfur skip- stjóri í ferðinni en er ekki um borð sem stendur. Hann segir áhöfn skipsins Far- ley Mowat, sem er flaggskip sam- takanna, tilbúna að leggja líf og limi í hættu til að stöðva dráp á hvölum. „Við gefum ekki upp hvaða aðferðum við hyggjumnst beita en ætlum okkur að vekja athygli umheimsins á hvalveiðun- um. Áhöfnin um borð í skipinu er frá tólf þjóðlöndum og allir eru ákveðnir í að koma í veg fyrir dráp á hvölum,“ segir Watson. Spurður um líf og limi hvalveiði- manna og varðskipsmanna sagði Watson: „Á þeim þrjátíu árum sem við höfum starfað höfum við aldrei orðið þess valdandi að nokkur maður hafi slasast, og ég er nokkuð viss um að við munum halda í þá hefð.“ Einar K. Guðfinnsson sjávarút- vegsráðherra sagði í gær að engar ákvarðanir hefðu verið teknar um hvernig íslensk stjórnvöld brygð- ust við komu Sea Shepherd. „Þetta eru náttúrlega hryðjuverkamenn, þeir hafa sýnt það áður gagnvart okkur, og ef þeir hegða sér sem slíkir reikna ég með að það verði tekið á þeim þannig.“ Sea Shepherd-samtökin kalla fyrirhugaðar aðgerðir hér við land „Operation ragnarok 2007“, eða „Aðgerðin ragnarök 2007“. Meðlimir Sea Shepherd sökktu tveimur hvalbátum í Reykjavíkur- höfn árið 1986 og komust af landi brott eftir verknaðinn. Watson var handtekinn þegar hann kom til Íslands árið 1988. Honum var vísað úr landi án þess að ákæra væri gefin út á hendur honum en tekið var fram að hann mætti aldrei koma aftur til landsins. „Ég var ekki ákærður og hef enga ástæðu til að ætla að mér verði meinað að koma til Íslands. Við sökktum þessum skipum árið 1986, en þegar ég kom til landsins 1988 var ég aldrei ákærður,“ segir Watson. Áhöfn Farley Mowat er skipuð sjálfboðaliðum, en skipið hefur legið við bryggju síðan aðgerðum samtakanna gegn japanska hval- veiðiflotanum við Suðurskauts- landið lauk í byrjun apríl síðast- liðnum. Sea Shepherd sendir flaggskipið til Íslands Paul Watson mun stýra skipi Sea Shepherd þegar það kemur til að reyna að stöðva hvalveiðar Íslendinga eftir um mánuð. Þetta eru hryðjuverkamenn og verða væntanlega meðhöndlaðir sem slíkir segir sjávarútvegsráðherra. Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn eftir þriggja bíla árekstur í Breiðholti á mánudag. Hann er grunaður um ölvunarakstur. Ökumaðurinn ók aftan á tvo kyrrstæða bíla sem biðu fyrir aftan strætisvagn sem numið hafði staðar við biðskýli. Bílarnir skemmdust töluvert og bíll tjónvaldsins sýnu mest. Hann forðaði sér burt í flýti og var í látunum nærri búinn að aka á ófríska konu. Lögreglan fann manninn skömmu síðar á einu af öldurhús- um bæjarins. Að sögn Margeirs Sveinssonar lögreglufulltrúa er rannsókn málsins langt komin. Ölvaður tjón- valdur stakk af „Það hefur ekki verið sett fram nein krafa að hálfu dýralæknisyfirvalda um förgun,“ segir Katrín Andrésdóttir, héraðsdýralæknir á Suðurlandi, vegna vanfóðraðra hrossa sem fjallað hefur verið um í fjölmiðl- um að undanförnu. Flest hrossanna sem um ræðir hafa verið flutt af staðnum á aðra jörð sem eigendur þeirra hafa til umráða. Að sögn Katrínar vildi fólkið sjálft fá að leysa málið og fékk til sín ráðunaut til þess að meta hrossin. Að því búnu var gripið til ráðstafana, meðal annars með því að senda tvær hryssur í sláturhús. Katrín segir málið enn í vinnslu. Engin krafa um förgun hrossa

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.