Fréttablaðið - 16.05.2007, Síða 22

Fréttablaðið - 16.05.2007, Síða 22
Sendum frítt um land allt! P IP A R • S ÍA • 7 0 62 3 Felgustærðir: 15", 16" og 17" Úrval jeppadekkja upp í 38" P R E N T S N IÐ HEILDARLAUSNIR Í DRIFSKÖFTUM Landsins mesta úrval af hjöruliðum og drifskaftsvörum Jafnvægisstillingar Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 BMW X5 er afar skemmtilegur bíll. Hann hefur stækkað en þrátt fyrir það er hann enn mjög lipur. Það er ekki oft sem fyrirtæki hefur svo mikla trú á vöru sinni að það setur hana í sama flokk og nýja sinfóníu eftir Mozart. BMW gerir hins vegar nákvæmlega það með nýja kynslóð X5 jeppans. X5 er fullvaxinn jeppi. Hann hefur meira að segja stækkað milli kynslóða. Þrátt fyrir það er hann ótrúlega lipur og í raun furðulegt hvernig hægt er að láta svo stóran bíl leika svo vel í hönd- unum á ökumanni. X5 er þó ekki léttur í stýri í hefðbundnum skiln- ingi en eins og fyrir einhverja töfra lætur hann svo vel að stjórn að stærðin gleymist fljótt. BMW hefur löngum verið í fremstu víglínu er kemur að dís- ilvélum og þriggja lítra línusex- an í X5 er engin undantekning. 235 hestöfl og 520 Nm tog segja alla söguna og það á frekar hljóð- látan hátt. Til að hafa hemil á öllu þessu afli hefur BMW troð- ið öllum mögulegum og ómögu- legum stöðugleikakerfum í bíl- inn. Þau gera sitt gagn og eru í raun nauðsynleg. Ekki ýta á takk- ann sem slekkur á stöðugleika- stýringunni. Hann virkar svipað og stóri rauði takkinn í bíl James Bond. Þá gerist eitthvað rosa- lega skemmtilegt en svo spring- ur eitthvað. X5 er einkar laglegur á að líta. Algengt er að fara þá leið með jeppa að gera þá kraftmikla í út- liti og útblásna en ekki X5. Hann er rennilegur og stílhreinn, fág- aður, hreinn og beinn. Búið er að hanna mælaborð- ið upp á nýtt í stíl við hönnun- arlínu BMW. Útlit farþegarýmis og mælaborðsins verður að telj- ast helsti löstur X5. Nettir mæl- arnir passa illa við ímynd X5 og eiga mun frekar heima í BMW ás (enda eru mælarnir nánast eins þar). Rafræna stýring sjálfskipt- ingarinnar dró líka úr jeppatil- finningunni og þrátt fyrir að vera mjög þægileg passaði hún ein- faldlega ekki við heildarmynd- ina. Það verður að teljast hæpið að fólk muni enn dást að X5 árgerð 2008 árið 2208 eins og við dáumst enn að Mozart. En í dag er hann eitt áhugaverðasta ökutækið sem hægt er að setjast undir stýrið á. Væri Mozart uppi á okkar tíma myndi hann án efa keyra um á X5 með allar rúður niðri og Don Giovanni í botni. Mikill verður meiri Smurþjónusta fyrir allar gerðir bíla Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla Komdu með bílinn til okkar! Frábær verð og góð þjónusta! Alltaf heitt á könnunni!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.