Fréttablaðið - 16.05.2007, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 16.05.2007, Qupperneq 48
SIMPLY CLEVER Við skorum á þig að koma og skoða nýjasta meðliminn í Skoda fjölskyldunni, Skoda Roomster. Roomster er snarpur og skemmtilegur bíll með ótrúlegt notagildi. Hönnunin, aðgengið og útsýnið gerir aksturinn að hreinni unun. Roomster er flottur og hagkvæmur bíll fyrir nútímafjölskylduna RÚM FYRIR MEIRA! Verð frá 1.790.000 kr. Skoda Roomster Kemur á óvart! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 9 0 6 2 FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is Ekki man ég eftir viðlíka stemn-ingu í höfuðborginni og þegar grænklædda risessan leið um stræti og torg með föður sinn í eftirdragi. Mikið var gaman. Svona á Listahátíð í Reykjavík að vera. Hún á nefnilega ekki aðeins að fara fram í tónleikasölum eða leikhúsum heldur teygja sig um götur borgarinnar og sinna börn- unum ekki síður en þeim full- orðnu. Áhugi barnanna beindist að hverjum krók og kima risess- unnar ef mark er takandi á svolít- illi umfjöllun sem birtist í Blað- inu. Þar er sagt frá því að „for- vitnir smástrákar“ hefðu gerst „svo dónalegir að kíkja undir pils hennar svona rétt að athuga hvort ekki væri allt í „réttum hlutföllum“.“ á því sem skessur fela undir pilsum sínum er síður en svo nýr af nálinni hér á landi. Í íslenskum þjóðsögum er sagt frá einmana skessum sem taka það til bragðs að ræna karlmönn- um til að fjölga sér. Ein þeirra hét Loppa og stal hún manni að nafni Jón. „Hún hafði hann heim í helli sinn þar sem systir henn- ar var fyrir ... Hugðu þær að hafa Jón þennan til fylgilags við sig, svo þær gætu aukið kyn sitt. Þær tóku hann oft og mökuðu hann í eins konar smyrslum og teygðu hann á milli sín. Líka orguðu þær í eyru honum til að trylla hann,“ segir í þjóðsagnasafni Sigurðar Nordal. meðferðina komst Jón undan á flótta en lifði bara í þrjá daga sem frjáls maður. Þá gaf hjartað sig og er talið að hann hefði sprungið af mæði. Hann varð nefnilega svo sílspikaður hjá systrunum að um margt minnir á Hans í búri nornarinnar. Í ljósi alls þess sem borið hefur verið upp á skessur í gegnum tíðina veit ég ekki alveg hvort ég óska þess að mamma risessunnar, og þá barnsmóðir skapvonda risans, mæti til leiks á næstu Listahátíð. Þau feðginin hafa líka alveg gert sitt gagn. virðist heimsókn þeirra hafa þurrkað út síðustu leifarnar af minningum borgarbúa um Japanann sem eitt sinn kom hingað á vegum Listahá- tíðar og stóð á haus í Austurstræti á typpinu. Vissulega fór list hans líka fram úti á götu eins og atriðið með risessunni en það sem hann hafði helst fram að færa teygði sig þó ekki út um allan miðbæ. Risessa tryllir borgarbúa

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.