Fréttablaðið - 13.09.2007, Page 11

Fréttablaðið - 13.09.2007, Page 11
Menntamálaráðherra hefur ráðið Guðrúnu Ögmunds- dóttur, fyrrverandi þingmann Samfylkingarinnar, sem verkefn- isstjóra málefna þeirra fram- haldsskólanema sem hafa annað móðurmál en íslensku. Starfshópur vinnur að tillögum um stuðning til nema sem svo er ástatt um og hefur sjóður verið stofnaður til að styrkja íslenskukennslu þeirra með sértækum hætti. Meðal aðgerða sem sjóðnum er ætlað að styrkja eru stuðnings- kennsla og fræðsla fyrir kennara í að kenna íslensku sem erlent tungumál. Guðrún í vinnu hjá ráðherra Icelandic Glacial vatnið er komið í lokaúrslit í samkeppni um þekktustu verðlaun sem veitt eru fyrir vatnsframleiðslu í heiminum. Ásamt Icelandic Glacial eru þekkt merki eins og Coca-Cola og Danone, sem framleiðir Evian-vatnið. Icelandic Glacial er tilnefnt ásamt hinum fyrirtækjunum tveimur í flokknum besta framtak í sjálfbærni. Verðlaunin kallast Bottled- WaterWorld Awards og verða úrslitin kynnt á alþjóðlegri ráðstefnu vatnsframleiðenda í Mexíkóborg á morgun. Keppir við Coca-Cola Akureyrarbær og Íþróttafélagið Þór hafa samið um uppbyggingu á íþróttasvæði félagsins. Þór fær aukið svæði til æfinga, hiti verður lagður í knattspyrnu- völl og ný áhorfendastúka byggð. Þá verður frjálsíþróttavelli komið upp á félagssvæðinu sem Ungmennafélag Akureyrar fær til umráða. Í frétt á akureyri.is segir að það sé sameiginlegur skilningur samningsaðila að um góðan og hagstæðan samning sé að ræða Félagsfundur Þórs hafnaði eldri samningi um uppbyggingu svæðisins. Nýi samningurinn var undirritaður með fyrirvara um samþykkt bæjarráðs. Þórsarar sáttir við ný áform veita Cheerios er trefjaríkt og sykurlítið og fer vel í litla og stóra maga. Cheerios, morgunkornið sívinsæla, er komið í nýjan, íslenskan pakka. Pakkinn inniheldur ekki aðeins hollan og næringarríkan morgunverð heldur eru skemmtilegar tilvitnanir í snillinga eins og Snorra Sturluson, Woody Allen og Línu Langsokk á bakhlið pakkans gott nesti fyrir daginn. Á innhliðum pakkans eru útlínur hluta sem má klippa út og lita og leika sér að. Cheerios. Orð dagsins. Vertu ofurhetja! 5 Settu grímuna á þig og sláðu í gegn Klipptu út grímuna, vængina og skeggið 1 2 Litaðu eða málaðu grímuna, vængina og skeggið 3 Festu vængina á grímuna 4 Festu teygju á grímuna 5 auðveld skref A ð v e r a f u l l k o m l e g a e i n l æ g u r v i ð s j á l f a n s i g e r g ó ð æ f i n g . S i g m u n d F r e u d ÍS L E N S K A /S IA .I S /N A T 3 85 05 0 9/ 07

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.