Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.09.2007, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 13.09.2007, Qupperneq 22
nám, fróðleikur og vísindi Námsgagnastofnun opnaði nýlega vefinn Æfum íslensku. Vefurinn er fyrst og fremst ætlaður til að aðstoða börn frá ellefu ára aldri, sem hafa annað móðurmál en íslensku, við að læra málið. Sylvía Guðmundsdóttir, ritstjóri vefjar- ins, segir að krakkar sem nota vef- inn þurfi að vera orðnir læsir og hafa einhvern grunn í íslensku. Ætla má að slíkur vefur geti komið sér vel fyrir allan þann fjölda erlendra barna sem sest hafa að á Íslandi með foreldrum sínum á liðnum árum en dómsmálaráðu- neytið gaf út tæplega fimmtán þús- und íslenskar kennitölur til útlend- inga á síðastliðnu ári. Sylvía segir að vefnum sé ætlað að efla málfærni nemandans og til- finningu hans fyrir íslenskum beygingum. „Það er ekki bara verið að kenna nemandanum orð heldur er lögð áhersla á að kenna honum málfræði,“ segir Sylvía og bætir því við að reynt hafi verið að gera æfingarnar lifandi og skemmtilegar því á vefnum sé bæði notaður texti, hljóð og mynd. Sylvía segir að vefurinn sé öllum opinn á vefslóðinni www.nams.is/ aefum_isl/index.htm og skorar á Íslendinga að láta útlendinga vita af honum svo börn þeirra geti nýtt sér hann í íslenskunáminu. Aðstoði börn við íslenskunámið Samtök áhugafólks um skólaþróun stendur fyrir ráðstefnu um námsmat í framhaldsskólum á morgun. Meðal spurninga sem þar verður reynt að svara eru: Er tími formlegs námsmats liðinn? og Hvernig prófar kennari sem ekki vill prófa? „Ég held að það sé gríðarlega mikil- vægt fyrir skólana að ræða hvaða augum þeir líta námsmatið. Aðal- spurningin er þessi: Er námsmat viðhengi við skólastarfið, eitthvað sem kemur utan við og ofan á, eða er námsmatið innifalið eða hluti af kennslu og skólastarfi?“ segir Jón Torfi Jónasson, prófessor í upp- eldis- og menntunarfræðum við Háskóla Íslands. Hann mun flytja erindi á ráðstefnunni þar sem hann veltir því fyrir sér hvort tími formlegs námsmats sé liðinn. Jón Torfi tekur dæmi af sam- ræmdu prófum í grunnskólum. „Samræmdu prófin geta verið hluti af starfi skólans, það er að maður veltir því fyrir sér hvernig nemendur eru að standa sig, á hverju þarf að taka og hvernig hægt er að bregðast við. Þannig verða samræmdu prófin heillegur hluti af starfsemi skólans og þá er hægt að safna upplýsingum til að nota þau. Samræmdu prófin í 4. og 7. bekk eru hins vegar ekki hluti skólans í þessum skilningi.“ „Spurningin er: Eigum við að nota námsmat eftir á, eins og við notum það almennt nú, eða ætlum við að nota það til að safna upplýs- ingum um hvað megi laga, leið- rétta og þess háttar hjá einstakl- ingum, kennurum og skólum?“ Jón Torfi segist hins vegar ekki vera á því að breyta þurfi form- legu námsmati. „Ég held að það þurfi að gjörbreyta viðhorfinu til þess. Ég held að formlegt náms- mat gegni litlu hlutverki eins og það er viðhaft en eðli málsins sam- kvæmt ætti það að gegna miklu hlutverki. Og svo er stóra spurn- ingin: Hvað er formlegt náms- mat?“ Ráðstefnan verður haldin í Flensborgarskólanum í Hafnar- firði. Nánari upplýsingar um ráð- stefnuna má finna á heimasíðu Samtaka áhugafólks um skólaþró- un á vefslóðinni skolathroun.is. Formlegt námsmat ætti að gegna miklu hlutverki Höfundarnir koma í tíma í Háskólanum Hvað er að frétta af mömmu?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.