Fréttablaðið - 13.09.2007, Page 68

Fréttablaðið - 13.09.2007, Page 68
komist áfram,“ sagði hann. „Núna er hún líklega búin að eyðileggja feril sinn. Það er erfitt að snúa aftur eftir svona frammistöðu.“ Britney var gjöreyðilögð þegar hún steig af sviðinu og öskraði á sjálfa sig baksviðs. „Hún er alveg í rusli. Hún var mjög taugaveikluð og vissi að hún klúðraði atriðinu,“ sagði kunningi Britney. Annar heimildarmaður var á sama máli: „Hún var virkilega taugatrekkt. Það er langt síðan hún kom síðast fram og hún var að syngja í beinni útsendingu fyrir framan kollega sína í tónlistar- bransanum. Hún hreinlega fraus fyrir framan alla.“ Simon Cowell, hinn óvægni dómari úr American Idol og X-Factor, óttast að Britney Spears hafi eyðilagt feril sinn með skelfilegri frammistöðu á MTV-verðlaunahátíðinni. Britney ætlaði að stimpla sig inn á nýjan leik eftir mikinn vandræðagang á undanförnum árum en hafði ekki erindi sem erfiði. „Ef Britney hefði verið skjólstæðingur minn hefði nægt fyrir mig að horfa á hana æfa einu sinni til að banna henni að stíga á svið,“ sagði Cowell. „Það hefði verið þess virði að láta hana hætta við allt saman, svo hún ætti möguleika síðar meir á að endur- heimta feril sinn. Hún var ekki tilbúin í þetta atriði á nokkurn hátt. Lagið var vitlaust, ímynd hennar var röng og hún var illa undirbú- in. Ef hún hefði sýnt þessa frammistöðu í áheyrnarprufum fyrir X-Factor hefði hún ekki Kvikmyndabálkurinn um Harry Potter hefur slegið út James Bond og Stjörnustríð sem sá tekjuhæsti í sögunni. Myndirnar fimm um galdrastrákinn knáa hafa þénað um 290 milljarða króna víðs vegar um heiminn. Bond er í öðru sæti með 288 milljarða og í því þriðja er Star Wars með um 275 milljarða króna. Enn á eftir að sýna tvær kvik- myndir um Harry Potter. Sú næsta kemur út á næsta ári og sú síðasta 2010. „Það er frábært að sjá vöru- merkið Harry Potter ná þessum stalli. Það verður fróðlegt að sjá hversu langt það mun komast undir lok áratugarins,“ sagði starfsmað- ur framleiðandans Warner Bros. Fyrsti hauststormurinn hefur væntanlega ekki verið mörgum gleðigjafi, en verktökum við Smáratorg er hann sérstaklega óvelkominn. Þar stendur hæsti krani landsins, enda verið að reisa hæstu byggingu landsins. „Við erum stopp út af veðri, við getum ekkert notað kranann,“ sagði Júlíus Finnsson, verkefnisstjóri Jáverka í Smáratorgi. Starfsmenn sitja þó ekki auðum höndum á meðan, þar sem af nægum verk- efnum er að taka. „Það er aðallega rokið sem hefur haft þessi áhrif. Það munar alveg um fjórum, fimm metrum á sekúndu á jörðinni og uppi í krana,“ útskýrði Júlíus, en kran- inn er 110 metrar á hæsta punkti. „Við höfum ekki híft í meira roki en svona sautján metrum á sek- úndu,“ sagði Júlíus, en í gær náðu verstu vindhviðurnar um 24 metr- um á sekúndu. „Við erum með vindmæli þarna uppi,“ útskýrði hann. Júlíus átti von á því að veðrið myndi versna í nótt, en hafði engar áhyggjur af því að kraninn sjálfur myndi haggast. „Það þarf töluvert meira til að hann velti eða eitthvað í þá áttina,“ sagði hann. „Í svona roki snýr hann sér hins vegar bara undan vindi og tekur ekkert á sig, svo það er ekki hægt að snúa honum neitt,“ benti hann á. Verklok eru áætluð í byrjun október og sagði Júlíus að frekari hauststormar gætu sett strik í reikninginn. „Ef við fáum góð- viðri aftur gengur þetta,“ sagði hann vongóður. Hauststormur stoppar vinnu Britney kæmist ekki áfram í X-Factor Sex and the City kvikmynd- in er nú að verða að veru- leika, en aðdáendur þáttar- aðarinnar hafa beðið í þrjú ár eftir því að sá draumur yrði uppfylltur. Óskarsverðlaunahafinn og söngs- tjarnan Jennifer Hudson hefur tekið að sér hlutverk í væntan- legri Sex and the City kvikmynd, en þar mun hún leika aðstoðar- konu Carrie Bradshaw. Sarah Jessica Parker leikur Carrie, eins og áður. Ekki er langt síðan til- kynnt var að Chris Noth myndi snúa aftur í hlut- verki Mr. Big, en á sama tíma spurðist út að sögu- þráður kvikmyndarinnar gerði ráð fyrir því að hann og Carrie hefðu flutt undir sama þak. Hudson er því eingöngu annar leikarinn sem hefur tilkynnt þátttöku sína í verkefninu, fyrir utan stjörnurnar fjórar; Parker, Cynthiu Nixon, Kristin Davis og Kim Cattrall. Söguþræði kvikmyndarinnar hefur verið hald- ið leyndum með öllum tiltækum ráðum, en ráðning Hudson þykir sýna fram á að Carrie hafi klifrað upp metorða- stigann síðan áhorfendur skildu síðast við hana. Fjögur ár eiga að hafa liðið frá þeim tíma að fjór- eykið kvaddi áhorfendur þar til þráðurinn er tekinn upp að nýju í kvikmyndinni. Enn hefur ekki verið staðfest að Evan Handler, David Eiginberg eða Jason Lewis, sem leika eigin- menn eða kærasta hinna söguhetj- anna þriggja, muni taka þátt í kvikmyndinni. Tökur eiga þó að hefjast á Man- hattan í næstu viku, og von- ast aðdáendur nú til að athygli paparazzi-ljós- myndara geti varpað einhverju ljósi á sögu- þráðinn. Sex and the City kvikmyndin verður frumsýnd á næsta ári. Sklep bedzie zamkniety

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.