Fréttablaðið - 05.10.2008, Blaðsíða 2
2 5. október 2008 SUNNUDAGUR
ALÞINGI Ásta Möller, þingmaður
Sjálfstæðisflokks og formaður heil-
brigðisnefndar, vill að sölu tóbaks í
fríhöfnum verði hætt. „Við vinnum
gegn heilbrigðismarkmiðum með
því að selja tóbak á lægra verði í
fríhöfnum heldur en í verslunum,“
segir Ásta.
Hún hefur lagt fram tvær fyrir-
spurnir um málið til fjármála-
ráðherra. Í annarri vill hún svör við
hversu mikið af tóbaki er flutt toll-
frjálst til landsins, samanburð á
verði í fríhöfnum og í almennum
verslunum og hvaða rök liggi að
baki tóbakssölu í fríhafnarverslun-
um. Í hinni spyr hún einfaldlega
hvort fjármálaráðherra telji koma
til greina að hætta sölu tóbaks í frí-
hafnarverslunum.
Afstaða hennar sjálfrar er ljós.
„Tóbaksnotkun hefur gífurleg áhrif
á heilsu og sala þess vinnur á móti
heilbrigðismarkmiðum. Ein leið til
að minnka reykingar er að selja
tóbakið háu verði og það skýtur því
skökku við að ríkið selji það á lægra
verði í fríhöfninni.“
Ásta bendir á nýlega samþykkt
Læknafélagsins um að tóbak verði
aðeins selt gegn lyfsseðli eftir tíu
ár og segir að jákvæð áhrif reyk-
ingabanns á veitingastöðum hafi
þegar komið fram í færri tilfellum
hjartaáfalla.
- bþs
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Lífið á
landnámsöld
Ríkið vinnur gegn eigin heilbrigðismarkmiðum með sölu tóbaks á lægra verði:
Vill tóbakið úr fríhöfnunum
Bubbi, ert þú orðinn ríkis-
bubbi?
„Nei, og ég er heldur ekki Bubbi
kóngur.“
Bubbi Morthens hefur verið ötull í rétt-
indabaráttu þeirra sem minna mega sín
nú og í gegnum tíðina. Það þótti þó sæta
tíðindum þegar Bubbi seldi Sjóvá allar
tekjur sínar af lagasmíðum sínum. Síðar
eignaðist Glitnir réttinn af tekjunum en
nú er rétturinn í eigu ríkisins.
FRÍHÖFNIN Ásta Möller telur að ein leið
til að draga úr reykingum sé að selja
tóbakið háu verði.
EFNAHAGSMÁL Stefán Aðal steins-
son, framkvæmdastjóri Banda lags
háskólamanna, sagði í gær að
félagið væri reiðubúið að ræða
upptöku evru, ef það kynni að
leysa efnahagsvanda þjóðarinnar.
„Það er ekkert sem við útilokum
í þeim efnum, og heldur ekki að
ræða um evru málin,“ sagði Stefán
eftir fund með ráðamönnum. „Við
erum fullkomlega fús til þess. Að
sjálfsögðu viljum við ræða um allt
sem getur komið til hjálpar í
þessu samhengi.“ Spurður hvort
hann vildi tafarlausa aðildar -
umsókn að Evrópusambandinu
sagðist hann ekkert útiloka. - sh
Fús til að ræða hvað sem er:
BHM tilbúið að
ræða evrumál
ÚTILOKA EKKERT Stefán og Guðlaug
Kristjánsdóttir, formaður BHM, við Ráð-
herrabústaðinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN
EFNAHAGSMÁL Ögmundur Jónas-
son, formaður BSRB, segir það
flækja málin að setja fram kröfu
um aðild að Evrópusambandinu
nú. Heimildir herma að ASÍ hafi
lagt þá hugmynd fram sem hluta
af lausn vandans.
„Eitt helsta hitamál þjóðarinnar
verður ekki leyst á helgar-
fundum. Við þurfum að greina á
milli þess sem er viðráðanlegt
núna og hins sem er ill- ef ekki
óleysanlegt á þessari stundu.“
Hann segir fulltrúa BSRB ekki
hafa neitt umboð til að ræða þessi
mál. „Við höfum ekki tekið
afstöðu til evrunnar eða Evrópu-
sambandsaðildar.“ - kóp
Formaður BSRB gagnrýninn:
Krafa um ESB
flækist fyrir
EFNAHAGSMÁL „Að þessum björg-
unarleiðangri verða allir að koma;
stjórnvöld, Seðlabankinn, við-
skiptabankarnir, fjárfestingar-
félög og aðilar vinnumarkaðar-
ins. Öðruvísi er þetta ekki
framkvæmanlegt,“ sagði Arnar
Sigurmundsson, formaður stjórn-
ar Landssamtaka lífeyrissjóða,
eftir fund með fjórum ráðherrum
í Ráðherrabústaðnum við Tjarn-
argötu á sjöunda tímanum í gær-
kvöld. Á þeim fundi svöruðu líf-
eyrissjóðirnir erindi stjórnvalda
um að þeir selji
hluta eigna
sinna í útlönd-
um og flytji
heim. Við það
styrkist gjald-
eyrisforði þjóð-
arbúsins og
gengi krónunn-
ar þar með.
Af 1.800 millj-
arða heildar-
eignum lífeyrissjóðanna eru 500
milljarðar ávaxtaðir í útlöndum.
Hluti þeirrar fjárhæðar er bund-
inn til lengri tíma en annað ekki.
„Það er ekki verið að tala um
nálægt því allar þessar eignir en
stóran hluta,“ segir Arnar sem
vill að öðru leyti ekki upplýsa um
hve háar fjárhæðir er ræða.
Ekki er ljóst hve langan tíma
tekur að losa um eignir í útlönd-
um, né hvort, og þá hvaða, laga-
breytinga er þörf.
Landssamtök lífeyrissjóða hófu
þegar á þriðjudag athugun á
möguleika þess að færa hluta
eigna sinna heim. Eftir að form-
legt erindi stjórnvalda þar um
hafði komið fram var í gær hald-
inn fundur fulltrúa nánast allra
lífeyrissjóða landsins, 30 að tölu,
og afstaða mótuð.
„Það er grundvallaratriði að
fjármálastofnanir og bankar
flytji hluta eigna sinna heim að
því marki sem mögulegt er. Annað
er fráleitt,“ sagði Ögmundur Jón-
asson, formaður BSRB og vara-
formaður stærsta lífeyris sjóðsins;
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkis-
ins. Ögmundur segir niðurstöðu
verða að fást í dag og kallar eftir
eignasölu. „Mín skoðun er að
bönkum og fjármálastofnunum
beri að huga að eignasölu til að
hjálpa til við að leysa okkur niður
úr þeirri snöru sem þjóðin hangir
í núna.“
Ögmundur segir það kröfu líf-
eyrissjóðanna að það fjármagn
sem þeir færi til landsins, ef til
þess kemur, muni gagnast ríkis-
sjóði beint. „Við erum ekki að
setja lífeyrissjóðspeninga á
almennt spil. Það verður að vera
rækilega skilgreint í hvað þeir
peningar yrðu notaðir þannig að
þeir verði fullkomlega tryggðir.“
bjorn@frettabladid.is
kolbeinn@frettabladid.is
Skilyrði að bankar
færi líka eignir heim
Lífeyrissjóðirnir setja það skilyrði fyrir því að flytja hluta eigna sinna til lands-
ins að fjármálastofnanir geri slíkt hið sama. Gjaldeyrisforði þjóðarbúsins og
gengi krónunnar myndu styrkjast. Þess krafist að peningarnir verði tryggðir.
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
VIÐ RÁÐHERRABÚSTAÐINN Fulltrúar lífeyrissjóðanna gengu á fund ráðherra í gær og
kynntu þeim hugmyndir sínar. Arnar er lengst til vinstri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Það verður að vera ræki-
lega skilgreint í hvað þeir
peningar yrðu notaðir þannig að
þeir verði fullkomlega tryggðir.
ÖGMUNDUR JÓNASSON
FORMAÐUR BSRB
EFNAHAGSMÁL „Ég held að vandinn
leysist ekki nema allir komi að
borðinu,“ segir Hreiðar Már
Sigurðsson, forstjóri Kaupþings.
Hann vill ekki tjá sig beint um
kröfu lífeyrissjóðanna um að
fjármálastofnanir verði að flytja
hluta eigna sinna til landsins, eigi
lífeyrissjóðirnir að gera það. „Ég
hef ekki séð þessa kröfu. Við í
Kaupþingi erum hins vegar
tilbúnir til að leggja okkar af
mörkum.“
Fulltrúar bankanna sátu fundi í
viðskiptaráðuneytinu í gær. Ekki
er vitað hvað fram fór á þeim
fundum. - kóp
Forstjóri Kaupþings banka:
Leggjum okkar
af mörkum
KLÁRIR Í SLAGINN Hreiðar Már og
Sigurður Einarsson funduðu með ráð-
herrum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
EFNAHAGSMÁL Slæmt efnahags-
ástand hefur alvarlegar fjárhags-
legar afleiðingar fyrir fjölda
öryrkja, sjúklinga og ellilífeyris-
þega, segir í ályktun aðalfundar
Öryrkjabandalags Íslands, sem
skorar á stjórnvöld að hækka
bætur almannatrygginga „til að
fólk geti lifað mannsæmandi lífi“.
ÖBÍ telur nýtt örorkumatskerfi
sem stefnt er á að taka upp um
áramótin óraunhæft og hvetur til
endurskoðunar þess. Þá þurfi að
koma til móts við þá öryrkja og
ellilífeyrisþega sem minnsta
framfærslu hafa við breytingar á
greiðsluþátttöku almennings í
heilbrigðiskerfinu. - sh
Skora á yfirvöld að laga kjör:
Öryrkjar vilja
hærri bætur
EFNAHAGSMÁL „Nú er ekki tími til
að berja sér á brjóst og heimta
ákveðnar prósentuhækkanir á
launum. Heldur ætti fólk að
standa saman, leggja til hliðar
deilur og vinna að sameiginlegri
lausn á þeim vanda sem að okkur
steðjar,“ segir Eiríkur Jónsson,
formaður Kennarasambandsins
og stjórnarmaður Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins. Eiríkur fór,
ásamt forystumönnum fleiri
lífeyrissjóða og verkalýðsfélaga,
til fundar við ríkisstjórnina í
ráðherrabústaðnum í gær. - kdk
Kennarasamband Íslands:
Vill leggja deil-
ur til hliðar
SPURNING DAGSINS
SÖFNUN „Það var mjög dræm þátt-
taka sjálfboðaliða í þetta skiptið,
hins vegar fengu þeir hvarvetna
góðar móttökur,“ segir Sólveig
Ólafsdóttir, upplýsingafulltrúi
Rauða kross Íslands, um þátttöku í
landssöfnun Rauða krossins „Göng-
um til góðs“.
Öllu fé sem safnast verður varið
til að sameina fjölskyldur í Kongó
sem hafa sundrast vegna stríðs-
átaka.
Sólveig segir að árið 2006 hafi um
það bil 2.500 sjálfboðaliðar gengið í
hús og safnað fé fyrir góðu málefni.
Nú hafi aðeins um eitt þúsund
manns boðið fram krafta sín.
Sólveig segir að kreppa sé þó ekki
skollin á þegar kemur að gjafmildi
fólks. Þeir sem hafi fengið heim-
sókn sjálfboðaliða hafi tekið þeim
vel. „Við vissum að það var á bratt-
ann að sækja vegna þeirrar deyfðar
sem nú ríkir í samfélaginu. Við
héldum samt að það myndi rætast
úr þessu þar sem veðrið var svo
gott,“ bætir hún við.
Samkvæmt upplýsingum Rauða
krossins um klukkan fimm hafði
aðeins tekist að ganga í um 50 pró-
sent húsa í Reykjavík og stærstu
nágrannasveitarfélögunum. Söfn-
unin gekk þó vel á landsbyggðinni.
Þeim sem vildu gefa en fengu
ekki heimsókn frá sjálfboðaliðum
Rauða krossins er bent á að hringja
í söfnunarsíma Rauða krossins 903
1010, 903 3030 og 903 5050. Þá drag-
ast frá 1.000, 3.000 eða 5.000 krónur
á næsta símreikningi. Símarnir
verða opnir út næstu viku. - kdk
Erfiðlega gekk að safna nægum sjálfboðaliðum í landssöfnun Rauða krossins:
Dræm þátttaka en góðar viðtökur
LEGGJA SITT AF MÖRKUM Regína Bjarna-
dóttir gekk til góðs ásamt ófæddu barni
sínu og fimm ára gamalli dóttur sinni
Elínu Kötlu Henrysdóttur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R