Fréttablaðið - 05.10.2008, Page 22
5. október 2008 SUNNUDAGUR4
Menntasvið
Hólabrekkuskóli auglýsir í eftirtaldar stöður
vegna fæðingarorlofs:
• Umsjónarkennari í 5. bekk
• Stuðningsfulltrúi
• Einnig auglýsir Hólabrekkuskóli eftir kennara
í forfallakennslu
Upplýsingar um stöðurnar gefur skólastjóri Hólabrekkuskó-
la Hólmfríður G. Guðjónsdóttir í síma 557 4446
Á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf er að fi nna
nánari upplýsingar og umsóknarfrest. Þar er einnig hægt
að sækja um.
Laun eru skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðko-
mandi stéttarfélög.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að
vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.
is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 411 1111 færð þú allar upplýsingar um þjónustu
og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Hólabrekkuskóli
Nýtt bifvélaverkstæði á stór-höfuðborgarsvæðinu óskar eftir aðila
til að starfa sem rekstrarstjóri.
Viðkomandi sér um allan daglegan rekstur, mannaráðningar
og uppbyggingu. Verkstæðið er vel staðsett og hefur m.a.
þjónustuumboð fyrir stórt bílaumboð. Reksturinn býður upp
á allt að 8-10 vinnustöðvar, smurþjónustu, hraðþjónustu
auk dekkjasölu. Hluthafarnir styðja vel við uppbyggingu og
skipulag rekstursins en koma ekki að daglegum rekstri.
Um er að ræða mjög spennandi tækifæri fyrir kröftugan
bifvélavirkja með rekstrarbakgrunn sem vill koma af stað
eigin rekstri í samvinnu við sterka aðila.
Mikilvægt er að viðkomandi sé vel tengdur og tilbúinn til
að leggja á sig mikla vinnu við uppbyggingu starfseminnar.
Viðkomandi býðst jafnframt að gerast hluthafi og öðlast
forkaupsrétt í fyrirtækinu.
Umsóknum skal skila til Fréttablaðsins fyrir 15. október,
merktar „nýtt bílaverkstæði - spennandi tækifæri“.
Rafrænar umsóknir skulu sendar á netfangið box@frett.is,
merktar „nýtt bílaverkstæði“.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Bifvélavirkjameistari – spennandi tækifæriLEIÐTOG
I
Upplýsingar um störfin og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS,
Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00.
Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is.
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum
verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa
um 750 manns, víðsvegar um landið
sem og erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem
var stofnað árið 1970 og hefur annast
ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór-
iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð
auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög,
fyrirtæki og einstaklinga.
Framkvæmdagleði í fyrirrúmi
TRÉSMIÐIR
ÍSTAK óskar eftir að ráða trésmiði til starfa.
Um er að ræða framkvæmdir í Reykjavík og nágrenni.
Æskilegt er að umsækjendur hafi einhverja starfsreynslu.
Möguleiki er á húsnæði fyrir utanbæjarfólk.
Næg vinna í boði.
PÍPULAGNINGAMAÐUR - GRÆNLAND
Vegna byggingar vatnsaflsvirkjunar við Sisimiut á Grænlandi óskar
ÍSTAK eftir að ráða pípulagningamann til starfa.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega.