Fréttablaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 23.11.2008, Blaðsíða 2
2 23. nóvember 2008 SUNNUDAGUR FÖÐURLAUS SONUR NÍU MÆÐRA Fæðing út um eyra og föðurlaus sonur níu mæðra eru dæmi um furður sem fjallað er um í þessari skemmtilegu bók eftir Jón Björnsson. D Y N A M O R E Y K JA V ÍK „Jóni te kst vel upp. Frá sagnir h ans eru skor inortar, lifandi, léttar og oftast bráðfyn dnar.“ ÞH, Mbl. JÓHANNESARBORG, AP Kofi Annan, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafa hætt við að heimsækja Simbabve þar sem þeim var neitað um vegabréfs- áritun til landsins. Annan og Carter ætluðu að heimsækja Simbabve ásamt Graca Machel, eiginkonu Nelsons Mandela. Þau eru öll hluti af hópi sem kallar sig The Elders, „Hinir eldri“, sem reynir að vinna að lausnum á átökum í heiminum. Stjórnvöld í Simbabve segjast ekki hafa lagt stein í götu þremenninganna. - kh Kofi Annan og Jimmy Carter: Synjað um vegabréfsáritun BUENOS AIRES, AP Fyrrverandi lögregluforingi í Argentínu, sem grunaður var um að hafa framið glæpi gegn mannkyninu, svipti sig í gær lífi í beinni útsendingu. Lögregluforinginn, Mario Ferreyra, var sakaður um að hafa stundað mannrán og pyntingar þegar herstjórnin var við völd í Argentínu á árunum 1976 og 1983. Í sjónvarpsviðtali, sem var sent út í beinni útsendingu rétt við heimili hans í héraðinu Tucuman í norðurhluta landsins, lýsti lögregluforinginn sig saklausan af meintum glæpum. Lögreglan var á leið að handtaka hann þegar Ferreyra sagðist elska konuna sína og dró því næst upp skamm- byssu og skaut sig. - kh Argentínskur lögregluþjónn: Svipti sig lífi í sjónvarpsviðtali STJÓRNMÁL Guðni Ágústsson, fyrr- verandi formaður Framsóknar- flokksins, var heiðursgestur á morgunfundi sem haldinn var á Klörubar á Ensku ströndinni á Kanaríeyjum. Að sögn fundar- gesta sem Fréttablaðið hafði sam- band við sagði Guðni meðal ann- ars að hann bæri fyllsta traust til Geirs H. Haarde forsætisráðherra til að leiða þjóðina út úr þessum þrengingum sem nú er við að etja. Eins sagðist hann treysta forsætis- ráðherra til þess að láta menn sæta ábyrgð þegar sá tími kæmi en nú væri ekki tími til að leita sökudólga. Hann ítrekaði það að hann væri hættur í pólitík og sagðist myndu gera betur grein fyrir þeirri ákvörðun þegar hann hefði hvílt sig. Sturla Þórðarson, sem stendur fyrir þessum morgunverðarfund- um á Klörubar, segir að á milli 350 til 400 manns hafi mætt á fundinn í gærmorgun og hafi góður rómur verið gerður að ræðu Guðna. Annar fundarmaður segir að þó hafi nokkrum fundargestum verið heitt í hamsi. - jse Guðni Ágústsson var heiðursgestur á fundi á Klörubar á Kanaríeyjum: Segist treysta Geir H. Haarde Á MORGUNFUNDI Á KLÖRUBAR Í GÆR Guðni Ágústsson var heiðursgestur á fjölmennum morgunfundi á Klörubar á ensku ströndinni á Kanaríeyjum í gær. OFBELDI Íslenskur fjölskyldufaðir á sextugsaldri var á dögunum dæmdur fyrir tilraun til að nauðga tíu ára gamalli stúlku í nálægð við Stavangur í Noregi. Þá var honum gert að greiða stúlkunni hundrað þúsund norskar krónur. Maðurinn sat grímuklæddur fyrir stúlkunni snemma morguns í skógi á milli tveggja þorpa nærri Stavangri í Noregi. Stúlkan hjólar þá leið daglega á leið til skóla. Maðurinn hafði um nokkurra daga skeið fylgst með börnum á leið til skóla og komist að raun um að stúlkan var yfirleitt sein á ferð. Fyrir dómi lýsti maðurinn því þegar hann stoppaði stúlkuna og sagði: „Sæl vina mín, hvað heitir þú?“ Þá hafi hann beðið hana að koma með sér inn í skóginn. Þegar hún neitaði því dró hann upp hníf, greip fyrir vit stúlkunnar og bar hana inn í skóginn. Þar afklæddi hann stúlkuna. Þegar hann var að klæða sjálfan sig úr buxunum tókst henni að flýja. Stúlkan hljóp fyrst heim til nágranna sinna sem reyndust ekki heima. Þá hljóp hún alla leið heim til sín, um tíu mínútna leið. Fyrir réttinum sagði móðir stúlkunnar hana eiga afar erfitt eftir þessa reynslu. Hún velti því meðal ann- ars stöðugt fyrir sér hvort maður- inn hafi ætlað sér að myrða hana. Það tók lögregluna tvær vikur að finna manninn. Hann var fyrst yfirheyrður sem vitni í málinu. Þá sagðist hann ekkert hafa séð óvenjulegt. Lögreglan bar svo kennsl á hann með DNA-sýni á hnífnum sem hann hafði notað, en honum hafði hann týnt í skógin- um. Þegar maðurinn var handtek- inn fannst barnaklám á heimili hans. Odd Kristian Stokke, blaðamað- ur hjá Stavanger Aftenposten, fylgdist með réttarhöldunum. Hann segir manninn hafa horft niður mestallan tímann. Auðsýni- legt hafi verið að hann skammað- ist sín. Komið hafi þar fram að réttargeðlæknir segði hann ekki veikan á geði. Hann væri hins vegar með óvenjulega lága greindarvísitölu. Þá kom fram að hann hefði sjálfur lent í kynferðis- legri misnotkun sem barn. Árið 1978 var maðurinn dæmd- ur fyrir nauðgun hér á landi. Hann hefur verið búsettur í Noregi í mörg ár og hefur ekki áður verið dæmdur fyrir sambærileg brot þar. Hann er giftur íslenskri konu og þau eiga tvö börn. holmfridur@frettabladid.is Íslenskur níðingur dæmdur í Noregi Íslenskur vörubílstjóri gerði tilraun til að nauðga tíu ára gamalli stúlku í Sta- vangri. Fyrir það var hann dæmdur í þriggja ára og níu mánaða fangelsi. Hann hafði verið dæmdur fyrir kynferðisbrot hér á landi fyrir þrjátíu árum. LÖGREGLAN Í STAVANGRI íslenskur maður sat grímuklæddur fyrir tíu ára gamalli stúlku í skógi nálægt Stavangri í Noregi. Hann var á dögunum dæmdur fyrir tilraun til nauðgunar. MYND/HÅKON VOLD MÓTMÆLI „Þetta var hópur af ungu og reiðu fólki og það má vel vera það, ég skil það mjög vel,“ sagði Álfheiður Ingadóttir þegar hún var að koma af mótmælum við lögreglu- stöðina við Hlemm í gær, þar sem handtöku Hauks Hilmarssonar var mótmælt. Hún hringdi á sjúkrabíl og hlúði að mótmælendum sem höfðu fengið á sig piparúða sem lög- reglan spreyjaði til að koma mót- mælendum út af lögreglustöðinni. Aðspurð hvort henni þætti mót- mælendur hafa gengið of langt sagði hún, „mér finnst lögreglan hafa gengið of langt. Það er algjör- lega ólíðandi að fólki sé kippt úr umferð fyrir að mótmæla eins og gert var í tilfelli þessa unga manns. Ég skil því vel reiði fólksins, þetta eru félagar hans sem ofbýður þess- ar aðfarir. Það að handtaka mann- inn með þessum hætti daginn fyrir útifund er eins og hefndaraðgerð, það er líka ögrun og slík vinnubrögð eru aðeins til þess fallin að ýta undir reiði fólks.“ Hún sagðist ennfremur óttast að reiði fólksins í þjóðfélaginu ætti eftir brjótast út í frekara mæli. - jse Þingmaður Vinstri grænna var við mótmælin við lögreglustöðina í gær: Segir lögreglu ganga of langt FR ÉTTA B LA Ð IÐ /D A N ÍEL ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR Þingmaðurinn hlúði að mótmælendum sem höfðu fengið á sig piparúða í mótmælunum við lögreglustöðina í gær. Hún segir lögreglu hafa gengið of langt. MÓTMÆLI Jón Sigurðsson forseti var klæddur í bleikan kjól á samstöðufundi á Austurvelli í gær. Neyðarstjórn kvenna stóð fyrir gjörningnum. Átti hann að minna á að frá upphafi byggðar á Íslandi hafi konur ávallt verið helmingur þjóðarinnar. Svo sé enn í dag. Því vilji konur að karlar og konur fari hér eftir jafnt með völdin á öllum sviðum samfélagsins. Neyðarstjórnin var stofnuð þann 28. október að frumkvæði kvenna sem þótti nóg um ástandið og vildu efla rödd kvenna í umræðunni. - hhs Neyðarstjórn kvenna: Jón varð Jóna JÓNA SIGURÐARDÓTTIR Jón Sigurðsson forseti var klæddur í bleikt á Austurvelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ / DANÍEL Séu ekki í dagvist í jólafríi Starfsmenn frístundar grunnskóla Akureyrarbæjar segja að börnum sé ekki hollt að hafa frístundina opna á þeim dögum sem skólahald liggur niðri vegna jóla- og páskafría. Í erindi starfsmannanna til skólanefndar Akureyrar segir einnig að þeir séu óánægðir með misræmi sem sé milli leikskóla og frístunda hvað varðar starfsdaga. AKUREYRI Siggi, ertu þá farinn að falla í fjöldann? „Það er undarleg tilfinning að vera ekki lengur eini reiði maðurinn á landinu.“ Sigurður Harðarson, pönkari og hjúkr- unarfræðingur, hefur löngum staðið fyrir hvers kyns mótmælum og andófi. MÓTMÆLI Laganeminn Katrín Oddsdóttir hreif mannfjöldann með sér á mannmörgum mótmælafundi á Austurvelli í gær. Hún var ein þriggja ræðumanna sem þar komu fram. Katrín sagði meðal annars ríkisstjórnina hafa brotið mannréttindi Íslendinga þegar skrifað var undir lánabeiðni til Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. Þá væri það ekki ákvörðun þeirra Ingibjargar Sólrúnar og Geirs Haarde hvort gengið yrði til kosninga, eins og þau hafa sagt ekki tímabært. Hún lauk máli sínu með hrópunum „Góðir Íslendingar, við látum ekki kúga okkur“ og uppskar mikinn fögnuð viðstaddra. - hhs Sjöundi laugardagurinn: Mótmælendur gerast háværari KATRÍN ODDSDÓTTIR SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.