Fréttablaðið - 23.11.2008, Side 30

Fréttablaðið - 23.11.2008, Side 30
6 matur 100 g Hagvers heilar möndlur með hýði 150 g Odense núggat Hunang Green&Black´s 70 prósent súkkulaði. Smyrjið möndlurnar með hunangi, helst með fingrunum svo að hunangið fari vel á möndl- urnar. Setjið þær á bökunar- pappír inn í ofn á plötu og ristið við 180°C í 7 til 10 mínútur. Takið möndlurnar út og látið kólna. Myljið ristuðu möndlurnar með kökukefli og blandið sallanum við núggatið. Kælið blönduna. Bræðið því næst súkklaðið, búið til kúlur úr núggat-möndlublönd- unni og dýfið kúlunum í brætt súkkulaðið. Skreytið að vild. MÖNDLU KONFEKT Ég lærði bakaraiðn á Íslandi og fór svo til Kaup-mannahafnar í konditorínám og sérhæfði mig í kökum, eftirréttum og konfekti,“ segir Halldór, en hann hefur kennt handtökin við konfektgerð í nokk- ur ár og segir áhugann á heimagerðu konfekti hafa aukist. „Fólk er að útbúa konfekt í jólagjafir og fyrir sjálft sig á aðventunni. Það er til dæmis mjög sniðugt fyrir börn að gera konfekt handa afa og ömmu í jólagjöf. Þá þarf bara að athuga að láta þau ekki vinna með líkjöra í fyllingunum. Ég hef séð um konfektnámskeið Húsa- smiðjunnar undanfarin fimm ár og aðsóknin hefur alltaf verið góð en er sérstaklega mikil í ár. Fólk hefur meiri áhuga núna á að búa til sjálft með tilliti til ástandsins í dag.“ Vinsælustu konfektfyllinguna segir Halldór tví- mælalaust vera hunangs-möndlufyllingu. Hún sé ein- föld í framkvæmd og bragðgóð en uppskrift að henni fylgir hér á síðunni. - rat Heimagert konfekt vinsælt Halldór Kr. Sigurðsson, sérfræðingur í konfektgerð, segir að heimagert konfekt 1. Ristaðar möndlur í hunangi fylla eldhúsið jólailmi. 2. Gott er að nota kökukefli til að mylja möndlur í fínan salla. 3. Bráðið súkkulaði er ómissandi yfir alla konfektmola. 4. Hunangs-möndlufyllingin er vinsælust í konfektgerð og molarnir eru sniðugir sem jólagjöf handa vinum og vandamönnum. 5. Einfalt er að búa til kúlur úr konfektsallanum en það getur verið gaman að nota mót til að forma fallega mola. 1 2 3 4 5 FRÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI Halldór tekur að sér að kenna hópum handtökin í konfekt- gerð. Áhugasamir geta haft samband við hann á netfangið www.halldorkrs@internet.is. E Peugeot framleiddi sína fyrstu piparkvörn 1840. Verkið í kvörnunum er ennþá það áreiðanlegasta á markaðinum og ástæðan fyrir því að Peugeot býður 30 ára ábyrgð. Peugeot kvarnir fást hjá: Kokku á Laugavegi 47, Duka Kringlunni, Tekk Company Bæjarlind 14-16 í Kópavogi, Pottum og Prikum á Strandgötu 25 á Akureyri og Cabo við Hafnargötu 23 í Keflavík. Svo er auðvitað hægt að kaupa þær á kokka.is Peugeot, skoðaður til 2038

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.