Fréttablaðið - 23.11.2008, Side 6

Fréttablaðið - 23.11.2008, Side 6
6 23. nóvember 2008 SUNNUDAGUR MÓTMÆLI „Hann var handtekinn út af því að hann var eftirlýstur hjá Innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar á Blönduósi,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborg- arsvæðinu um handtöku á Hauki Hilmarssyni í fyrradag. „Innheimtumiðstöðin annast fullnustu á sektardómum og slíku. Nú og ef menn sinna ekki þeim kvaðningum sem þeir fá þaðan þá eru þeir skráðir eftirlýstir hjá lögreglu og eru síðan handteknir hvar sem til þeirra næst.“ Haukur hlaut dóm fyrir mótmæli við álverið á Reyðarfirði árið 2006. Að sögn Stefáns nam sektin um 200 þúsund krónum og greiddi lögmaður hans hana í gær og var þá Hauki sleppt í framhaldinu. „Það er þannig með þennan mann líkt og aðra að ef hann greiðir sekt, sem er aðalrefsingin, þá þarf hann ekki að afplána vararefs- inguna.“ Hann segir handtökuna ekki tengjast útifundinum í gær. „Hefðum við eitthvað haft um þetta að segja hefðum við líklega ákveðið að kæla þetta en það er bara þannig að við verðum að bregðast við gagnvart hverjum og einum eins og lög gera ráð fyrir; eitt verður yfir alla að ganga. Það væri líka undarlegt að kippa einum mótmælenda úr umferð til að reyna að koma í veg önnur mótmæli, það sjá það allir að það væri ekki líklegt til árangurs.“ - jse Lögreglustjóri segir handtöku Hauks ekki tengjast útifundinum: Hefði kosið að kæla málið STEFÁN EIRÍKSSON EGGJAKAST Eggjum var kastað í lögregluna. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL MÓTMÆLI Mikil reiði var í mótmælendum sem reyndu að ryðjast inn í lögreglustöðina til að frelsa Hauk. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Auglýsingasími – Mest lesið Finnst þér breytingar á eftir- launafrumvarpinu ganga nógu langt? Já 17% Nei 83% SPURNING DAGSINS Í DAG Fannst þér mótmælendur ganga of langt í mótmælunum við lögreglustöðina við Hlemm? Segðu skoðun þína á vísir.is MÓTMÆLI Mótmælandinn Haukur Hilmarsson boðaði „algjöra, almenna og tafarlausa byltingu“ eftir að honum var sleppt úr fangelsi um sexleytið í gær- kvöldi. Ónefndur velgjörðamaður Hauks greiddi fyrir hann sektina og því var honum sleppt. Haukur sagði það hafa verið erfiða ákvörðun að þiggja greiðsluna. „Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera því ég er algjörlega á móti því að borga þessa sekt,“ sagði hann. Eina ástæðan væri að honum skildist að fólk væri í hættu fyrir framan húsið. „Ég vildi ekki að gott fólk myndi slasa sig við að bjarga einhverj- um tittlingi. Heldur frekar að þessi kraftur yrði notaður í að knésetja þessa ríkisstjórn.“ Hann ætlar að kanna réttar- stöðu sína enda telur hann hand- töku sína hafa farið fram á ólög- legan hátt. Hann segir lögregluna hafa tjáð sér að hann væri eftir- lýstur maður þegar hann var handtekinn. Það hafi hann ekki haft hugmynd um sjálfur. „Já, og mér finnst að allir ættu að halda áfram aðgerðum,“ segir Haukur, spurður hvort hann ætli að halda áfram aðgerðum. Hann er þó ekki tilbúinn að sýna andlit sitt. „Ég vil ekki verða persónu- gervingur þessa máls. Mér finnst að það eigi að fjalla um málefni.“ - hhs Haukur Hilmarsson losnaði úr steininum í gær eftir fjöldamótmæli: Boðaði byltingu við fögnuð Jón Erlendur Guðvarðarson: Fékk úðann beint í augun „Mig svíður í augun,“ segir Jón Erlendur Guðvarðarson, sem fékk piparúða lögreglunnar beint í andlitið. Honum þótti handtaka Hauks svívirðileg og var því meðal mótmælenda við lögreglustöðina í gær. „Okkur á að vera frjálst að mótmæla og okkur á að vera frjálst að segja skoðun okkar. Með því að taka þennan mann sýndi lögreglan það að við erum ekki frjáls. En fólki á ekki að detta það í hug að við sættum okkur við að mótmælendur séu handteknir.“ - hhs „Út með Hauk, inn með Geir“ hrópuðu mótmælendur frammi fyrir lögreglustöðinni í Reykjavík hástöfum í gær. Þangað safnaðist stór hópur reiðra mótmælenda strax í kjölfar mótmælanna á Austurvelli í gær. Móðir Hauks, Eva Hauksdóttir, talaði frammi fyrir hópnum og var mikið niðri fyrir. Í samtali við blaðamann Fréttablaðsins lýsti hún sögu sonar síns sem hún segir friðsaman aktivista, sem ekki eigi heima í fangelsi. „Hann hefur stað- ið í ýmsum mótmælum, meðal ann- ars fyrir umhverfisvernd og gegn stóriðjustefnunni. Hann tilheyrir mörgum grasrótarhreyfingum. En hann hefur alltaf mótmælt frið- samlega og er aldrei með ofbeldi. Eva var ánægð með stuðninginn sem mótmælendur veittu syni hennar. „Fólk er að verða reitt sýn- ist mér,“ sagði hún. „Mér líður illa yfir hvernig lýðræðinu í okkar landi er fyrir komið. Það er hræði- legt að rödd alþýðunnar skuli vera barin niður. En mér finnst frábært að sjá þau viðbrögð sem þetta vekur. það er greinilegt að fólk er búið að fá nóg af þessu rugli.“ Haukur var látinn laus um sex- leytið. Þá var móðir hans á slysa- deild ásamt öðrum sem fengu á sig piparúða lögreglunnar. holmfridur@frettabladid.is Út með Hauk - Inn með Geir Fimm hundruð manns söfnuðust frammi fyrir lög- reglustöðinni í Reykjavík í gær og kröfðust þess að Haukur Hilmarsson yrði látinn laus. KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.