Fréttablaðið - 23.11.2008, Page 46

Fréttablaðið - 23.11.2008, Page 46
30 23. nóvember 2008 SUNNUDAGUR HVAÐ SEGIR MAMMA? Hvað er að frétta? Gjaldþrot fjármálakerfisins, óstarfhæf ríkisstjórn og 1.400 milljarða króna bak- reikningur vegna bankafyllerísins. Og þeir sem bera ábyrgð sitja sem fastast. Augnlitur: Blár. Starf: Alþingismaður frá og með fimmtudeginum. Fjölskylduhagir: Gift Sigurði E. Vilhelmssyni fram- haldsskólakennara. Eigum tvær stelpur, Snæfríði Unni tveggja ára og Hrafnhildi Ósk átta ára. Hvaðan ertu? Fædd í Reykjavík, ættuð af Suður- landinu og búsett í Vestmannaeyjum. Ertu hjátrúarfull? 7, 9, 13, já. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Law & Order SVU. Uppáhaldsmaturinn: Indverski maturinn sem maðurinn minn eldar. Fallegasti staðurinn: Suðurkjördæmi; Heimaey á fallegu sumarkvöldi, Jökulsárlónið, Þórsmörk, Skóg- ræktarsvæðið í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Bláa lónið, Gullfoss og Þingvallavatn. iPod eða geislaspilari: iPod. Hvað er skemmtilegast? Að sjá hugmyndir manns verða að raunveru- leika. Hvað er leiðinlegast? Að hafa ekkert að gera. Helsti veikleiki: Alltaf allt of mikið að gera. Helsti kostur: Hugmyndarík og framkvæmdaglöð. Helsta afrek: Að gera ekki neitt í tvo mánuði á meðgöngudeildinni á meðan ég beið eftir yngri dóttur minni. Mestu vonbrigðin? Ríkisstjórnin. Hver er draumurinn? Sjálfbært Ísland og fullt af nýjum störfum! Hver er fyndnastur/fyndnust? Siggi minn, alveg ótrúlegt að geta alltaf hlegið að bröndur- unum hans. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Undirferli og óheiðar- leiki. Hvað er mikilvægast? Að fólk hafi vinnu, geti hlúð að sér og sínum og gert áætlanir til framtíðar. HIN HLIÐIN EYGLÓ HARÐARDÓTTIR ALÞINGISMAÐUR Dreymir um sjálfbært Ísland 12.12.1972„Hann er það sem við köllum eðlissterkur. Það er eitthvað sem menn eru fæddir með, held ég. Ég er rosalega stolt af honum, alveg í sjöunda himni. Hann er sérlega góður drengur, staðfast- ur, ákveðinn og með góða lund.“ Sigríður Bjarnadóttir, móðir heimsmeist- arans Páls Logasonar eða Palla fermeters, sem lyfti heilu tonni á HM í kraftlyfting- um. „Á íslenskan mælikvarða er þetta stór auglýsing. Eins viðamikil í framleiðslu og þær verða. En hún telst ekkert risastór á rússneskan mælikvarða,“ segir Samúel Bjarki Pétursson auglýsingaleikstjóri. Leikstjóradúettinn Samúel og Gunnar Páll Ólafsson, sem enginn þekkir undir öðru nafni en Sam- mi&Gunni, hafa nýlokið gerð aug- lýsingar sem rússneskir sjón- varpsáhorfendur fengu barið augum á rússneskum sjónvarps- skjám í gær. Auglýsingin er fyrir fyrirtækið Beeline sem er eitt þriggja langstærstu símafyrir- tækja Rússlands. Auglýsinguna gerðu þeir Sammi&Gunni fyrir hina auglýsingastofuna BBDO sem er sú öflugasta í Rússlandi „Já, við erum að koma með gjaldeyrinn heim strax. Í smá- skömmtum,“ segir Sammi og kímir en þeir félagar hafa áður gert auglýsingu fyrir Rússana en þá var það auglýsing fyrir annað símafyrirtæki sem heitir Mega - phone. Fjórir Rússar komu gagngert til landsins til að vera við tökur auglýsingarinnar en hún var tekin í Landmannalaugum í síðustu viku. „Verið var að líkja eftir jap- anskri laug en þar dvelja ein- hverjir mjög frægir snjóapar. Það er enginn snjór í Japan núna þannig að við endurskópum laug- ina og svo fengum við sent mynd- efni með öpunum sem varð að passa við það sem við tókum. Áhorfandinn á sem sagt að trúa því að þetta sé skotið á sama stað á sama tíma,“ segir Sammi. Og Jónbi Guðmundsson framleiðandi bætir við: „Þessir snjóapar búa einungis í Japan á ákveðnu fjalla- svæði og hanga í svona heitum laugum. Við eltum sem sagt umhverfi þeirra sem er ansi líkt Landmannalaugum. Eddi Eldur smíðaði nokkra steina sem við bættum inn í á staðnum og voilà!, allt virkaði. Svo settum við Svein „Dóa“ Geirsson í hverinn og létum hann spjalla í síma og aparnir bættust við í eftirvinnslu.“ Að sögn Samma voru Rússarnir ótrúlega hrifnir af landinu sem lýsti sér til dæmis í því að saman fóru þeir til Danmerkur til að láta litaleiðrétta filmuna. Þá vildu Rússarnir komast sem fyrst heim. „Og voru þá að tala um Ísland en ekki Rússland.“ jakob@frettabladid.is GUNNI&SAMMI: GERA AUGLÝSINGU FYRIR RÚSSNESKT SÍMAFYRIRTÆKI Rússar í Landmannalaugum SVEINN „DÓI“ GEIRSSON Lætur fara vel um sig í Landmannalaugum en eftir er að bæta hinum japönsku öpum inn í myndina. GUNNI VIÐ LANDMANNALAUGAR Tökum lauk í síðustu viku en Rússarnir sem komu vegna auglýsingarinnar voru yfir sig hrifnir. SAMMI Á „SETTINU“ Auglýsingin er risastór á íslenskan mælikvarða en í Landmannalaugum endurskópu menn laug sem í sækja japanskir snjóapar. Facebook-grúppan „Frægir á ferð“ hefur vakið mikla athygli að undanförnu. Þar má sjá myndir af frægum Íslendingum á ferð í bænum. „Við Gummi kærastinn minn vorum á rúntinum einn laugardaginn og datt í hug að taka myndir af frægum á ferð,“ segir Jón Þór Þorleifsson pródúser. „Við rák- umst á fullt af frægum og settum svo myndirnar sem við tókum á Facebook-síðu sem við stofnuðum sérstak- lega. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og við höfum bæði fengið fleiri myndir frá fólki út í bæ og þeir frægu hafa kommentað á þetta líka. Óskar Jónas- son sagði til dæmis að nú þyrfti hann að fá sér Lexus með dökkum rúðum eftir að við náðum mynd af honum á hjólinu sínu á Hlemmi.“ Önnur fræg fórnarlömb eru meðal annars Lalli Johns, sem var á tali við hettuklædd- an mann við pósthúsið í Austurstræti, Bjarni Ara að fara inn á Skólabrú og Egill og Tinna að koma út úr Melabúð- inni. „Það er engin leið að sjá að þetta eru þau á myndinni og það er þemað hjá okkur: að þetta séu „vondar myndir“. Það má alls ekki sjást vel í fólkið svo þetta sé ekki ein- hver „paparazzi“-fílingur.“ Jón Þór hvetur fólk til að senda sér myndir. „Það er mjög skemmtilegur leikur á rúntinum að taka myndir af frægum. Þetta er bara til gam- ans gert og algjörlega tilgangslaust. Svo viljum við ekki sjá neinar bögg-myndir, fyllirísmyndir eða eitthvað svoleiðis.“ - drg Setið fyrir frægum á ferð SKEMMTILEGUR LEIKUR Á RÚNTINUM Jón Þór Þorleifsson hefur stofnað Facebook-síðu með myndum af frægum á ferð. Í SÍMANUM Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG Jakob Frímann í símanum. „Mér líst ekkert á blikuna. Mér finnst rosalega hallærislegt hvað allt hefur hækkað og svoleiðis,“ segir Kristján Þórðarson, sem landsþekktur er sem útvarpsmað- urinn Stjáni stuð. „Ég verð fertug- ur á næsta ári og var fyrir löngu búinn að ákveða að bjóða konunni minni, henni Soffíu, og bróður mínum og konunni hans til Orlando að skoða Disneyland og fleira. Það var ekkert mál fyrir mig, enda á ég nóg af peningum. En þá kom þessi kreppa og nú veit ég ekkert hvern- ig þetta fer. Mig langar rosalega, en ef dollarinn verður áfram svona hár veit ég bara hreinlega ekki hvernig þetta endar. Maður getur ekki annað en beðið og séð hvernig spilast úr þessu.“ Stjáni nær hinum virðulega aldri hinn 31. maí næstkomandi og áætl- aði að leggja í hann til Florída fjór- um dögum síðar. „Ég hef komið í Disneyland í París og það var mjög gaman. Ég held samt að Disneyland í Orlando sé enn skemmtilegri stað- ur. Ég held bara svei mér þá að það hafi verið draumur minn alla ævi að komast þangað.“ Þótt ferðin sé í uppnámi vegna efnahagshrunsins er Stjáni harð- ákveðinn í að afmælisveislan verði frábær – „Ég er búinn að leigja sal í Stangarhyl og bóka fullt af bönd- um,“ segir kappinn. En hvað með frekari afrek á öldum ljósvakans? „Ég er alltaf að reyna að komast í útvarpið aftur og gefst ekkert upp. Ég hef fengið tilboð frá einni stöð en ég vil ekki vinna kauplaust. Þá sleppi ég því nú frekar.“ - drg Kreppan ógnar Disney- draumi Stjána stuðs HIMINHÁTT GENGI DOLLARSINS ÓGNAR FLÓRÍDAFERÐ Stjáni Stuð með Soffíu eigin- konu sinni. Þróun efnahagslífsins ræður hvort þau komast í Disneyland. FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT MYND VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum af síðu 8. 1. Prince of Persia: Sand of Time 2. Björn Jörundur Friðbjörnsson 3. Hillary Clinton ...ég sá það á visir.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.