Tíminn - 18.09.1983, Page 23
Morthens í broddi fylkingar, tók næst
til við að kyrja um skepnuskap ráða-
manna vestanhafs og austan í nokkrum
nýjum lögum auk laga sem þeir tóku
af nýrri plötu sinni. Hratt og gott
rokkband með áhey.rendur vel með á
nótunum, en undir lokin læddist Megas
svo fram á sviðið og raddaði meðTolIa
lagið Hvíti hesturinn og tók svo alfarið
við söngnum.
Það lá við að sumum vöknaði um
augun að sjá gamla meistarann aftur á
sviðinu í jafn fínu formi og Megás var
þetta kvöld, tvímælalaust maður
kvöldsins að öðrum ólöstuðum. Pró-
gramm hans var blanda af nýju og
gömlu, með gamalt er átt við efni af
Ikarus-plötunni eins og til dæmis hið
ódauðlega lag Krókudílamaðurinn
sem undirritaður getur hlustað á tím-
unum saman og sctt svo aftur á fóninn
morguninn eftir. Megas var klappaður
upp hvað eftir annað og komu þeir þá
fram þrír saman, hann, Tolli og Bergþór
og kyrjuðu gamla slagarann „Ljúfa
Anna...“ og liðið bókstaflega grét af
hamingju eins og Ragga grýla hefði
sagt.
Nýbylgjurokkband þjóðarinnar
número uno Vonbrigði tóku næst til
við að trylla mannskapinn, lög af nýrri
plötu þeirra Kakófóníu mest áberandi
í prógramminu og keyrslan vel til þess
fallin að hressa mannskapinn við enda
veitti ekki af, tónleikarnir orðnir fjög-
urra tíma langir og margir orðnir
þreyttir og framlágir af þeim sökum.
Mistök
Gestir hátíðarinnar frá Bretlandi,
pönksveitin CRASS átti svo lokaorðið
í þessum tónleikum og ekki byrjaði
það gæfulega. Enginn efast um einlæg-
an vilja þeirra til að bæta heiminn og
vinna á móti stríðsrekstri hverskonar
en þeir hafa svo mikið að segja fólki að
erfiðlega gengur að koma því öllu frá
sér svo vel sé.
Það voru grundvallarmistök að láta
þau ekki byrja hátíðina, eða allavega
setja þau framarlega í prógrammið því
eftir fjögurra tima tónleika var fólk
almennt orðið svo þreytt að það hafði
ekki þrek til að skilja í kvikmynd þeirri
sem CRASS sýndi fyrst í tæpan hálf-
tíma, né nennti það að hlusta á eina
stelpuna segja sér til syndanna.
Boðskapur Crass missti því nokkuð
marks af þessum orsökum og er það
miður því þetta er nokkuð merkileg
hljómsveit hvernig sem litið er á málið
og í fyrsta sinn sem hún kemur fram á
tónleikum utan Bretlands.
Undir lokin kom svo allur CRASS
hópurinn fram á sviðið og dembdi yfir
lýðinn hráu rokki sínu með tilheyrandi
flugbeittum textum cn þá hafði sveitin
því miður misst að miklu leyti samband-
ið við áheyrendur vegna upphafsatrið-
anna og leikur þeirra af þeim sökum
ekki eins áhrifamikill og til stóð.
Hvað sem því líður verður tvímæla-
laust að telja þessa tónleika, tonleika
ársins í ár og mætti jafnvel segja
tónleika ársins nokkur ár aftur (og
fram) í tímann. Tónleikar sem eflaust
verða lengi í minnum hafðir og mega
aðstandendur þeirra vera hreyknir af
framtakinu.
- FRI
hliðar við aðalsviðið. Á annarri hæð-
inni var mjög áferðarfallegt rauðhært
dúndur í spennandi sundbol og mink:, í
ýmsum stellingum eftir því sem leið á
kvöldið, pönkari á klósetti með allt
niðrum sig og á hæðinni fyrir ofan voru
Nonni nýlistamaður og vinur hans á
gay-ströndinni, dúlluðu með strand-
bolta í takt við tónlistina.
Hinumegin í salnum var samskonar
svið þar sem sjá mátti nokkrar stúlkur á
baðströnd, hirð Lúðvíks 14.15. eða 16. í
tilheyrandi múnderingum og fyrir ofan
þau svört, kattliðug persóna prýdd
bleikum neonrákum sem teygði sig og
fetti á skemmtilegan hátt.
Flest af þessum atriðum voru á
vegum leikhópsins Svart og sykurlaust
en þeirra framlag til þessarar hátíðar
gerði hana að einni sérstæðustu og
skemmtilegustu rokkhátíðum sem
haldnar hafa Verið hérlendis. Alltaf
eitthvað í gangi, á milli og meðan á
tónlistaratriðunum stóð og var leik-
hópurinn ekki bundinn við þessi svið
heldur skaut meðlimum hans upp hér
og þar í salnum, m.a. var bleik „bjalia'*
með „strandliði" keyrð þvert yfir sal-
inn í einu hléinu.
Kuklað í byrjun
Hljómsveitin Kukl byrjaði þessa
tónleika með þeim Einari Erni Ben-
ediktssyni og Björk Guðmundsdóttur
í broddi fylkingar, tóku m.a. lög af
nýútkominni lítilli skífu sinni, Söngull
og Pönk fyrir byrjendur. Nonni og
kompaný á gay-ströndinni fengu
eitthvað fyrir sinn snúð því tónlist
Kukl bar á sér suður-amrískan keim.
Áferðarfallegt rokk hlaðið blásturs-
hljóðfærum. Leitt að þessi hljómsveit
skuli vera augnabliksfyrirbrigði eins
og gefið hefur verið í skyn því þetta er
■ Tóti og Jói í ham.
■ CRASS hópurinn kýiir boðskap sínum gegnum hiustir áheyrenda
greinilega toppurinn á „and-tónlist-
inni" í dag, hvað varðar höfuðborgar-
svæðið..
Bubbi, kyntákn þjóðarinnarnúmero
uno og Egó tróðu upp að loknu
kuklinu. Bubbi tilkynnti strax að ekk-
ert nema ný lög yrðu á dagskrá þeirra,
mikíð rétt þótt sum þeirra hafi maður
heyrt á öðrum tónleikum með þeim
eins og Strákarnir á Borginni og
Leibbi dóni. Egó er nú sem óðast að fá
á sig fasta mynd og falla hinir nýju
menn, hljómborðsleikarinn ogtromm-
arinn æ betur inn í heildarmyndina,
sérstaklega er Jökull trommari orðinn
traustur og vil ég nefna næst síðasta
lagið sem Egó tók en það byrjaði með
geysiöflugum og skemmtilegum
trommuleik. Ef maður á að reyna að
lýsa þessu dettur manni helst í hug vel
tjúnuð M351 Cleveland vél á rólegri
siglingu eftir Ástarbrautinni, síðan
„hrærðu" Beggi og Rúnar strengjunum
saman við og kraftmikill söngur Bubba
kom svo eins og súkkulaðiskreytingin
á rjómakökuna.
Eftir að Egó hafði lokið leik sínum
við mikinn fögnuð áhorfenda komu
einhverjir gestir friðarhátíðar fram og
héldu ávörp en þá notaði maður tæki-
færið til að skreppa fram og næla sér í
einn heilnæman jurtaborgara í greiða-
sölunni.
Megas:
Maður kvöldsins
Hljómsveitin Ikarus, með Tolla