Réttur - 01.06.1942, Blaðsíða 11
Athafnastefnuskxá hins þýzk-ítalska bandalags
má túlka með eftirfarandi atriöum: kynflokkahat-
ur; drottnun „úrvals“ þjóða; undirokrm annarra
þjóða og rán á löndum þeirra; atvinnuleg ánauð
undirokaðrai þjóða og eyðing á þjóðarauði þeirra;
afnám lýöræðislegra frelsisréttinda; stofnun nazista-
stjórnar hvaðanæva.
Bandalag Englands, Ráðstjómarríkjanna og Ame-
ríku hefur á sinni athafnastefnuskrá þessi atriði:
afnám forréttinda, er stafa af kynflokkum, — jafn-
rétti þjóða og friöhelgi landa þeirra; frelsun undir-
okaðra þjóða og endurheimt fullveldis þeirra; rétt-
ur allrai þjóða til að haga málum sínum að eigin
vild; fjárhagsleg aðstoð handa þjóðum þeim, sem
hart hafa verið leiknar og hjálp handa þeim til að
rétta við efnahagslega; endurheimt lýðræðislegra
frelsisréttinda; eyöilegging hins nazíska stjórnarfars.
Sú hefur oröið afleiðing þeirrar stefnuskrár, er
bandalag Ítalíu og Þýzkalands hefur beitt sér fyrir,
að öll hin hernumdu lönd Evrópu — Noregur, Dan-
mörk, Belgía, Holland, Frakkland, Pólland, Tékko-
slóvakía, Júgóslavía, Grikkland og hin hernumdu
hémö Ráðstjómarríkjanna — loga af hatri til harö-
stjórnar ítalíu og Þýzkalands, gera allt sem í þeirra
valdi stendur til þess að vinna Þýzkalandi og banda-
mönnum þess mein og bíða eftir væntanlegu tæki-
færi til þess að hefna sín á kúgurum sínum fyrir
ofbeldið og svívirðu þá, er þau verða að þola.
í þessu sambandi má geta þess, að það er eitt
af einkennum líðandi stundar, aö einangrun hins
þýzk-ítalska bandalags vex hröðum skrefum, aö æ
meira gengur á siðferöilegar og pólitískar innstæður
þess, aö veiklun þeirra og innanmein fara vaxandi.
En athafnastefnuskrá sú, sem bandalag England,
'Ráðst j ómarrík j anna og Ameriku hefur aðhyllst,
hefur borið þann árangur, að öll hernumin lönd
75