Réttur - 01.06.1942, Blaðsíða 20
ins eigi hægari til jafnaðar en sókn Þjóðverja í sum-
ar. Er ekki annað sjáanlegt en allur Kákasíuher
Þjóðverja sé í yfirvofandi hættu svo og meginher
þeirra á Donvígstöðvunum.
Hér hefur ekki verið rætt um sökn þá, sem Rúss-
ar hófu í lok nóvembermánaðar á miðhluta vígstööv-
anna. Sú sókn hefur ekki farið fram meö slíkum
hraða sem hin, enda eru þarna allar stöðvar ramm-
lega víggirtar, og hafa Þjóðverjar getáð unnið þar
að v rkjagerö 1 heilt ár. Þó hefur rauði herinn lík-
lega unnið mesta sigur sinn í þessari styrjöld á þeim
vígstöðvum með töku ígulvirkisins Velikíe Lúkí, sem
féll á nýársdag. Með töku þeirrar borgar virðist
rauði herinn hafa skapað sér aðstöðu til að sækja
suður til Nevel og Vitebsk, krækja suövestur fyrir
Smolensk og umkringja jíessa aöalherstöð Þjóðverja
á miðvígstöðvunum. Með samtímasókn aö sunnan,
frá Orel vestur til Brjansk, yröi þá allur meginher
Þjóðverja á miðvígstöðvunum tekinn 1 tröllaukna
tangargreip, sem lokaöist í Smolensk eða þar um
slóðir. Þetta væri djarfleg hernaöaráætlun og stór-
kostleg, en þó hvorki djarflegri né störkostlegri en
sú, sem Rússar eru að framkvæma um þesar mundir
á suöurvígstöðvunum og talsverðar líkur eru til, að
takist: að innikróa Donherinn og Kákasíuherinn með
allsherjarsókn til Rostovborgar. En röksemd fyrir
því, að þetta þyrfti ekki að vera alveg óhæfileg
bjartsýni, gæti þaö verið, að rússnesk blöð hafa nú
um áramótin lýst yfir því, að vetrarsókn Rússa sé
í rauninni rétt á byrjunarstigmu. Ef ófarir Þjóðverja
á suðurvígstöðvunum eru aðeins upphafið, hvað
mun þá vera, þegar sjálf höfuðsóknin hefst, Auk
þess hefur þáð komið mjög greinilega í ljós, að rauði
herinn er stórum mun hreyfanlegm og hraðfærari
að vetarlagi en þýzki herinn. Þaö hefur gert honum
fært að beita þeirri hernaöaraöferð að rjúfa sam-
84