Réttur - 01.06.1942, Blaðsíða 25
sveitakjördæmum leit þorri kjósenda enn svo á aS
baráttan stæöi milli íhalds og Framsóknar. Um ann-
að væri ekki að velja.
Skæruhernaðuriim.
Verkföllin í janúar brutu þaö skarð í gerðardóms-
lögin, sem átti eftir að ríða þeim aö fullu. í lok þess-
arar verkfallsbaráttu skrifaði Þjóðviljinn, málgagn
Sósíalistaflokksins, eftirfarandi í forystugrein 12.
febrúar þ. á.:'
„Baráttan fyrir afnámi gerðardómslaganna og op-
inberum viðurkenndum kjarabótum verkalýðsins
verður nú tvíþætt, í stað þess, aö síöasta hálfan ann-
an mánuðinn hefur hún verið ein, háð af iðnfélög-
unum.
Baráttan fyrir afnámi gerðardómslagaima færist
inn á hið pólitíska sviö og hvert einasta verkalýðs-
félag landsins verður aö taka þátt í henni.......
.... Hina pólitísku baráttu verður að herða um all-
án helming nú, er þing kemur saman.
Hinn þáttur baráttunnar, — fyrir bættum kjör-
um á öllum sviðum, — veröur nú haður hvar sem
verkalýðurinn vinnur og starfar. Það verður barátta
útlaganna, sem bannað hefur verið áð beita sam-
tökum sínum í því skyni. Einræöisstjórn milijóna-
mæringanna., sem heldur að hún geti brotið allt
imdir sig með ofstopa sínum, á nú eftir að sjá nýja
hlið á baráttu verkalýðsins: óþreytandi skæruhern-
að, þar sem hugvit, þrautseigja og fórnfýsi verka-
lýðsins mun knýja fram kjarabætur og grafa grunn-
inn undan yfirdrottnun einræöisþjösnanna.........“
„........Verkalýðurinn flytur sig nú í ný virki og
bregður tveim öðrum bröndum. Thorsklíkan skal sjá
þaö, að hann á eftir aö sigra með þeim“.
Verkalýðurinn fylgdi þessari stefnu, beitti þessari
bardagaaðferð og sigraði.
89