Réttur - 01.07.1966, Blaðsíða 18
218
RÉTTUR
mótsögn við lífshagsmuni þjóðarinnar, byltingu alþýðu undan
heimsvaldaoki og lénsskipulagi. Þeim er ætlað að sundra samheldni
þjóðarinnar og stofna í voða málstað hinnar þjóðlegu lýðræðis-
byltingar. : ■ 1 '
Nasution hershöfðing.i og fylgifiskar hans lýsa því yfir af lýð-
skrumi miklu að þeir séu „vinstrimenn“, „gegn heimsvaldastefnu“,
„gegn lénsskipulagi“ o. s. frv., en fjöldamorðin á kommúnistum og
cðrum framfarasinnum sýna hið rétta innræti þeirra. Þeir eru að
íyðja brautina fyrir nýja nýlendustefnu í Jndónesíu, einkum þá
bandarísku.
Hið hernaðarlega og pólitíska samsæri í Indónesíu — að undir-
lagi og með stuðningi heimsvaldasinna í Bandaríkjunum — er hluti
af almennri áætlun sem beint er gegn þjóðfrelsishreyfingunni í
heiminum, gegn verkalýð heimsins, lýðræði og sósíalisma. Það er
itátengt þeim ráðagerðum í Washington að færa út stríðið í Víet-
nam, enda hefur Kommúnistaflokkur Indónesíu ávallt haft forgöngu
í stuðningi framfarasinnaðra afla þar í landi við þjóðfrelsisbarátt-
una í Víetnam og gegn heimsvaldastefnu Bandaríkjanna.
Um allan heim láta frelsisunnandi menn í ljós samúð með Komm-
únistaflokki Indónesíu og öðrum ættjarðarvinum, mótmæla kröftug-
lega þeirri ógnaröld sem gengur yfir landið og ólöglegu banni á
slarfsemi hans. Þeir krefjast að manndrápum og ofsóknum verði
tafarlaust hætt og þeim kommúnistum og lýðræðisvinum sem nú
sitja í fangelsum gefið frelsi þegar í stað.
Frelsisunnandi fólk um allan heim mótmælir einnig harðlega
íhlutun Bandaríkjanna, í skjóli afturhaldssamra hershöfðingja inn-
lendra, um innanlandsmál Indónesíu í þá veru að beygja þjóðina
af braut baráttunnar gegn heimsvaldastefnunni.
Lítill hópur yfirmanna í hernum — kenndur við 30. september —
ætlaði sér að hindra þetta samsæri og valdatöku hins afturhaldssama
herráðs og vernda byltinguna. Hægrisinnaðir hershöfðingjar —
undir því yfirskyni að þeir væru að brjóta á bak aftur þessa hreyf-
ingu — skipulögðu múgmorð og ofsóknir gegn kommúnistaflokki
landsins.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið í 45 ára sögu flokksins að hann hefur
orðið fyrir ógnarárásum afturhaldsins. Hann var ofsóttur i tíð
nýlendustjórnar Hollendinga, á hernámsárum japönsku fasistanna
og innlendrar afturhaldsstjórnar fyrst eftir sjálfstæði landsins. En
hann hefur staðizt hverja raun og ávallt komið úr eldinum stálsettari
en áður. Og þrátt fyrir fyrirætlanir erlendra heimsvaldasinna og