Morgunblaðið - 10.03.2007, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MARS 2007 45
flakaði fiskinn. Saman pökkuðuð þið
svo matnum niður í kassa með svo
mikilli nákvæmni og umhyggju að
það var aðdáunarvert. Þú varst
ótrúlega duglegur að bjarga þér eft-
ir að Jónína veiktist og þú hugsaðir
svo vel um hana á meðan hún var
heima. Mér fannst það stundum dá-
lítið fyndið að maður, sem alltaf
fékk sinn mat á diskinn og virtist al-
gjörlega bjargarlaus á þeim sviðum,
reyndist síðan flottasti kokkur og
fullkominn húskarl. Auðvitað varst
þú bara eins og aðrir karlar á þess-
um aldri og háður tíðarandanum.
En þú skemmtir þér nú svolítið þeg-
ar ég var að spyrja þig hvort þú
myndir treysta þér til að sækja
matinn í pottinn á eldavélina ef við
Jónína færum á flakk. Jú, jú, þú
sagðist hafa verið kokkur til sjós í
mörg ár og gætir líklegast náð í
matinn sjálfur, annars yrðir þú bara
að svelta. Svo brunuðum við Jónína
eitthvað út í buskann og hún hafði
endalausar áhyggjur af því hvort þú
hefðir getað borðað eitthvað. Eftir
að þú varst orðinn einn gekk lífið
mikið út það að borða góðan mat,
hugsa um garðinn og hafa hann fal-
legan. Eins að fara í göngutúr niður
á Brjót og hitta karlana sem voru að
koma að landi eftir veiðiferð dags-
ins. Þú fylgdist vel með aflabrögð-
um og öllum þessum nýju bátum
sem komu til Bolungarvíkur. Það
verður víst alveg sama hvaða bátur
kemur í Bolungarvíkurhöfn, það
verður enginn bátur eins og Ránin
þín, hrein og strokin, stífpússuð og
fín. Þú varst svo mikið snyrtimenni,
alltaf flottur í tauinu eins og það er
kallað og skórnir alltaf eins og nýir,
jafnvel þótt þeir væru komnir vel á
þrítugsaldurinn. Allt var í röð og
reglu og átti sinn stað hjá þér, ann-
að var bara ekki í boði. Elsku Per
minn, nú skiljast leiðir og þú heldur
inn í ljósið umvafinn kærleika og
ást. Ninna þín, sem þú hefur saknað
svo mikið, tekur brosandi í hönd
þína og leiðir þig um nýjar slóðir
þar sem himinn og haf mætast við
ystu sjónarrönd. Ástarþakkir fyrir
að hafa fengið að ganga með þér um
lífið og átt vináttu þína og kærleika.
Blessuð sé minning þín.
Guðrún Sigurbjörnsdóttir og
fjölskylda.
Mig langar í nokkrum orðum að
kveðja hann Per en honum kynntist
ég árið 1982 þegar ég fluttist í
Steinahlíð á Akureyri og kynntist
henni Önnu Siggu. Alltaf var jafn-
gaman að fara yfir og spjalla við
Per þegar hann var í heimsókn hjá
dóttur sinni. Per hafði frá mörgu að
segja og var alltaf til í að segja frá
lífinu í Noregi og stríðinu og húsinu
sínu á Bolungarvík. Per var mjög
gjafmildur maður og eitt sinn þegar
ég sótti hann út á flugvöll þegar
hann var að koma úr heimsókn frá
Noregi tók hann ekki í mál annað
en að gefa mér forláta kökuspaða úr
silfri. Mér fannst það algjör óþarfi
enda hafði ég boðist til að sækja
hann en Per varð ekki snúið, minna
mátti það ekki vera fyrir snúninginn
sagði hann. En það sem er svo gam-
an er að alltaf þegar ég nota spað-
ann þá verður mér hugsað til Jón-
ínu og Per. Ég hef bara heimsótt
Per tvisvar til Bolungarvíkur, í
fyrra sinnið 1989 og svo síðasta
sumar. Síðasta sumar kom ég ekki
ein heldur var fjölskyldan á ferða-
lagi og mættum við í kaffi hjá Per,
alls 13 manns. Ekki var hann nú að
æsa sig yfir fjöldanum heldur brosti
út að eyrum yfir að fá allt þetta
góða fólk í heimsókn eins og hann
sagði. Hann lagaði kaffi og lagði á
borð í garðinum en við komum með
meðlæti með okkur. Hann sýndi öll-
um stoltur garðinn sinn en eins og
þeir sem þekkja til vita er garð-
urinn hans einstakt listaverk. Þar
var svo setið og spjallað í góða veðr-
inu og börnin léku sér og klifruðu
upp á steininn hans.
Per var einstakt snyrtimenni,
alltaf vel til hafður og húsið og garð-
urinn hans báru þess einnig merki.
Ég kveð þig elsku Per og þakka
þér fyrir viðkynninguna. Elsku
Anna Sigga, Grétar og fjölskyldur,
guð blessi ykkur á þessari kveðju-
stund.
Guðrún Gísladóttir
✝ Sveinn Ein-arsson fæddist í
Efri-Gróf í Vill-
ingaholtshreppi 5.
nóv. 1922 og lést á
Selfossi 28. febrúar
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Einar Sveinsson, f. í
Syðra-Langholti í
Hrunamannahreppi
1884, d. 1958, og
Sesselja Loftsdóttir,
fædd í Steinsholti í
Gnúpverjahreppi
1891, d. 1961. Syst-
ur Sveins eru Sigríður, f. 1920,
búsett á Selfossi, Guðbjörg, f.
1921, búsett í Reykjavík, gift Ólafi
Þorsteinssyni, og Guðrún, f. 1921,
búsett í Risør í Noregi, gift Knut
Aagestad. Sveinn fluttist árið
1929 með foreldrum sínum að
Brúnavallakoti á
Skeiðum og Skarði í
Gnúpverjahreppi
árið 1935.
Árið 1949 byggði
Sveinn með for-
eldrum sínum og
Sigríði systur sinni
nýbýlið Lækj-
arbrekku í Gnúp-
verjahreppi og bjó
þar síðan með for-
eldrum sínum með-
an þau lifðu og Sig-
ríði systur sinni
eftir það, þar til þau
seldu jörðina árið 1991 og fluttust
að Hörðuvöllum 6 á Selfossi, þar
sem Sveinn bjó til æviloka.
Útför Sveins verður gerð frá
Selfosskirkju laugardaginn 10.
mars kl. 13.30 en jarðsett verður
á Stóra-Núpi.
Sveinn Einarsson móðurbróðir
minn er látinn á áttugusta og
fimmta aldursári. Banalegan var
ekki löng. Honum varð þungt um
andardrátt skömmu fyrir jól og
lagðist inn á spítalann á Selfossi í
byrjun febrúar þar sem hann fékk
súrefni. Hann eyddi síðan dögunum
í stól við rúmið tengdur við súrefn-
iskútinn, las í bók, hlustaði á útvarp
eða skrafaði við gesti. Þegar við
bræður heimsóttum hann skammaði
hann okkur fyrir leti og framtaks-
leysi og pólitískt villuráf og gaf okk-
ur fyrirmæli um hvað ætti að syngja
yfir honum og hverjir skyldu bera
hann til grafar. Hann átti von á að
þetta færi að styttast en við bjugg-
umst þó ekki við að svo stutt væri
eftir. Aðfaranótt 28. febrúar vakn-
aði hann málhress en svo dró fljótt
af honum – hann vaknaði til að
deyja.
Sveinn var alltaf heilsuhraustur,
varð varla misdægurt nema þegar
sprakk í honum maginn fyrir mörg-
um áratugum. Mér þótti þetta með
ólíkindum, en þannig var það: þegar
honum varð misdægurt þá var það
með hvelli. Sumarið eftir drakk
hann te sem ekki var alvanalegur
drykkur í Gnúpverjahreppi á þeim
árum og einhvern veginn ekki í stíl
við Svein í Lækjarbrekku. En mag-
inn greri og Sveinn gat aftur farið
að borða feitt saltkjöt og drekka
svart kaffi og stundum brennivín og
sneri sér ekki aftur að teinu fyrr en
á síðustu dögum sínum á spítalanum
á Selfossi.
Sveinn fæddist í Efri-Gróf í Vill-
ingaholtshreppi en var á fimmta ári
þegar foreldrar hans, sem voru
leiguliðar, töpuðu ábúðinni þar. Þau
voru án jarðnæðis í tvö ár. Faðir
hans fór þá í lausamennsku og til
sjós, móðir hans fór með elsta og
yngsta barnið, Sigríði og Svein, að
Háholti í Gnúpverjahreppi, en hinar
systurnar fóru til ættingja. Eigin
jörð eignuðust þau ekki fyrr árið
1949 þegar þau keyptu hluta úr
jörðunum Steinsholti og Hömrum í
Gnúpverjahreppi. Sesselja móðir
Sveins var frá Steinsholti og þar
bjuggu Eiríkur bróðir hennar og
Sigþrúður systir Einars. Þarna
byggðu þau nýbýlið Lækjarbrekku,
fengu fyrst inni í Steinsholti en
reistu myndarlegt íbúðarhús árið
1950. Þar bjuggu þau systkinin,
Sveinn og Sigga, með foreldrum
sínum meðan þau lifðu og héldu
áfram búskap þar eftir lát þeirra.
En alltaf bar Sveinn sterkar taugar
til Flóans og þegar hann var fluttur
að Lækjarbrekku áttu Flóamenn
leið um veginn fyrir neðan bæinn á
hverju hausti í fjallferðum og kom
fyrir að sumir gistu þar.
Lækjarbrekka er ekki stór jörð,
rétt um 100 hektarar. Bærinn er
undir lágu holti, Ásgeirsholti, þar
sem fyrir löngu var hjáleigan Gata
frá Steinsholti. Fallegt útsýni er frá
Lækjarbrekku, Búrfell, Hekla,
Tindfjallajökull, Eyjafjallajökull og
Þríhyrningur og Hamraholtið svo
næst. Lækur rennur þar fyrir neð-
an bæinn undir brekkunni. Fyrir
neðan bæinn eru mýrar og voru þar
ræktuð tún, einnig í brekkunni fyrir
ofan bæinn, á móunum uppi á Ás-
geirsholti og inni í hinu skjólgóða
Kálfsbæli inn undir Langhömrum.
Í Lækjarbrekku var ég á hverju
sumri frá því áður en ég man eftir
mér til 16 ára aldurs. Og þangað lá
leiðin ótal sinnum allan tímann með-
an þau bjuggu þar, móðursystkini
mín. Kynni okkar Sveins voru því
orðin löng og þau voru líka góð.
Sveinn var mér góður húsbóndi og
sanngjarn þótt hvesst gæti í honum
væri ég klaufskur þegar mikið lá
við. En þau hret voru ekki langvinn.
Sveinn bjó allgóðu búi, fyrst og
fremst með kýr, en jörðin bar ekki
margt sauðfé og ég varð ekki var
við að það væri honum til ama.
Hross hafði hann aldrei mörg og
ekki þá gæðinga að ég yrði mikill
hestamaður. Sveinn var ágætur
bóndi en ólíkur föður sínum að því
leyti að snyrtimennska var honum
ekki sérlega gefin. Hann var laginn
og góður smiður. Eftir að ég var
farinn að geta tekið til hendinni
stækkaði hann fjósið og stóð í fleiri
byggingum og þá rak ég margan
naglann og aðstoðaði við múrverk.
Múrverki mun hann hafa kynnst
þegar hann fór til vinnu af og til í
Reykjavík á yngri árum og þótti
laginn við það og eftirsóttur til þess
á öðrum bæjum þar sem bygging-
arframkvæmdir voru.
Ég hygg að Sveinn hafi ekki haft
metnað til að búa verulegu stórbúi.
Hann barst ekki á í vélakaupum,
fékk sér þær vélar sem nauðsyn-
legar þóttu en lítið umfram það,
þannig að manni þótti stundum
meiri stæll á öðrum bæjum. En það
verk sem við frændur vorum alltaf
stoltastir af var uppgræðsla melsins
sunnan í Ásgeirsholtinu. Þar puð-
uðum við eitt sumar hverja stund
sem gafst við að tína grjót úr meln-
um þar til hann var búinn undir
sáningu og af þessu örfoka landi
varð gjöfult tún. „Manstu,“ sagði
Sveinn stundum við mig löngu
seinna, „þegar við tíndum grjótið úr
melnum.“ Við sáum ekki eftir því
puði. Og eftir það hefur líklega eng-
in jörð í hreppnum verið betur
ræktuð.
Sveinn var sérlega minnugur.
Gaman fannst honum að fá gesti. Ef
mann bar að garði var ekki við ann-
að komandi en hann kæmi inn og
fengi kaffi, hvort sem hann var
kaffiþurfi eða ekki, þótt heyskapur
væri í fullum gangi, og var þá ekki
endilega spurt hvort húsmóðirin
hefði tíma til snúast kringum gesti.
Hann vildi spjalla og skipti þá ekki
máli hvort hann þekkti manninn.
Sveinn fór til útlanda í fyrsta sinn
upp úr miðjum áttunda áratugnum
til að heimsækja Guðrúnu systur
sína í Risør í Noregi. Við Þorsteinn
bróðir minn vorum þá við nám í
Ósló og þegar hann kom til baka
sunnan frá Risør með lest til Óslóar
tókum við á móti honum. Við spurð-
um hann hvernig ferðin hefði geng-
ið. Vel, sagði hann, á leiðinni suður
eftir hefði hann setið með manni frá
Vestur-Noregi og spjallað við hann
alla leiðina. Við vissum þó fyrir víst
að Sveinn kunni ekkert tungumál
utan íslensku en það vafðist ekki
fyrir honum.
Þegar þau systkinin seldu Lækj-
arbrekku héldu þau eftir svolitlum
bletti í Markahvammi, vestast á
Tanganum sem Einar á Hæli hafði
gefið föður þeirra. Sveinn ákvað að
smíða lítinn kofa til að setja þarna
en fannst einfaldast að smíða hann
heima við þar sem þau voru flutt á
Selfoss. Hann byggði kofann úti á
gangstétt við Hörðuvelli 6 og spurði
hvorki kóng né prest og því síður
sýslumanninn hvort það mætti.
Hvort sem það mátti eða ekki var
það látið afskiptalaust. Svo flutti
hann kofann á sinn stað. Þetta er
ekkert stásshús, en við áttum þarna
stundum sumarnætur, við frændur,
rétt undan melnum sem við tíndum
grjótið úr.
Einar Ólafsson.
Stutt er milli bæjanna Lækjar-
brekku og Steinsholts og mikill var
samgangur þar á milli hér áður
fyrr. Það er manni í fersku minni
þegar Sveinn var að koma uppeftir í
hinum ýmsu erindagjörðum. Oft
kom hann þó bara til að hitta fólk og
fá kaffisopa. Hann fíflaðist þá iðu-
lega eitthvað í okkur krökkunum og
ekki þótti honum verra ef við þorð-
um eitthvað að svara fyrir okkur.
Sveinn var stálminnugur eins og
margir af hans kynslóð. Það var
kannski ekki alltaf sem þessi náð-
argáfa nýttist í neinum sérstökum
tilgangi. Til að mynda þótti manni
það nokkuð skondið þegar þeir
nafnarnir í Lækjarbrekku og
Steinsholti stóðu í skemmunni
heima og þrættu um það hvernig
veðrið hefði verið um Jónsmessuna
nítjánhundruð þrjátíu og eitthvað.
Eitt sinn er hann kom heim vor-
um við mamma ein heima. Mamma
mátti ekkert vera að því að tala við
hann þá stundina þar sem hún var
upptekin í verkum en sagði Sveini
að hann skyldi fara með mér upp í
herbergi og hlusta á tónlist. Sveinn
var nú ekki vanur að hlýða hverjum
sem var en mömmu hlýddi hann þó í
þetta skiptið og þannig fór að ég
strákpeyinn og hann kallinn sátum
á rúmstokknum uppi í herbergi og
hlustuðum á heila plötu með Pink
Floyd. Ég er ekki frá því að við höf-
um skemmt okkur báðir ágætlega.
Sveinn var aldeilis ófeiminn við að
taka fólk tali, og skipti þá engu hvar
og hvert tilefnið var.
Í einni af verslunarferðunum í
Bónus sl. haust höfðum við hjónin
nýlokið við að borga og vorum á út-
leið en stoppuðum þá í mikilli þvögu
sem hafði myndast í innganginum.
Viti menn, þar stóð Sveinn í miðri
þvögunni, heilsaði fólki, tók það tali
og hreint alla virtist hann þekkja.
Þá var eins og ævinlega, þegar mað-
ur hitti hann á Selfossi, að hann
vildi drífa okkur heim í kaffisopa á
Hörðuvöllunum og hitta Siggu.
Sveinn Einarsson var einstök
persóna og er ógleymanlegur þeim
sem hann þekktu.
Við vottum Siggu, Böggu, Gunnu
og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu
samúð.
Guð geymi minningu Sveins í
Lækjarbrekku.
Daði Viðar Loftsson og
fjölskylda.
Sveinn Einarsson í Lækjar-
brekku verður jarðsettur í dag. Við
sem hér kveðjum eigum það sam-
merkt með mörgum öðrum að vera
fyrrverandi kaupafólk Svenna og
Siggu systur hans í Lækjarbrekku.
Vinnumennskan hófst allsnemma. Á
fimmta áratug síðustu aldar hóf sú
fyrsta ferilinn tveggja ára í Skarði,
hjá Sesselju og Einari, foreldrum
systkinanna. Hinar komu fjögurra
og þriggja ára í Lækjarbrekku á
sjöunda áratugnum. Í um þrjátíu ár
áttu ein og stundum tvær okkar
sumarheimili þar og höfðu jafnvel
vetursetu.
Lækjarbrekka var okkar vinnu-
skóli. Fólkið þar var mjög vel til
kennslu fallið, vel gefið til munns og
handa. Í útiverkum var Svenni læri-
meistarinn. Hann var verklaginn,
útsjónarsamur og veðurglöggur, allt
nauðsynlegir eiginleikar góðum
bónda en þessir og aðrir hæfileikar
hans hefðu einnig notið sín vel víðar
í þjóðfélaginu. Svenni hikaði ekki
við að treysta stálpuðum krökkum
og unglingum til vandasamra verka.
Sá þó sjálfur um hættulegri verkin
og hafði öryggi unga kaupafólksins í
fyrirrúmi við notkun verkfæra og
tækja sem í fyrstu voru bæði hest-
og vélknúin. Við vitum að lífs- og
starfsferli Svenna eru gerð góð skil
hér á síðunni en langar til bregða
upp fáeinum minningabrotum frá
samveru og kynnum okkar við hann
í áratugi:
Útlit:
Afturgreitt hár – stór gleraugu –
dökk augu – ákveðið augnaráð –
pípa eða sígaretta – olía undir nögl-
um – uppbrettar skyrtuermar –
kankvíst hálfbros.
Máltíðir:
Svenni hafði mikinn áhuga á mat
en borðaði aldrei mikið sjálfur. Við
matborðið sagði hann oft stríðnis-
lega við einn krakkann: „Það er allt
í lagi þó þú viljir ekki borða þetta –
það verður þá bara meira fyrir okk-
ur hin!“
Samkjaftað?:
Í girðingavinnu með kátum
krökkum. Svenni treður í pípuna
djúpt hugsi. Truflaður í hugleiðing-
um sínum, á hann til að segja,
snöggur upp á lagið: „Þið samkjaft-
ið ekki krakkar.“ Orðið „samkjafta“
veldur miklum heilabrotum hjá níu
ára hnátu.
Fjósverkin:
Útvarpið í gangi. Værðarlegt
hljóð í mjaltavélum og kúm. Sveinn
með pípuna að hlusta á fréttir.
Fylgist grannt með. Ekkert pjatt í
kringum skepnurnar en ljóst að
honum þykir vænt um þær. Mun
jafnvel hafa kastað orði á fjósmús-
ina þegar hann hélt engan nærri!
Bíllinn:
Fyrsti bíll Svenna var VW bjalla
sem margir muna. Í ferð í Þjórs-
árdal lét hann sem oftar reyna á bíl-
inn. Sú sýn gleymist aldrei þegar
Sveinn stóð bölvandi á toppnum á
nýju bjöllunni þar sem hún flaut
hægt niður Sandána. Stundum var
sem bjallan og hann væru eitt og
áttu þau til að hverfa af bæ, Siggu
til mikillar mæðu.
Samferðarmenn:
Svenni hafði mikinn og jákvæðan
áhuga á fólki og vildi einatt bjóða í
kaffi eða mat. Hann var áhugasam-
ur um ættfræði og kunni skil á flest-
um bæjum og fólki um allt Suður-
land og víðar.
Við kveðjum, frænkur þrjár, með
þökk til Svenna frá allri okkar fjöl-
skyldu fyrir vináttu og umhyggju
frá fyrstu kynnum. Eldri systrum
hans þrem, Siggu okkar, Böggu og
Gunnu sem allar lifa hann, þökkum
við einnig fyrir allt og allt og óskum
þeim huggunar og heilsu.
Líba, Helga og Hlédís.
Sveinn Einarsson
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR ÞÓRU SIGURÐARDÓTTUR,
Furugerði 1,
(áður Stangarholti 12),
Reykjavík.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks þjónustu-
miðstöðvar Furugerðis 1.
Margrét Sigurðardóttir, Sigurður Steingrímsson,
Sigurbjörn Sigurðsson, Hafdís Leifsdóttir,
Sigríður Ó. Þ. Sigurðardóttir, Hafsteinn Sæmundsson,
Sigurbjörn Pálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.