Morgunblaðið - 05.05.2007, Síða 32

Morgunblaðið - 05.05.2007, Síða 32
innlit 32 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Þ að var 1989 sem Guð- munda Elíasdóttir keypti neðri hæðina að Vesturgötu 26B, þar sem hún býr enn. Um þessar mundir er verið að lesa í Rík- isútvarpinu, rás I, ævisögu Guð- mundu, Lífsjátningu eftir Ingólf Margeirsson. „Við fluttum inn 24. febrúar fyrr- nefnt ár, á föstudegi – til frægðar, segir máltækið. Efri hæðina keyptu dóttir mín og tengdasonur og við eigum ennþá hvor sína hæðina,“ seg- ir Guðmunda þegar Daglegt líf fékk að líta inn í heimsókn til hennar á Vesturgötuna fyrir skömmu. „Ég er algjör Vesturgötukona, ég átti áður íbúð á efri hæð Vesturgötu 4, þar sem Gerður í Flónni var með verslun á neðri hæð og Blómálfurinn er núna. Þegar ég var stelpa leigði móðir mín eitt herbergi og eldhús að Vest- urgötu 32. Ég er því vel hagvön hér á þessum slóðum.“ – Hvernig leist þér á þetta hús þegar þú komst inn í það fyrst? „Við vorum búin að leita töluvert og ég hef alltaf þá tilfinningu að ef ég kann við mig þegar ég kem inn í forstofuna þá sé komið rétta hús- næðið. Þegar ég kom inn í forstof- una hér og horfði inn í stofuna, á bjálkana í loftinu, þá var eins og hvíslað að mér: „Þetta er húsið!“ Við funduðum svo, ég, dóttir mín og tengdasonur og ákváðum svo að þetta væri það sem við værum öll ánægð með.“ Áður var verkstæði í húsinu og því þurfti milu að breyta – Þurfti miklu að breyta? „Já, miklar breytingar biðu því hér hafði áður en við keyptum verið verkstæði og nú þurfti að breyta húsinu aftur í íbúðarhús. Þetta er mjög gamalt hús. Hér hafði endur fyrir löngu verið söðlasmíðaverk- stæði á neðri hæðinni og lengi brá enn fyrir leðurlykt, einkum ef frost hafði verið og hlánaði.“ – Hvað er þessi neðri hæð stór? „Hún er 98,5 fermetrar, stofa og tvö svefnherbergi og rúmgott eldhús – en baðherbergið þurfti að láta búa alveg til frá grunni. Stofunni hef ég seinna skipt til þess að fá gesta- herbergi og eldhúsið minnkaði ég líka til að fá eitt herbergi í viðbót þannig að nú er íbúðin stofa og þrjú herbergi.“ – Er ekki mikið viðhald á svona gömlum timburhúsum? „Einmitt núna er verið að endur- nýja framhlið hússins, setja nýtt járn og nýja glugga, sem og fékk ég nýjar og traustar útidyr. Ég hef ekki garð en ég hef sett grænan dregil á útitröppurnar og hengt blóm á vegg- ina við útidyrnar, þetta hefur hlýjað mörgum næturhröfnum á leið heim frá miðborgarlífinu. Sumir hafa meira að segja verið svo hrifnir af blómunum að þeir hafa tekið þau með sér.“ – Finnst þér ekkert óþægilegt ná- býlið við miðbæinn? „Ég held að ég gæti ekki unað mér nema vera rétt við miðbæinn. Síðan ég kom til Íslands 1968 eftir áratuga dvöl í útlöndum þá hef ég búið hér á þessu svæði, í Garða- strætinu og Grjótaþorpinu en lengst af hér á Vesturgötunni. Héðan er líka örstutt í Landakotskirkju en ég fermdist til kaþólskrar trúar eftir að ég kom til Íslands aftur og ég fer til kirkju svo framarlega sem það er ekki glerhált að ganga.“ Safnari af Guðs náð! – Ertu með mikið af munum sem hafa fylgt þér lengi? „Ég er safnari af Guðs náð og vissir hlutir hafa fylgt mér gegnum allt mitt flakk, vestanhafs og í Frakklandi og Danmörku. Ég á til dæmis munk sem píanóstillarinn minn í New York gaf mér, tvær litlar myndir sem Alice Abson málaði og gaf mér af væntumþykju. Hún var listmálari í New York. Svo er ég með mynd af dóttur minni sem ég missti, henni Berþóru sálugu sem dó rúm- lega tveggja ára úr lungnabólgu. Einnig er ég með ótal myndir af börnunum mínum, þeim Hans Al- bert og Siv, tengdabörnunum og barnabörnunum fjórum, mökum og börnum þeirra. Ég er mikið gefin fyrir fjölskyldu- myndir og hef uppi við myndir af móður minni og föður og systrum. Ég hef í fjölda ára tekið upp fyrir sjálfa mig síðasta lag fyrir fréttir, einnig á ég talsvert nótnasafn og safna óperum, ég á yfir 600 vídeó- spólur með óperum. Stundum finnst mér eins og ég þurfi að fá stærra húsnæði!“ – Ertu hætt að fara til útlanda? „Nei, ég fer yfirleitt yfir jól til Luxemborgar, þar býr helmingur af fjölskyldu minni en oftast er þá ein- hver í íbúðinni á meðan, kunningjar og vinir.“ Miklu skipti að koma flyglinum vel fyrir vegna kennslunnar – Var dýrt á sínum tíma að koma þessu húsnæði í horf? „Já, það kostaði talsverðan pen- ing. Ég þurfti að hafa tækifæri til að kenna og koma flyglinum fyrir, þetta var það sem ég lagði hvað mesta áherslu á þegar húsnæðið var inn- réttað. Ég hef kennt framundir þetta, það er erfitt að hætta alveg.“ – Ég sé að þú ert með kött, er ekki erfitt að hafa húsdýr hér í mið- bænum? „Nei, það er það eiginlega ekki, kettir rata alltaf heim til sín. Hund- urinn sem dótturdóttir mín á, Schae- ferhundurinn Ronja, dvelur núna á efri hæðinni, fyrir hann hefur hún búið til lítinn krika norðan megin við húsið, þar sem inngangurinn á efri hæðina er. Þar getur hann viðrað sig og svo er farið með hann út að ganga. Ég passa Ronju stundum, dýrin eru mér mikill félagsskapur. Sjálf átti ég hund í Danmörku og í Ameríku, reyndar bæði hunda og ketti. Tíkin Tico, sem ég átti þegar ég bjó í Holte í Kaupmannahöfn hafði nánast mannsvit. Ég saknaði hennar mikið þegar hún dó.“ – Hefur mikið breyst hjá þér síðan Ingólfur Margeirsson skrifaði end- urminningar þínar? „Allt sem gerst hefur hér í þessari íbúð hefur gerst síðan þær minn- ingar voru ritaðar. Það hefur auðvit- að ýmislegt drifið á dagana síðan, mest hefur það verið ánægjulegt. Hér varð ég langamma sem hefur verið mér mikil gleði. Ég hef haft talsvert saman við langömmubörnin mín tvö að sælda, enda hafa bæði bú- ið hér um tíma og oft verið glatt á hjalla. Ég fer ekki héðan ótilneydd. Mér líkar götulífið á Vesturgötunni, íbúð- in sjálf og að hafa mína nánustu í kallfæri.“ gudrung@mbl.is Óperur Tónlistin setur mikinn svip á heimili Guðmundu. Hún hefur til dæmis í gegnum tíðina safnað yfir 600 vídeóspólum með óperum sem hún horfir mikið á. Stofan Stofan hennar Guðmundu er bæði björt og falleg og þar er gnótt mynda á veggjum eftir vini og af ættingjum, enda lýsir hún sjálfri sér sem safnara af Guðs náð. Morgunblaðið/Sverrir Kíkt út Guðmundu líkar vel götulífið á Vesturgötunni og getur ekki hugsað sér að búa annars staðar. Fálkaorðan Efri myndin sýnir Guð- mundu unga söngkonu, fyrir neðan er bréf þar sem henni er veitt fálka- orðan fyrir störf sín í þágu tónlistar. Líkar vel Vestur- götulífið Vesturgatan hefur lengi verið „kjörlendi“ Guð- mundu Elíasdóttur söngkonu. Daglegt líf fékk að líta í heimsókn til hennar að Vesturgötu 26B. Nú er verið var að lesa úr endurminningum hennar Lífs- játningu í Ríkisútvarpið og nýlega fékk hún heið- urslaun listamanna frá Alþingi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.