Morgunblaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 43 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl. 9-16.30, jóga kl. 9 og 19, boccia kl. 10, útskurðarnámskeið kl. 13, myndlistarnámskeið kl. 13, videostund kl. 13.30. Árskógar 4 | Bað kl. 9.30, handavinna kl. 8-16, smíði/útskurður kl. 9-16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl. 9.45 og myndlist kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Sr. Hans Markús Hafsteinsson verður með helgistund á morgun kl. 10. Félagar úr Gerðubergskórnun leiða söng við undirleik Árna Ís- leifs. Hárgreiðsla, böðun, jóga-leikfimi, myndlist, almenn handavinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, há- degisverður, bókband, bingó spilað kl. 13.30, kaffi. Upplýsingar í síma 535-2760. Félag eldri borgara í Kópavogi | Bingó í félags- heimilinu Gjábakka kl. 13.45, kortaverð kr. 100. Vinningar fara eftir fjölda þátttakenda. Eldri borgarar safnast saman í Gullsmára 13 annan hvern föstudag kl. 14 og syngja saman. Kaffi og meðlæti fáanlegt að söng loknum. Föstudag 28. september kl. 14 er stjórnandi Guðmundur Magnússon. Skráning er hafin í félagsmiðstöðvunum í haust- litaferð 4. október nk. Brottför frá Gullsmára kl. 13.15 og Gjábakka kl. 13.30. Leið: Heiðmörk – Nesja- vellir – Írafoss – að Þingvallavatni. Kaffihlaðborð Valhöll – síðan dansað. Ekið í Bolabás – Hakið – Kjósarskarðsveg – Kjós og Kjalarnes. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, fræðslufundur í kvöld kl. 20, Alzheimersjúkdómur, Hanna Lára og Edda Andrésd. flytja erindi. Skemmtikvöld föstudag 28. sept. kl. 20, skemmti- atriði og dans. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og 9.55. Rammavefnaður kl. 9.15, málm- og silfur- smíði kl. 9.30, leikfimi kl. 13, bókband kl. 13, bingó kl. 13.45, myndlistarklúbbur kl. 16.30, jóga á dýnu kl. 17 og stólajóga kl. 17.50. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handavinna kl. 9, ganga kl. 10, hádegisverður kl. 11.40, handavinna og brids kl. 13 og jóga kl. 18.15. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi í Mýri kl. 12.40. Karlaleikfimi í Ásgarði kl. 13 og boccia kl. 14, smíðar/ gler- og leirlist í Kirkjuhvoli kl. 13. Handavinnuhorn í Garðabergi kl. 13, Garðaberg opið kl. 12.30-16. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30 helgistund í umsj. Ragnhildar Ásgeirsd. djákna. Frá hádegi eru vinnustofur opnar, m.a. myndlist og perlusaumur. Á morgun kl. 10 prjónakaffi í umsjón Ágústu Hjálm- týsdóttur. Allar uppl. á staðnum, s. 575-7720 og wwwgerduberg.is. Strætisvagnar 4, 12, og 17 stansa við Gerðuberg. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar héraðsprests. Yfir- skrift lestranna er: Biblían, stjórnmál og staðleysur. Fjallað um kjarnatexta í Nýja testamentinu um tengsl trúar og stjórnmála. Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl. 10-12, leikfimi ÍAK kl. 11. bænastund kl. 12. 6-9 ára starf kl. 16-17. Æskulýðsstarf Meme fyrir 8 bekk kl. 19.30-21.30. www.digraneskirkja.is Dómkirkjan | Opið hús kl. 14-16 í safnaðarheimilinu, heitt á könnunni og spjall. Dómkirkjan | Kvöldkirkjan er opin öll fimmtudags- kvöld kl. 20-22. Bænastundir kl. 20.30 og 21.30. Hægt er að eiga samtal við prest, taka þátt í bæna- stundum. Grafarvogskirkja | Fræðandi samverustundir, ýmiss konar fyrirlestrar. Heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. Grensáskirkja | Hversdagsmessa kl. 18.15, Þor- valdur Halldórsson leiðir söng. Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund alla fimmtudaga kl. 12. Orgelleikur, íhugun, bænir. Málsverður í safn- aðarsal eftir stundina. Háteigskirkja | Kl. 20 kyrrðarsöngur, lesið úr ritn- ingunni, bænir, altarisganga, fyrirbæn með handa- yfirlagningu og smurningu. Kristniboðsfélag kvenna | Fyrsti fundur vetrarins verður í dag hjá Valgerði Gísladóttur að Þórsgötu 4. Fundurinn hefst með kaffi kl. 16. Allar konur vel- komnar. Laugarneskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, málsverður í safnaðarheimili. Eldri borgarar halda í haustlitaferð á Þingvelli kl. 14, koma heim kl. 19. Verð kr. 2.500. Adrenalín gegn rasisma 9. og 10. bekkur kl. 17. Neskirkja | Hjúkrunarfræðingur frá Heilsugæslu- stöðinni á Seltjarnarnesi fjalla um efnið svefn og svefnvenjur ungbarna. Foreldramorgnar eru alla fimmtudaga kl. 10-12. Njarðvíkurkirkja | Foreldramorgun kl. 10.30 í safn- aðarheimilinu. Umsjón hefur Þorbjörg Kristín Þor- grímsdóttir. Sólheimakirkja | Kirkjuskólinn að Sólheimum hefst laugardaginn 29. september kl. 11 með samstarfi Mosfellsprestakalls og Sólheima, þar sem efni sunnudagaskólans verður kynnt fyrir börnunum. Kirkjuskólinn að Sólheimum verður síðan annan hvern laugardag. Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í kvöld í umsjá presta, djákna og sóknar- barna. Tekið er við bænarefnum af prestum og djákna kirkjunnar. Boðið upp á kaffi í lok stundar- innar. Ytri-Njarðvíkurkirkja | Spilakvöld aldraðra og ör- yrkja í köld kl. 20. Umsjón hafa félagar í Lions- klúbbi Njarðvíkur, Ástríður Helga Sigurðardóttir, Gunnhildur Halla Baldursdóttir og sóknarprestur. Furugerði 1, félagsstarf | Alm. handavinna kl. 9, smíðar og útskurður. Kl. 14 verður samvera í saln- um og kl. 15 kaffiveitingar. Hraunbær 105 | Kl. 9-16.30 handavinna. Kl. 10-11 boccia. Kl. 11-12 leikfimi. Kl. 12-12.30 hádegismatur. Kl. 14-16.30 félagsvist. Kl. 15-15.30 kaffi. Hraunsel | Félagsmiðstöðin opnuð kl. 9, leikfimi kl. 11.20 og bingó kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir hjá Þorbjörgu kl. 9- 16, boccia kl. 10-11, félagsvist kl. 13.30, vinningar, kaffiveitingar í hléi. Böðun fyrir hádegi. Hádegis- verður kl. 11.30. Hársnyrting. Hæðargarður 31 | Sparikaffi föstudag kl. 14.30. Í haust er hægt að fara í World Class hópinn, læra klaustursaum eða bútasaum, fara í gönguferð, læra á tölvu, syngja, skera út, skreyta borð, lesa bókmenntir, læra magadans, hláturjóga, skapandi skrif, framsögn. S. 568-3132. Korpúlfar, Grafarvogi | Listasmiðjan á Korpúlfs- stöðum er opin á morgun föstudag kl. 9-12 og kl. 13-16. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögustund og léttar æfingar kl. 9.45. Boccia karla kl. kl. 10.30, hand- verks- og bókastofa kl. 13, boccia kvenna kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30 og bingó kl. 15. Laugarból, Íþrhús Ármann/Þróttur Laugardal | Leikfimi fyrir eldri borgara kl. 11. Norðurbrún 1 | Leir kl. 9-12, opin handavinnustofa kl. 9-16, opin smíðastofa kl. 9-16. Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu | Skák í kvöld í Hátúni 12. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerð- ir. Kl. 9-10 Boccia. Kl 9.15-14 aðstoð v/böðun. Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 11.45-12.45 hádeg- isverður. Kl. 13-14 leikfimi. Kl. 14.30-15.45 kaffiveit- ingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, bók- band kl. 9, handavinnustofa kl. 9, morgunstund kl. 9.30, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur opnar kl. 9, boccia kl. 10, upplestur kl. 12.30, mósaikgerð kl. 13, frjáls spilamenska kl. 13. Farið verður í árlega haustlitaferð 1. okt. kl. 13. Farið verður á Þingvöll, inn í Bolabás, yfir Lyngdalsheiði að Laugarvatni, kaffi drukkið í Lindinni, ekið heim um Grímsnesið. Uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Bænastund og samvera kl. 10, leikfimi kl. 13.15 og kl. 14.30 bingó/félagsvist (bingó annan hvern fimmtudag og félagsvist hinn), kaffi kl. 15.30. Kirkjustarf Árbæjarkirkja. | Starf með 6-9 ára börnum (STN) kl. 15-16. Starf með 10-12 ára börnum (TTT) kl. 16- 17. Breiðholtskirkja | Biblíulestur kl. 20-22 í umsjá dr. 90ára afmæli. SigurbjörgSigurjónsdóttir, Hofs- vallagötu 21, Reykjavík, er níræð í dag. Af því tilefni tek- ur hún á móti gestum í húsa- kynnum ÍSÍ í Laugardal laug- ardaginn 29. september milli klukkan 15 og 17. 60ára afmæli. Sextugurer í dag, Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttar- dómari. Hann heldur upp á af- mælið á morgun, 28. septem- ber, með ættingjum og vinum. dagbók Í dag er fimmtudagur 27. september, 270. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Þegar sál mín örmagnaðist í mér, þá minntist ég Drottins, og bæn mín kom til þín, í þitt heilaga musteri. (Jónas 2, 8.) Ámorgun, föstudag, verðurhaldin ráðstefna á HótelLoftleiðum um verkefniðSocial Return sem fengið hefur íslenska heitið Endurkoma í samfélagið. Endurhæfing heima fyrir Um er að ræða verkefni undir evrópsku Leonardo da Vinci starfs- menntunaráætluninni: „Hugmynda- fræði Social Return-verkefnisins á upptök sín á Húsavík,“ segir Soffía Gísladóttir, stjórnarformaður Starfs- endurhæfingar Norðurlands. „Social Return byggist á því að einstaklingar sem á þurfa að halda fái endurhæfingu í sínu nærsam- félagi, sem sérsniðin er að styrk- leikum hvers og eins og nýtir styrk- leika hvers samfélags fyrir sig, heilbrigðiskerfi, félagsþjónustu og menntakerfi.“ Að sögn Soffíu hefur þessi stefna í endurhæfingarmálum mikla kosti í för með sér: „Bæði er hún laus við dýra yfirbyggingu: verkefnisstjóri stýrir endurhæfingunni í samstarfi við einstaklinginn. Það hefur líka kosti í för með sér að endurhæfast heima fyrir, hjá fjölskyldu og vinum, í því samfélagi sem einstaklingurinn kýs að búa í. Reynslan af þessu fyrirkomulagi hefur verið mjög góð, og um 81% þeirra sem fá endurhæf- ingu með þessu sniði getað tekið eðli- legan þátt í atvinnu- og menntalífi, sem er töluvert betri árangur en gengur og gerist.“ Breiðist út um Evrópu Verkefni Húsvíkinga vakti athygli Leonardo da Vinci áætlunarinnar og hefur verið kynnt víða um Evrópu: „Starfstöðvum í anda Social Return hefur verið komið upp í Litháen, Slóveníu, Hollandi og Ítalíu á síðustu fjórum árum, og stefnt er að verk- efnum í Finnlandi, Lettlandi og Hafnarfjarðarbæ,“ segir Soffía. „Á ráðstefnunni verður hugmyndafræðin kynnt og fjallað um árangur af verk- efnum í hverju landi fyrir sig, auk þess að kynnt verður handbók sem unnin hefur verið um hugmyndafræði Social Return.“ Finna má nánari upplýsingar um verkefnið á slóðinni www.social- return.net Heilsa | Ráðstefna á föstudag um endurhæfingarverkefnið Social Return Ný hugsun í endurhæfingu  Soffía Gísladótt- ir fæddist í Reykja- vík 1965. Hún lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Ís- lands 1986, B.A.- gráðu í uppeldis- og menntunar- fræði frá Háskóla Íslands 1994 og kennsluréttindum frá sama skóla. Soffía starfaði hjá Kaupingi um 5 ára skeið við sölu verðbréfa og starfs- mannastjórnun. Hún var félagsmála- stjóri Þingeyjarsýslna 1995 til 2005 þegar hún tók við stöðu framkvæmda- stjóra Símenntunarmiðstöðvar Eyja- fjarðar. Soffía á fjögur börn. Myndlist Færeyska sjómannaheimilið | Færeyski listamálarinn Sámal Toftenes verður með myndlist- arsýningu á Færeyska sjómanna- heimilinu, Brautarholti 29, Reykjavík. Sýningin verður opnuð laugardagin 29. sept. kl. 10 og er dagskrá allan daginn. Fyrirlestrar og fundir Aðalbygging Háskóla Íslands, hátíðarsalur | Jónas Hallgríms- son (1807-1845) er eitt ástsæl- asta skáld þjóðarinnar, en var einnig á sinni tíð einn færasti náttúrufræðingur Íslendinga. Þar sem nú eru liðin 200 ár frá fæð- ingu hans gengst Vísindafélag Ís- lendinga og Háskóli Íslands fyrir opinni ráðstefnu í dag, þar sem fjallað verður um vísindastarf hans. Háskólinn í Reykjavík | Ráð- stefnan um mannréttindi fólks með fatlanir verður í HR í dag og á morgun, 28. sept. Á annan tug fyrirlesara víðsvegar að úr heim- inum flytur fyrirlestur á ráðstefn- unni um réttarþróun í málefnum fatlaðra og nýjar áherslur í mann- réttindavernd. Nánar á www.di- sabilityrights.is. Sögufélag, Fischersundi 3 | Á fyrsta rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða, fimmtud. 27. sept., flytur dr. Lára Magn- úsardóttir erindi um bannfæringu miðaldakirkjunnar; m.a. greinir hún frá niðurstöðum sínum um merkingu nokkurra orða sem tengjast bannfæringu, s.s. banns- hótun, bannlýsing, óhlýðni og þrjóska. Konur með höfuðklúta sjást hér kaupa saman í matinn á markaði í Berlín í Þýskalandi í gær. Versla í matinn Reuters FRÉTTIR ARNAR Gíslason kynjafræðingur heldur erindi á vegum Rannsókna- stofu í kvenna- og kynjafræðum fimmtudaginn 27. september kl. 12.00 í fyrirlestrarsal Þjóðarbók- hlöðunnar. Í fyrirlestrinum, sem ber heitið „Karlar og fóstureyðingar: Hver á kvenlíkamann?“ verður kynnt rannsókn frá Bretlandi um karla og fóstureyðingar. Hluti rannsókn- arinnar fjallar um aðkomu karla að fóstureyðingum og reynslu þeirra af þeim. Fjallað verður um úrræði sem gætu auðveldað körlum að vera virkari þátttakendur í slíku ferli og auðveldað þeim að styðja við konur sínar. Einnig verður rætt um þær kröf- ur sem sumir af körlunum í rann- sókninni gerðu til beinna lagalegra réttinda, meðal annars um að karl- ar geti krafist fóstureyðingar eða beitt neitunarvaldi. Slíkar kröfur verða skoðaðar í samhengi við vald yfir kvenlíkamanum, og fjallað verður um hvernig þróun mynd- máls um konur og fóstur í gegnum tíðina hefur stuðlað að því að rétt- læta valdaleysi kvenna yfir eigin líkama. Fundarstjóri verður Þorgerður Einarsdóttir. Fyrirlestur um karla og fóstureyðingar ROB Adams, borgararkitekt Mel- bourne í Ástralíu, flytur fyrirlestur á Kjarvalsstöðum í dag, fimmtu- daginn 27. september kl. 17. Rob Adams hefur yfir 30 ára reynslu sem arkitekt og skipulags- fræðingur. Hann stjórnaði upp- byggingu miðborgar Melbourne og á öðrum fremur heiðurinn af því að hafa komið borginni í fyrsta sæti á lista yfir eftirsóknarverðustu borg- ir heims, segir í fréttatilkynningu. Listinn var unninn á vegum Econo- mic Intelligence Agency (EIA). Kannað var viðhorf til 12 þátta sem taldir eru skipta sköpum við að skapa eftirsóknarvert borgarum- hverfi. Þar á meðal eru þættir eins og húsnæðismál, menntamál, tóm- stundastarf og heilbrigðismál. Rob Adams hefur fengið hátt í 70 viðurkenningar fyrir verkefni tengd borgarskipulagi. Hann hefur verið ábyrgur fyrir stefnumótun og þróun borgarskipulags í Melbourne en þar er mikil áhersla lögð á listir og umhverfismiðaða sjálfbærni. Fyrirlestur Rob Adams, sem hefst kl. 17, fer fram í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Aðgangur er ókeypis. Arkitekt með fyrirlestur VERKFRÆÐIDEILD Háskóla Ís- lands efnir til opinnar málstofu um aðferðir við mat á vatnsorkurétt- indum, í dag, fimmtudaginn 27. september, kl. 16.45 í VR-II, Hjarðarhaga 6, stofu 157. Frummælendur eru Eyvindur G. Gunnarsson lektor við lögfræðideild HÍ og Egill Benedikt Hreinsson pró- fessor í verkfræðideild HÍ. Erindi Eyvindar nefnist „Hvernig vatns- orkuréttindi hafa verið metin“. Fer hann yfir ýmis dæmi en fjallar einn- ig almennt um réttarstöðu og eign- arrétt. Erindi Egils nefnist „Verð- mæti vatnsréttinda og íslenskra orkuauðlinda“. Fjallar hann um verðmætamat vatnsorku- og jarð- varmaauðlinda með hliðsjón af ís- lenska orkuumhverfinu og um notk- un hugtaksins auðlindarentu við slíkt mat á virði auðlindanna sjálfra. Að erindum loknum gefst gestum færi á fyrirspurnum og umræðum. Málstofustjóri verður Júlíus Sól- nes prófessor emeritus og eru allir velkomnir. Málstofa um vatnsorku- réttindi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.