Morgunblaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2007 51 Stærsta kvikmyndahús landsins Miðasala á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á www.haskolabio.is Sími - 530 1919 Chuck and Larry kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára Hairspray kl. 5:30 - 8 Veðramót kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára Astrópía kl. 6 The Bourne Ultimatum kl. 10:20 B.i. 14 ára eeeee - LIB, TOPP5.IS eeeee - SV, MBL eeee - JIS, FILM.IS eee - FBL ÞAR SEM REGLURNAR BREYTAST www.laugarasbio.is Sýnd kl. 10:20 B.i. 14 ára Sagan sem mátti ekki segja. eeee - S.V., MORGUNBLAÐIÐ eeee - B.B., PANAMA.IS eeee - E.E., DV eeee - S.G., Rás 2 eeee - R.H., FBL eeee - VJV, TOPP5.IS eeee - R.V.E., FRÉTTABLAÐIÐ eeee - S.V., MORGUNBLAÐIÐ - T.V., KVIKMYNDIR.IS Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:20 B.i. 12 ára Hversu langt myndiru ganga fyrir besta vin þinn? Sýnd kl. 5:45 og 10:20 - T.V., KVIKMYNDIR.IS eeee - R.V.E., FRÉTTABLAÐIÐ eeee - S.V., MORGUNBLAÐIÐ Hversu langt myndiru ganga fyrir besta vin þinn? -bara lúxus Sími 553 2075 Sýnd kl. 6 Verð aðeins600 kr. Sýnd með íslensku tali 16:00 Tjarnarbíó Bræður munu berjast Shotgun Stories 18:00 Tjarnarbíó Ferð Isku Iska’s Journey Regnboginn Haltu kjafti og syngdu Shut up and Sing Greipt í minni! Brand Upon the Brain Norræna húsið Á flugi Flying: Confessions of a Free Woman 20:00 Tjarnarbíó Stjórn Control Regnboginn Aleksandra Innflutt útflutt Import Export Híena Hyena Háskólabíó Öskrarar Screamers 22:00 Regnboginn Himinbrún The Edge of Heaven Skuggasveitir Shadow Company Háskólabíó Heima Útlegð The Banishment 22:15 Tjarnarbíó Andlit fíkjutrésins Faces of a Fig Tree 22:30 Háskólabíó Ský á reiki Drifting Clouds Nöturlegt og dimmt, en jafnframt sterkt og snilldarlegt drama sem hefur vakið athygli, lof og viðbjóð gagnrýnenda og hátíðargesta um allan heim. Innflutt útflutt Import Export Regnboginn, kl. 20:00 27. SEPTEMBER 7. OKTÓBER 2007 Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík Dagskrá, fimmtudagur 27. september ABSÚRD samskipti virðast jap- önsku leikkonunni Kaori Momori hugleikin í fyrstu myndinni sem hún skrifar, leikstýrir og leikur aðal- hlutverkið í. Hún er móðirin í fjöl- skyldu sem lifir kaótísku fjölskyldu- lífi. Hún er alltaf að elda og snúast. Einhvern veginn minnti hún mig á pirruðu húsmóðurina í Á hjara ver- aldar sem var alltaf að kaupa í soðið. Momori liggur greinilega mikið á hjarta og vill koma öllu að í frum- raun sinni sem leikstjóra. Óræður symbólismi, sérviskuleg framvinda, útúrdúrar – ofhleðslan ætlar hrein- lega að drekkja myndinni. Það er ekki að hún væri ekki ágætis skemmtun á köflum, eða illa unnin. Langt því frá. Samvinna hennar við Saburo Ishikura í hlutverki fyrsta eiginmannsins er t.d. prýðileg. Stíll- inn hæfir líka efninu ágætlega. Súr- realískt í bland við hið jarðtengda. Samt er niðurstaðan einfaldlega sú að eftir að hafa horft á myndina líður manni eins og þegar jólamáltíðinni með stórfjölskyldunni er lokið. Andlit fíkjutrésins – Ichijiku no kao  Leikstjóri: Kaori Momori. Aðalleikarar: Kaori Momori, Hanako Yamada, Saburo Ishikura, Katsumi Takahashi, Hisoyuki. 93 mín. Japan. 2007. Sýnd í Tjarnarbíói 27.9, 30.9 og 2.10. Anna Sveinbjarnardóttir DICKENSLEG drulla í Austur- Evrópu er fyrstu hughrifin af þess- ari ungversku verðlaunamynd. Tólf ára gamalt barn klórar í moldinni eftir molum í svakalega fátæku kola- námuþorpi í Rúmeníu. Laun Iszku (Varga) fyrir að vera úræðagóð eru svik og barsmíðar frá fullorðna fólk- inu. Þannig er þunglyndislegur tónninn sleginn fyrir myndina. Það birtir aðeins til þegar hin einbeitta Iszka fer um stund á upptökuheimili og kynnist þar ungum dreng (Ru- sache). Bollók fangar alveg ein- staklega fallegt samspil á milli þeirra. Krakkarnir eru alveg sér- staklega grípandi. En þeim var ekki skapað nema að skilja og ferð Iszku heldur áfram. Hún kemst að því að lengi getur vont versnað. Því miður fyrir hana og líka fyrir áhorfandann því mynd- in missir fókus um leið og Iszka yf- irgefur Rúmeníu. Síðasti hlutinn þegar grimmd heimsins á að þyrma yfir hana og hið ráðvillta stúlkubarn áttar sig á því að það hefur farið úr öskunni í eldinn er hálfmáttlaus. Ég get ekki séð að hún hafi þurft að fara til útlanda til að komast að því að konum er nauðgað og heimurinn er vondur og við getum öll lagst í þunglyndi yfir því. Eiginlega hálfósmekklegt hvernig saklaust barnasambandið var notað sem uppbygging á undan til þess eins að vera andstæða við niðurlægingu kvennanna á bátunum. Býst við að ég eigi erfitt með að sætta mig við þá sýn að ekkert eigi eftir að liggja fyrir hinni seigu Iszku annað en staða fórnarlambsins. Ferð Iszku – Iszka Utaza’sa  Leikstjóri: Csaba Bollók. Aðalleikarar: María Varga, Marion Rusache. 93 mín. Ungverjaland. 2007. Sýnd í Tjarnarbíói 27.9, 28.9 og 30.9. Anna Sveinbjarnardóttir Iszku „Þannig er þunglyndislegur tónninn sleginn fyrir myndina.“ HVAR liggja mörk persónufrelsis nútímakvenna? Bandaríska kvik- myndagerðarkonan Jennifer Fox veigrar sér ekki við spyrja sig og aðra áleitinna spurninga í þessari heimildarþáttaröð. Í henni beinir Fox vægðarlaust sjónum að sjálfri sér þegar hún uppgötvar á fimm- tugsaldri að hana langar eftir allt saman í barn. Hún ferðast líka vítt og breitt um heiminn til að bera saman það sem henni, sjálfstæðri New York-dömunni, finnst sjálfsagt við hlutskipti annarra kvenna. Í þessari naflaskoðun á maður kannski erfiðast með að trúa því að hún hafi verið svona gjörsamlega ómeðvituð fyrir fertugt! Á hún aldr- ei að hafa áttað sig á femínisma fyrr en hún vill verða mamma? Samt er hún búin að vera sjálfstætt starfandi kvikmyndagerðarkona í 20 ár og þekkir allar þessar kjarnakonur úti um allan heim. Jæja, efninu er alltaf eitthvað hagrætt fyrir góða sögu. Þó að Fox leyfi sér að framreiða efnið full einfeldningslega á köflum getur maður ekki hætt að horfa. Samt sat ég sérstaklega með aulahroll yfir framsetningunni á ástarsambandi hennar við kvænta skáldið í Suður- Afríku. Þá kom alltaf upp hugsunin ,,þetta hlýtur að vera skrifað af sápuhöfundi!“ Ferðir Fox um heiminn, viðtöl hennar við vinkonur og endurskoðun á samskiptum við nánustu fjölskyldu eru unnin af mikilli natni. Að sögn Fox verður kvikmyndatökuvélin nánast ein af konunum í trún- aðarsamtölum. Þannig er vélin látin ganga á milli til að skapa traust og öryggi. Með þessu móti náist oft meiri hreinskilni og eðlilegri samtöl en með hefðbundnari notkun kvik- myndatökuvélarinnar. Samtölin taka á ýmsu samkvenlegu og -mann- legu, og fléttast þannig inn í sögu Fox á margvíslegan hátt svo úr verður fjölbreytt mósaík. Á flugi: játningar frjálsrar konu – Flying: Confessions of a Free Woman  Leikstjóri: Jennifer Fox. Framleiðandi: Claus Ladegaard, Jennifer Fox. 352 mín. Danmörk/Bandaríkin. 2006. Sýnd í Norræna húsinu 27.9 og 7.10. Anna Sveinbjarnardóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.