Fréttablaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 42
30 21. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR Samkvæmt bandarísku útvarps- stöðinni O Radio féll Oprah Win- frey fyrir rapparanum Jay-Z þegar hún tók nýlega viðtal við hann í spjallþætti sínum. Oprah, sem er 55 ára, segir rapparann hafa ilmað sér- staklega vel. „Jay-Z er nýi besti vinur minn, hann var svo sjarmerandi og indæll. Þegar hann faðmaði mig festist lyktin hans á mér og ég gat enn fund- ið hana þegar við fórum yfir á næsta tökustað,“ sagði hún í viðtali við útvarpsstöð- ina. Oprah hefur verið laus og liðug eftir að sambandi henn- ar og Stedman Graham lauk, en hann var kær- asti hennar til langs tíma. Þau byrjuðu saman árið 1986 og höfðu planað að gifta sig 1992, en aldrei varð af brúðkaupinu. Samkvæmt heimildum tímarits- ins National Enquirer fannst Gra- ham hann vera lítilsvirt- ur og flutti út úr íbúð þeirra Opruh í Chicago eftir að hún fór í tveggja vikna lúxussiglingu með nánum vini sínum, Gayle King, og skildi Graham eftir heima. Bandarískir og breskir fjölmiðlar héldu því fram í gær að tveir af einkalækn- um Michaels Jackson yrðu færðir í gæsluvarðhald og hugsanlega kærðir fyrir aðild að dauða poppgoðsins. Bandaríska fréttastöðin Fox News hélt því fram í gær Dr. Con- rad Murray og Dr. Arnold Klein, einkalæknar Michaels Jackson, yrðu handteknir eftir tvær vikur og að þá yrðu þeir kærðir fyrir manndráp af gáleysi. Lögreglan í Los Angeles verst allra frétta en samkvæmt Fox News hyggst hún nota næsta hálfa mánuðinn til að safna saman sönnunargögnum sem eiga að nægja til að byggja upp mál gegn Murray og Klein. Þótt krufn- ing Jacksons hafi ekki verið gerð opinber þykir mönnum líklegt að verkjalyfið Propafol, sem er víst í sterkara lagi, hafi dregið Jackson til dauða 25. júní. Læknarnir hafi skrifað upp á lyfið fyrir Jackson og með því sýnt vítavert gáleysi. Eftir því sem Fox News kemst næst ber Klein mun meiri ábyrgð á andláti poppguðsins en Murray enda var hann einkalæknir Michaels. Talið er líklegt að Jackson hafi fengið hjartaáfall á heimili sínu í Kali- forníu af völdum verkjalyfsins. Í gær var síðan samningsdrögum tryggingafyrirtækisins AEG og Jacksons lekið á netið. Þar kemur í ljós að Jackson hafi verið heill heilsu. Læknar tryggingafélags- ins gátu ekki komið auga á neitt í heilsufari hans sem hefði getað komið í veg fyrir að hann gæti sinnt This is it-tónleikaferðinni sem skyldi og rennir sú staðreynd enn frekari stoðum undir grun lög- reglunnar í Los Angeles. Læknarn- ir tveir hefðu ekki átt að skrifa upp á þetta sterka verkjalyf. Sá samn- ingur upplýsir einnig að Jackson hugðist ekki vera með neitt hálf- kák á sviði því hann skuldbatt sig til að vera á sviðinu í áttatíu mínút- ur í það minnsta. Einhverjar sögu- sagnir höfðu verið á kreiki á net- inu um að Jackson myndi einungis bregða fyrir í mýflugumynd. Ekki er hægt að sleppa því að minnast á fjölskyldu Jacksons sem nú hefur skotist aftur fram á sjón- arsviðið því raunveruleikaþáttur er í bígerð um bræður hins fallna poppguðs og endurkomu þeirra í kastljós fjölmiðlanna. SAKAMÁL Lögreglan í Los Angels rannsakar nú andlát Jacksons sem sakamál og læknarnir hans tveir, Conrad Murray og Arnold Klein, liggja sterklega undir grun um að hafa ávísað á hann of sterkum verkjalyfum sem hugsanlega drógu hann til dauða. HÚSLEIT Þegar hefur verið framkvæmd húsleit hjá lækninum Conrad Murray og er búist við að hann ásamt Arnold Klein verði kærður fyrir manndráp af gáleysi. NORDIC PHOTOS/ AFP Læknar Jacksons kærðir Breska dagblaðið Daily Mirror segir að Madonna hafi grætt kær- asta sinn Jesus Luz, 22 ára, þegar hún neitaði að ganga með armband sem hann gaf henni í afmælisgjöf á 51 árs afmælisdeginum. Jesús gaf Madonnu suður-amer- ískt lukkuarmband á afmælisdegi hennar síðastliðinn sunnudag. Hún brosti þegar hún opnaði gjöf- ina en var fljót að tilkynna Jesús að hún gæti ekki gengið með arm- bandið, með þeim afleiðingum að Jesús brast í grát. Ástæðuna sagði söngkonan vera að arm- bandið styngi í stúf við trúar- leg Kabbalah armbönd hennar. Madonna hældi kærasta sínum þó í hástert í ræðu sem hún hélt í afmælisveislu sinni og kyssti hann innilega að lokum. Grætti Jesús á afmæli sínu SKILDI KÆRASTANN EFTIR Í SÁRUM Madonna neitar að ganga með arm- band sem Jesús kærasti hennar gaf henni. Simon Cowell gefur 100.000 pund á ári til heimilislausra hunda í Kaliforníu. Hundaheimilið, sem er í Toluca Lake, er ætlað hund- um sem hafa verið yfirgefnir eða skildir eftir á víðavangi og er rekið af leikkonunni Lindu Blair. Samkvæmt heimildarmanni hundaheimilisins er Simon mikill hundaunnandi en getur ekki átt hund sjálfur sökum stanslausra ferðalaga. Árlegir fjárstyrkir Cowells eru sagðir skipta sköpum fyrir heimilið og ekki þykir ólík- legt að hann muni arfleiða það að stórum upphæðum þegar hann fellur frá, en hann hefur áður sagt að hann vilji styrkja góð- gerðasamtök fyrir hunda þegar hann deyr. Styður hunda í neyð GÓÐHJARTAÐUR Simon Cowell lætur gott af sér leiða með því að styrkja hundaheimili í Kaliforníu. LAUS OG LIÐUG Oprah heillaðist af rapparanum Jay-Z í spjallþætti sínum, en hún sagði hann ilma vel og vera einstaklega sjarmerandi. HEILLANDI Jay-Z kom vel fyrir í þætti Opruh, en hann er eiginmað- ur söngkonunnar Beyoncé. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Föstudagur 21. ágúst 2009 ➜ Leiklist 20.00 Ég man eina stund, gagnvirkt verk eftir Ástbjörgu Rut Jónsdóttur á art- Fart. Sýnt í Leikhús-Batteríinu. Aðgangur ókeypis. 21.00 Spunakvöld artFart og Leikhúss- Batterísins. Miðaverð 800 krónur. ➜ Jazzhátíð 21.00 Gítarveisla Jazzhátíðar á Nasa. Hilmar Jensson, Marc Ducret, Björn Thoroddsen, Ulf Wakenius og Guð- mundur Pétursson ásamt hljómsveit sýna snilli sína. 22.00 Orgel Orgía Jasshátíðar á Rosen- berg. Asa tríó, Tríó Þóris Baldurssonar ásamt gestum. ➜ Tónlistarhátíð 20.30 Setning og upphafstónleikar Berjadaga á Ólafsfirði við kertaljós í Tjarnarborg. Flutt verður kammertónlist og ljóð eftir afmælisbörn ársins, þá Joseph Haydn og Felix Mendelssohn. ➜ Síðustu forvöð 17.00 Myndlistasýningu Austurbæjar- bíós lýkur í dag. 14 ungir og efnilegir listamenn sem hafa stundað vinnu sína í Austurbæjarbíói sýna verk sín. ➜ Kynningarfundur 20.30 Ungir palestínskir og íslenskir sjálfboðaliðar frá Rauða hálfmánanum og Rauða krossinum ætla að segja frá reynslu sinni af sjálfboðaliðastarfi innan ólíkra menningarheima í Molanum, Kópavogi. Ungir sjálfboðaliðar úr félag- inu Ísland- Palestína verða einnig með kynningu á sínu starfi. ➜ Ljóðahátíð 16.00 Bókamarkaður Nýhil undir berum himni á Hjartatorgi milli Lauga- vegar og Hverfisgötu ef veður leyfir . 21.00 Ljóðapartí með fjórum erlendum og sex íslenskum skáldum við Tryggva- götu 11. Tepokinn spilar að upplestri loknum. ➜ Dans 18.00 Danssýningin Fresh Meat, eftir Sigríði Soffíu Níels- dóttur og Snædísi Lilju Ingadóttur sýnd á artFart í Leikhús- Batteríinu. Miðaverð 1000 krónur. Nánar á artfart.is ➜ Tónlist 21.00 Kveðjutónleikar Skáta á Sódómu Reykjavík. Einnig koma fram Me, The Slumbering Napoleon, Reykjavík! og Sudden Weather Change. Aðgangseyrir 1.000 krónur. 21.00 Nesi, Sjana og hinar kellingarnar á Græna Hattinum á Akureyri. Miðaverð 1.500 krónur. 23.00 Danni De luxxxe og Damien E.I.E. á Jacobsen. 23.00 Hvanndalsbræður með tónleika í kvöld í Valaskjálf á Egilsstöðum. ➜ Listamannaspjall 20.00 Anna Líndal stjórnar umræðum í Skapandi endurnýtingarstöðinni, á Hverfisgötu 42. ➜ Myndlist 13.00 Opnun nýs gallerís, Gallerý Nútímalist að Skólavörðustíg 3a. Þar stendur yfir sýning með úrvali af verkum Drífu Viðar Thoroddsen. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is. Oprah skotin í Jay-Z Söngkonan Ashlee Simpson er reið út í slúðurblogg- arann Perez Hilton fyrir slúðurmola sem hann ritaði um hana á blogg- síðu sinni. Samkvæmt fréttinni á Simpson að hafa drukkið sig fulla í veislu sem eig- inmaður hennar, tón- listarmaðurinn Pete Wentz, hélt og látið öllum illum látum og á jafnvel að hafa skipað eiginmanninum heim í rúmið. Ashlee ákvað að snúa vörn í sókn og skrif- aði á Tweet-ið sitt eftirfar- andi skilaboð; „Það eina sem þú gerir er að spinna upp gróusögur um aðra. Líttu í spegil. Finnst þér þú vera mennskur? Karma er tík. Sagan sem þú sagðir er langt frá sannleikanum.“ Ashlee reið Perez ÓSÁTT Ashlee Simpson er ósátt við slúðurbloggarann Perez Hilton sem skrifaði að hún hefði verið full. 498kr.pk. FÖSTUDÖGUM Ódýrt í matinn á Tilboðið gildir alla daga Tilboðið gildir alla daga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.