Fréttablaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 54
42 21. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. feikn, 6. einnig, 8. þrá, 9. ham- fletta, 11. á fæti, 12. komast yfir, 14. aldraði, 16. skóli, 17. löng, 18. í viðbót, 20. skammstöfun, 21. litlaus. LÓÐRÉTT 1. hróss, 3. kusk, 4. ástir, 5. hallandi, 7. skarpskyggn, 10. árkvíslir, 13. smáskilaboð, 15. sjá eftir, 16. iðn, 19. bókstafur. LAUSN LÁRÉTT: 2. glás, 6. og, 8. ósk, 9. flá, 11. tá, 12. sölsa, 14. gamli, 16. fg, 17. síð, 18. auk, 20. fr, 21. grár. LÓÐRÉTT: 1. lofs, 3. ló, 4. ástalíf, 5. ská, 7. glöggur, 10. ála, 13. sms, 15. iðra, 16. fag, 19. ká. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Tinna Gunnlaugsdóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir. 2 Óttar Felix Hauksson. 3 Jóhannes Karl Guðjónsson. Hönnunarfyrirtækið ELM Design frumsýnir vor- og sumarlínu fyrir árið 2010 á tískuviku í París og New York í næsta mánuði. Fyrirtækið hefur verið starfrækt í tíu ár og selur hönnun sína í um níutíu versl- unum víðs vegar um Bandaríkin og yfir fimmtíu verslunum í Evrópu, þar á meðal í Selfridges, Browns og Liberties í London. „Þetta er lína sem við vorum að ljúka við fyrir stuttu. Í vetur vorum við mikið með græna tóna í hönnun okkar og við höfum unnið vor- og sumarlínuna svolítið út frá þessu og haldið okkur við græna og út í gula tóna,“ segir Erna Steina Guð- mundsdóttir, einn eigenda ELM Design. Aðspurð segir Erna það ekki vera erfitt verk að hanna flíkur ár fram í tímann, heldur sé það orðið að vana eftir öll þessi ár. „Þetta var snúið í fyrstu en nú erum við orðnar vanar að vinna svona langt fram í tímann. Kosturinn er að við erum alltaf í réttri árstíð, við hönnuðum sumar- línuna fyrir næsta ár núna í sumar og í haust förum við af stað með að hanna vetrarlínuna fyrir árið 2010 þannig það er auðvelt að finna inn- blástur.“ - sm ELM sýnir á tískuviku í París KVEÐJUTEITI Erna Steina segir sýninguna vera kveðjuteiti áður en línan verður send á sölusýningar víðs vegar í Evrópu. Hér er Erna Steina ásamt Lísbetu Sveinsdóttur. MYND/TEITUR JÓNASSON Sjónvarpsstjörnurnar Jóhannes Ásbjörnsson og Sigmar Vilhjálms- son virðast vera að íhuga að skipta um starfsvett- vang. Þeir félag- ar hafa stofnað saman fyrirtæki sem kallast Ham- borgarafabrikkan og í fyrirtækjaskrá kemur fram að tilgangur félagsins sé rekstur veitingastaða, smá- vöruverslun, framleiðsla matvæla, rekstur fasteigna, lánastarfsemi og önnur tengd þjónusta. Þegar Fréttablaðið ræddi við Jóhannes í gær vildi hann ekki kannast við að þeir félagar ætli sér að opna hamborgarastað, sagði einfaldlega að fyrirtækið væri stofnað utan um ýmis sameiginleg verkefni þeirra félaga. Hugleikur Dagsson var að senda frá sér nýja bók um ævintýri eineygða kattarins Kisa. Sú kallast Flóttinn frá Reykjavík og svíkur ekki aðdáendur Kisa. Hugleikur fagnar útgáfunni með stæl, hann hefur boðið vinum sínum til veislu í kvöld og þar eiga allir að bera lepp fyrir auga - rétt eins og aðal- sögupersónan. Ísland í dag hefur verið talsvert á milli tannanna á fólki síðan skipt var um áhöfn í brúnni á síðasta ári og áherslum breytt. Þau Sigrún Ósk Kristj- ánsdóttir og Sindri Sindrason máttu þola glósur í netheimum fyrir að efnistök þáttarins væru of léttúðug og þar fram eftir götun- um. Árangurinn hefur hins vegar ekki látið á sér standa, á fyrstu sex mánuðum ársins var áhorf nærri því 50 prósentum meira en á sama tímabili í fyrra. Þátturinn hefur meira að segja á stundum farið yfir Kastljósið í áhorfi, þrátt fyrir að efnistökin séu ekki nógu fín fyrir alla. - fgg, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI „Þetta verður svona yfirbragðið á þáttunum núna, þeir verða þema- tengdir. Sveppi og Auddi ætla að vera sjómenn, handrukkarar og núna eru þeir að prófa hvernig það er að vera róni í Reykjavík,“ segir Kristófer Dignus, framleiðandi sjónvarpsþáttanna með þeim Auð- unni Blöndal og Sverri Þór Sverris- syni. Eðli málsins samkvæmt var ekki hægt að ná tali af þeim Audda og Sveppa þar sem þeir voru úti- gangsmenn í gær og það þykir fremur sjaldgæf sjón að sjá þá tala við fjölmiðla í gsm-síma. Kristófer upplýsir að þeir félag- ar ætli sér að blanda geði við aðra sem eru í svipaðri aðstöðu. „En þetta er líka félagsfræðileg könn- un á því hvernig fólk bregst við. Þeir hafa verið að fara inn í kyrr- stæða bíla og viðmótið sem þeir hafa fengið er almennur viðbjóð- ur,“ segir Kristófer en tekur fram að auðvitað sé grínið aldrei langt undan. Sveppi og Auddi hyggjast ekki koma heim til sín yfir nóttina heldur sofa úti. Og eins og myndirnar bera með sér var haft töluvert fyrir því að búa til gott gervi fyrir þá. „Stefán Jörgen, einn fremsti förðunarlista- maður þjóðarinnar, kom og hjálp- aði okkur, þeir voru einhverja fjóra til fimm tíma í stólnum hjá honum.“ - fgg Auddi breytist í róna GÓÐ GERVI Auddi og Sveppi kynntust því af eigin raun hvernig það er að vera róni í Reykjavík. Gervin eru nokkuð góð. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI „Ég er mikill morgunmatarmað- ur; fæ mér oftast gott granóla eða bara hafragraut. Stundum stelst maður líka í morgunkorn- ið með börnunum, Cheerios eða kornflex.“ Eyþór Guðjónsson, framkvæmdastjóri Skemmtigarðsins. „Þetta fólk er miklar stjörnur í sínu heimalandi. En er algjörlega laust við stjörnustæla,“ segir Elísa- bet Agnarsdóttir hjá Jöklum ehf. en hún hefur vart undan að taka við fyrirspurnum frá indverskum kvikmyndagerðarmönnum sem vilja ólmir koma til landsins og taka upp efni fyrir kvikmyndir sínar. Á landinu er nú staddur nokkuð stór hópur frá Tollywood til að taka tón- listarmyndbönd fyrir kvikmyndina Namo Venkatesa í leikstjórn Srinus Vytla. Sem sagt hvorki Bollywood - sem er hvað frægast - né Kollywood en tökulið frá því héraði var statt hér á landi fyrir skemmstu eins og Fréttablaðið greindi frá. Tollywood er gælunafn yfir kvik- myndir frá Andhra Pradesh-hér- aðinu á Indlandi. Þar er töluð sér- stök mállýska sem heitir Telegu og Tollywood dregur nafn sitt af. Tollywood á nokkur heimsmet í heimsmetabók Guinness, þar eru meðal annars framleiddar flestar kvikmyndir í heiminum á ári hverju og þar býr einnig sá leikari sem hefur leikið í flestum kvikmyndum í öllum heiminum eða alls 750. Þar er einnig stærsta kvikmyndaver í heimi og í Andhra Pradesh eru flest kvikmyndahús á Indlandi ef marka má wikipediu. Og hér á landi eru sem sagt tvær af skærustu stjörnum Tollywood; Venkatesh Daggubati, sem er marg- verðlaunaður leikari og nýtur mik- illar hylli í Tollywood-kvikmynda- geiranum, og svo Trisha Krishnan, einhver helsta þokkadís þessarar kvikmyndagerðar en móðir hennar er með í för og passar upp á að allt sé örugglega með felldu. Hópurinn frá Tollywood, sem er um tuttugu manns, hefur verið hér í heila viku og tekið upp efni fyrir tvö mynd- bönd við Skógafoss, Seljalandsfoss, Reynisdranga og Jökulsárlón, svo fátt eitt sé nefnt. Þau hafa reynd- ar verið á ferðalagi um alla Evr- ópu síðustu tuttugu daga til að taka upp borgarsenur fyrir myndina en Ísland leikur síðan aðalhlutverkið í tónlistarmyndböndunum. Elísabet segir að vinnulagið sé ekkert öðruvísi en það sem við- haft var þegar Kollywood-liðið var hér á landi. Unnið sé frá morgni til kvölds. Reyndar gekk ekki allt eins og í sögu því tollurinn hleypti ekki öllum töskum Tollywood-fólks- ins í gegn og því varð uppi fótur og fit þegar einn kjóllinn varð eftir í Keflavík. Spurð hvort svona spar- samir kvikmyndagerðarmenn, sem setja það ekki fyrir sig að deila her- bergjum, skili einhverjum gjaldeyri til landsins segir Elísabet svo vera. „Þetta eru einhverjir peningar.“ freyrgigja@frettabladid.is ELÍSABET AGNARSDÓTTIR: TOLLYWOOD NÆST Á DAGSKRÁ Indverskir kvikmyndagerð- armenn flykkjast til Íslands STÓRSTJÖRNUR FRÁ TOLLYWOOD Trisha Krishnan er einhver vinsælasta leikkona Tollywood og hún er hér á landi að taka upp tónlistar- myndband fyrir nýjustu kvikmynd sína. Grétar Örvarsson er að sjálfsögðu leiðangursstjóri Indverjanna en þeir virðast vera áhugasamir um að koma hingað til Íslands og taka upp efni fyrir kvikmyndir sínar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.