Neisti - 20.08.1984, Side 20
Verkalýösnefnd Sandinista í orkuveri einu: Loks getum viö veltt Ijós eftlr 45 ára myrkur. VIÖ erum skipulagðir.
skiptum við auðvaldsheiminn þannig að
meira verði skipt við lönd rómönsku
Ameríku og Vestur-Evrópu.
Viðskiptin við Mexíkó eru mjög mik-
ilvæg vegna þess að öll olían kemur það-
an eftir að Venezuela hætti að selja
Nicaragua olíu 1982 vegna þrýstings frá
Bandaríkjunum. Erlendar skuldir
landsins eru það miklar að freistandi er
fyrir heimsvaldasinna að nota þær sem
kverkatak á byltinguna. Árið 1982 fór
45% útflutningsverðmæta til greiðslu á
erlendum lánum. Af þeim sökum
neyddist byltingarstjómin til að minnka
innflutnig um 25,5% frá fyrra ári. Sú
staðreynd að þeim tókst samt sem áður
að koma í veg fyrir að þjóðarframleiðsla
félli meira en 1,4% er merki um að efna-
hagskerfið er orðið betur fært um að
mæta ytri áföllum en áður.
Landbúnaðarumbæturnar
í landi þar sem meira en 60% þeirra
sem em efnahagslega virkir em bændur
eða landbúnaðarverkamenn, þar sem
75% útflutningsverðmætanna em land-
búnaðarvörur og landbúnaður stendur
undir helmingi framleiðslunnar, hafa
landbúnaðarumbætur að sjálfsögðu úr-
slitaþýðingu.
Fyrir byltingu áttu nokkur þúsund
jarðeigendur 50% alls jarðnæðis en
120 000 bændur áttu samtals aðeins 3%
alls jarðnæðis í landinu. Auðugustu
jarðeigendur hafa farið verst út úr þeim
miklu breytingum sem byltingin hefur
gert á eignarhaldi á jarðnæði. Við eigna-
upptöku á landareignum Somoza og
nánustu samstarfsmanna hans minnkaði
hlutdeild þessa stórjarðeigendahóps úr
50% niður í 13%. Haustið 1983 skiptist
eignarhald á jarðnæði með þessum
hætti: 23% vom í eigu ríkisins, 20% í
eigu smábænda sem skipulagðir vom í
samvinnufélögum, 13% em enn í eigu
stórjarðeigenda og afgangurinn 44% erí
eigu millibænda. Helsta og mikilvægasta
skilyrðið sem bændur verða að uppfylla
til að halda jarðnæði sínu er að þeir nýti
það tii fullnustu. Enginn er þvingaður tii
að taka þátt í samvinnufélagi en þau
njóta hins vegar góðrar fyrirgreiðslu hja
bankakerfinu, sem er alfarið undir
stjóm sandinista. UNAG sem er samtök,
sjálfseignarbænda og ATC sem er sam-
band landbúnaðarverkamanna, sjá um
að öll þau skilyrði séu uppfylit sem þarf
til að landbúnaðarumbætumar gangi
greiðlega og réttlátlega sé á málum hald-
ið. Hámark hefur verið sett á hve mikið
jarðnæði má vera í eigu hvers einstakl-
ings og bannað er að selja land sem út-
hlutað hefur verið eða skipta því milli
margra erfingja.
Landbúnaðammbótunum er langt í
frá lokið, uppskipting jarðnæðis heldur
stöðugt áfram og samvinnufélögin
breiðast út. Takmarkið er að 50% jarð-
næðis verði í eigu smábænda, 25% í eigu
ríkisins og 25% í eigu millibænda sem
selji afurðir sínar á frjálsum markaði.
Landbúnaðarframleiðslunni er nú
stjórnað með félagslegar þarfir í huga.
Þó hún hafi verið 10% minni 1982 en
1978 var framleiðsla á mikilvægustu
fæðutegundunum meiri 1982 en 1978.
Milli 1977 og 1982 tvöfaldaðist hrís-
Lestrarherferdin 7 980
Á tímum Somoza var opinberlega
reiknað með að ólæsi væri 48%, því
allir þeir sem höfðu farið í fyrsta
bekk voru taldir læsir. Samkvæmt
tölum nýju ríkisstjómarinnar vom
78% íbúanna í dreifbýlinu ólæsir en
28% í borgunum. Til vom lands-
hlutar þar sem 90% íbúanna vom
ólæs.
23. mars 1980 rúmu hálfu ári eftir
valdatökuna hófst herferðin gegn ólæs-
inu. Þessi herferð var skipulögð með
hjálp uppeldisfræðingsins Paolo Freire
frá Brasilíu. Markmiðið var að taka
mið af veruleika fátæka bændafólksins
sjálfs og kenna því ekki aðeins að lesa
heldur gera bændaalþýðu trúa landi
sínu og sögu þess.
200 þúsund manns tóku þátt í þessari
herferð. Þar af voru 60 þúsund - yfir-
leitt unglingar á táningsaldri - sem fóru
til f jalla til að kenna þorpsbúum að lesa
og skrifa. Hlutverk þeirra var þó einnig
að taka þátt í daglegu starfi bændanna,
safna jurtum, skrifa niður alþýðu-
söngva, þjóðsögur o.s.frv.
Lestrarbókin hét ,,E1 Amanecer del
Pueblo“, Dagsbrún alþýðunnar.
Á fimm mánuðum lærðu 400 þúsund
fátækustu íbúar Nicaragua að lesa og
skrifa. Lestrarkunnáttan jókst úr 52%
í 88%. En við getum líka hugsað okkur
að þetta fátæka fólk í Nicaragua hafi
einnig öðlast sjálfsvirðingu, þá tilfinn-
ingu að byltingin snerti líka þeirra líf og
starf.
23. ágúst var herferðinni formlega
lokið með fjöldafundi í Managua. Síð-
ar fékk þessi lestrarherferð verðlaun
frá Unesco.
Lestrarkennsla fer nú fram á kvöld-
námskeiðum sem skipulögð eru af full-
orðinsfræðslunef ndum.