Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 35
ódáðahraun.
29
ið kl. 11 settust þeir að undir Arnarfelli næsta dag
vori þeir þar um kyrt til að hvíla hestana; 3. júlílijeldu
þeir aptur á stað; til þess að komast hjá illum jökul-
kvíslum, riðu þeir upp á jökulinn fyrir norðan Arnar-
fell og voru á honum 3 klukkustundir; þegar þeirkomu
niður af honum, fór að gera fjúk á norðaustan ; hjeldu
þeir síðan í austur yfir aura og melöldur, og tjölduðu
kl. 10 um kvöldið undir hálsum, sem ganga norður úr
Tungnafellsjökli. Uin kvöldið för að birta upp, en þó
var 1° frost um miðnætti. Um morguninn var fremur
gott veður, en þykkt lopt og drungalegt; hestunum var
gefið hey um kvöldið og utn morguninn, ogkl. 12kom-
ust þeir á stað. Um miðdegi fór að hvessa og gerði
kafaldshríð með frosti á austan, svo ekkert sást; þegar
á daginn leið, varð hvassviðrið svo mikið, að varla var
hægt að sitja á hestunum, og illt að koma þeim áfram
á móti veðrinu; snjórinn var nú víða orðinn svo mikill,
að hestarnir sukku ofan í gjótur og rifur, svo taka varð
ofan, og hindraði það mjög ferðina. Framan af lá leið-
in yfir lága móbergshryggi, en nokkru fyrir austan
Skjálfandafljót fóru að koma hraun, og sýndust ýmsir
smáir straumar hafa runnið norður á við úr fjöllun-
um fyrir sunnan; riðu þeir síðan suður á við og hjeldu
áfram austur á bóginn utan í hlíðum fyrir neðan jök-
ulinn, unz þeir urðu að fara niður á sljettuna, til þess
að krækja fyrir Reykjarfell (Kistufell). Seint um kvöid-
ið hvíldu þeir sig í tvær klukkustundir fyrir austan þetta
fjall, átu kvöldverð og gáfu hestunum seinustu hey-
tuggurnar sem til voru. Hjeldu þeir síðan áfram alla
nóttina, því eigi var um annað að tala, því hestarnir
hefðu getað týnzt af hungri, efþeir hefðu beðið oflengi.
Komu þeir niður á breiða sanda og riðu kl. 5 um morg-
uninn 5. júlí yfir margar kvíslir, sem renna í Jökulsá á
I'jöllum; hvassviðrið bjelzt allt af þennan dag og byl-
urinn, og hestarnir voru orðnir svo örmagna af hungri
°g þreytu, að þeir livað eptir annað lögðust niður undir