Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 41
Odáðaliraun.
35
stjórnin út menn til þess að skoða eldstöðvarnar og
rannsaka ýmislegt, er snerti jarðfræði í Þingeyjafsýslu;
fyrir förinni var jfohnsírup, prófessor við háskólann í
Kaupmannahöfn; með honum voru Caroc sjóliðsforingi,
og stúdentar tveir, Howitz og þorvaldur Ihoroddsen.
I’óru þeir Johnstrup sem leið liggur frá Akureyri, upp
Bárðardal að Svartárkoti. Þaðan fór Johnstrup 30. júní
1876 heina lcið upp í Dyngjufjöll, með verkfæri, nesti
og tjöld. Öfærð mikil var af snjó í Jónsskarði, og gekk
örðugt að koma hestunum. Tjöld voru sett norðan til
í Öskju nálægt Jónsskarði; dvöldu þeir Johnstrup og
Caroc þar rúma viku, en hestar allir og fylgdarmenn
sneru aptur niður að Svartárkoti. Caroc mældi Öskju
og niðurvarpið, en Joimstrup fjokkst við jarðfræðisrann-
sóknir. fetta var í fyrsta sinn, að nokkurt eldfjall í
Odáðahrauni var rannsakað á vísindalegan hátt. Veður
var gott framan af, en eptir 5 daga fór það að vorsna,
og komu þá kafaldshríðir og dimmviðri; fóru þá tveir
af fylgdarmönnum Johnstrups frá Svartárkoti upp að
fjöllum til þess að sækja þá fjelaga, en villtust, koinu
liestunum ekkert fyrir ófærð, og urðu að hverfa aptur
við svo búið. Næsta dag (8. júlí) var veðrið betra, og
tókst þá að ná þeim úr Öskju heilum á húfi. Síðan
skoðuðu þeir eldstöðvarnar á Mývatnsöræfum og gerðu
uppdrátt af hrauninu; fóru þeir Howitz og jporvaldur
þangað 12. júlí, en Johnstrup og Caroc nokkrum dögum
soinna. Síðan skoðaði Johnstrup eldfjöllin fyrir norðan
Mývatn, og fór síðan út á Tjörnes1.
Síðan heíir engin vísindaleg forð verið farin í Ódáða-
Iraun; en tveir Englendingar hafa farið sjer til gamans
ut í Oskju, en engar eða litlar rannsóknir gert. W.G.
1) Fr. Johnstrup : Indberetning om en Undersögelsesreiso
paa Island i 1876, Kbhavn 1877. Fr. Johnstrup: Om de i
Aaret 1875 forefaldne vulkanske Udbrud paa lsland (Geo-
grafisk Tidskrift I. 1877, bls. 50-66).
3*