Andvari - 01.01.1885, Blaðsíða 82
76
Odáðahraun.
andafljóti að vestan að íshólsvatni; vatn þetta er mjög
djúpt, að sögn 50—60 faðmar; þverhnýpt dýpi, þegar
stutt er komið frá landi. Mikið berst í vatnið af rok-
sandi, og hlíðarnar í kring eru víðast hvar blásnar upp.
Silungur kvað vora þar töluverður, en illt er að veiða
hann, því óvíða er svo grunnt, að hægt sje að koma við
neti. I vatninu er allangur hólmi. ]aað er eflaust helm-
ingi stærra en sýnt er á Uppdrætti íslands. Milli Skjálf-
andaíijóts og íshólsvatns er örmjótt eiði, riðum við yfir
það, og svo yfir íljótið á Hrafnabjargavaði; það tekur
nafn af stórum móbergshömrum rjett fyrir neðan ; það
er eitt hið bezta vað á Skjálfandafljóti, fremur gott í
botninn og grunnt; nú var áin tæplega í kvið. Síðan
riðum við upp með fljótinu að austan. Fyrir ofan Hrafna-
bjarpavað er maðtir kominn töluvert bærra en botninn
er á Bárðardal, en þó er hjer áfratnhaldandi fljótsdalur
með hlíðum á báða vegu. Á Uppdrætli íslands eru ýms-
ar ár sýndar, er falla í Skjálfandaíljót að austanverðu
undir Odáðahrauni; eru nöfnin rjott, en rennsli, lengd
og afstaða lijótanna er töluvert öðruvísi en þar er sýnt.
Uyrzta áin, sem hjer uppi á hálcndinu fellur í Skjálf-
andalljót, er Sandá; fast norðan við mynni hennar eru
Skafhólar, og þar hefir hraunkvisl fallið niður að fljót-
inu. I Sandá falla ýms drög að sunnan og fram með
þeim eru allmiklir liagar og afrjettur Bárðdælinga, er einu
nafni heitir Hafursstaðaheiði; eíst er Kolrnúladalur og á
samnefnd ; rnilli hennar og lirauns er Kolmúladalsalda;
þar á dalnum eru aðalstöðvar leitafmanna, og eiga þeir
sjer þar stórt skýli eða kofa hlaðinn úr torfi, þannig að
hleðslan er blaðin saman í topp efst; því næst taka við
Hylludalsdrög, þá Breiðdalur, þá Langidalur og næst
fljótinu Grafarlönd vestari, rjett fyrir ofan Hafursstaða-
hlíð. Næsta á fyrir sunnan Sandá er Sandmúladalsá;
kemur hún upp í þremur drögum og fellur í fljótið fyrir
sunnan Hafurstaðahlíð. Frá mynni hennar er skammt
suður að Krossá; kemur hún undan tveim hrauntöglum,