Fálkinn - 22.02.1961, Side 22
Nú um þessar mundir hefur reykvísk-
um húsmæðrum verið boðið upp á glæ-
nýja síld. En fiskkaupmennirnir bera sig
illa, allt of fáar líta við síldinni, þótt hún
sé næringaríkasti fiskurinn, sem þær
eiga völ á. Síldin er mjög A og D fjör-
efnaauðug. Sem dæmi má nefna, að D
fjörefnainnihald í 100 g af síld er okk-
ur nóg í 5 daga.
En aðalástæðan fyrir því, hve mörg-
um er illa við síldina, jafnt soðin sem
steikt, eru beinin, en eins og hjá öðr-
um hryggdýrum, sitja þau skipulega og
því enginn vandi að fjarlægja, ef rétt er
að farið.
Þegar síldin er hreinsuð, er hún þveg-
in undir rennandi vatni og strokin frá
sporði upp eftir. Á þann hátt losnar
hreistrið. Nú eru uggar klipptir af og
síldin hausskorin, innyflin dregin úr
með hausnum. Síldin rist á kvið og
innsta himnan hreinsuð burt, bezt að
gera það með bakkanum á hnífnum.
Og þá kemur að beinunum. Síldin
skoluð og þerruð, tekin í vinstri hendi.
Vísifingri og þumalfingri hægri handar
rennt niður með hryggnum og þess gætt
að draga alla geislunga út með hryggn-
um.
Nú er eftir dálítið af smábeinum, sem
auðvelt er að ná úr, þau liggja svo ut-
arlega. Síldin lögð yfir handarbak vinstri
handar, síldin borin upp að ljósinu og
beinin tínd úr með litlum hníf. Við þetta
Ljúffeng-ir kanelsnúðar.
FALKINN
þarf nokkra nákvæmni, því að það eru
einmitt þessi smábein, sem mönnum er
illa við.
Nú er síldin þerruð, helzt ekki þveg-
in, ef hægt er að komast hjá því. Stráð
á flökin örlítið af salti og nú má mat-
reiða hana á ýmsa vegu. Sé ætlunin að
steikja hana er betra að skera einu til
tvisvar sinnum í roðið, svo að það
springi síður. Ýmist er hægt að velta
síldinni upp úr hveiti eða eggjum og
brauðmylsnum, áður en hún er steikt.
Ljúffengt að bera með henni kartöflu-
salat.
SÍLDARRÚLLUR
ÖR NÝRRI SÍLD
Síldin hreinsuð og flökuð. Beinin soð-
in í saltvatni. Síldarflökin þerruð í
stykki eða eldhúspappír, örlitlu salti
stráð á þau og þau rúlluð upp frá sporði
utan um 2—3 piparkorn og lárberja-
lauf. Ydduð eldspýta stungin í (sjá m.)
til að halda rúllunum saman. Beinsoðið
síað, sett í pottinn á ný; út í það er bætt
nokkrum laukhringum, 1—2 msk edik,
steinselja, þurrkuð eða ný, einnig salti
eftir smekk. Síldarrúllurnar soðnar með
gætni í soðinu, látnar á fatið, sem á
að bera þær fram í. Kaldur, þunnur
klútur lagður yfir á meðan. Klst. áður
en síldarrúllurnar eru bornar fram, er
hellt yfir Þær edikslegi; edik, vatn og
sykur blandað saman eftir smekk. Þunn-
ar lauksneiðar lagðar yfir.