Fálkinn - 22.02.1961, Síða 29
þeim — og halda svo karlinum svona
lengi upp á snakki. Það var fjarska
heppilegt, að hann skyldi halda, að það
væruð þér, sem væruð vinur hennar;
— en þessu með bréfin frá honum
skrökvaði hann öllu saman; hann hef-
ur ekkert þeirra lesið. — Og nú er,
hvort þér getið fyrirgefið mér þetta -—
og hvort ég má hitta yður einhvern
tíma seinna?“ — Röddin var lág og
blíð, og flauelsaugun dökku horfðu inn
í mín. Mér þætti gaman að sjá þann
karlmann, sem hefði getað haldið áfram
að vera reiður við hana.
„Hvers vegna einhvern tíma seinna?“
sagði ég og kvað fast að orðunum. „Við
erum saman núna, og hvernig sem til
þess var stofnað, þá sleppi ég yður ekki
aftur fyrst um sinn, það getið þér reitt
yður á.“
Seinna um kvöldið, þegar við döns-
uðum saman á Borginni og vangar okk-
ar þrýstust blíðlega hvor að öðrum, þá
hvíslaði hún allt í einu í eyrað á mér:
„Jæja, hvernig fellur yður nú við Nafn-
lausu vinkonuna yðar?“
„Svo vel,“ hvíslaði ég á móti, „að
ég er ákveðinn í því að gefa henni
nafn — mitt eigið eftirnafn, ef hún vill
þiggja það af mér?“
Eftir nokkra þögn svaraði hún, svo
lágt, að ég greindi naumast orðin: „Það
— það hugsa ég bara, að hún vilji.“
fatrc Akritfar
FRÁ SJONARHOLI STJÖRNUSPEKINNAR
Kæri Astró!
Ég er fædd 1937 klukkan
fimm til sex eða þar um bil
í Húnavatnssýslu. Mig langar
að vita hvers konar manneskja
ég er. Mér finnst ég vera svo
margskipt og botna ekki í
sjálfri mér. Oft á tíðum geri
ég hluti, sem ég sé eftir síðar.
Ég fæ ofsaleg æðisköst, ef allt
er ekki eins og ég vil hafa það,
þó að ég viti sjálf, að það geri
bara illt verra. Ég er gift
manni, sem fæddur er . . .
(fæðingardegi sleppt samkv.
beiðni), en þó mér þyki vænt
um hann stundum, þá elska
ég annan, sem er fæddur. . .
(fæðingardegi sleppt samkv.
ósk). Ég hef elskað hann síð-
an 1952 og ég veit að hann
elskar mig líka. Það er nokk-
uð, sem fólk finnur. — Þó tala
ég aldrei við hann, síðan ég
gifti mig. Mig langar til að
vita hvers vegna ég gifti mig
öðrum þó að ég elskaði hinn
og hvers vegna allt líf mitt,
þótt stutt sé, hafi verið svona
margbreytilegt og einkenni-
legt, að ég skil ekki að nokk-
ur hafi lifað slíkt. Þó ég vildi
skilja við manninn minn þá
get ég það ekki. Af hverju veit
ég ekki. Foreldrar mínir voru
og eru drykkjumanneskjur.
Það er ég ekki. Ég bragða
stundum vín við sérstök tæki-
færi, en ég hef enga löngun í
það og skemmti mér alveg jafn
vel, þótt ekkert vín sé haft um
hönd. En maðurinn minn; hon-
um finnst vín gott og drekk-
ur mjög illa, þótt hann viti
að bað komi illa við mig. Þó
vil ég taka fram, að honum
þykir mjög vænt um mig. Eru
nokkrar líkur til þess að við
skiljum, eða eigum við sam-
an? Mér þykir gaman að
dansa, syngja, mála og teikna
og yfirleitt að öllu, en hann
er svo hræðilega svartsýnn.
Hvernig stóð á því að við gift-
umst? Gerið svo vel, að birta
ekki fæðingardaga og ártöl í
bréfinu, það gæti komið sér
illa fyrir mig. Ég gifti mig
1956. Getið þér skilið nokkuð
í þessu bréfi? Ég skil það varla
sjálf. En mig langar svo að
vita eitthvað um sjálfa mig,
ef hægt er.
ANAVS A.
Svar til Anavs A.
Þér verður nokkuð tíðrætt
um geðsmunalegar breytingar
þínar, sem virðast eiga sér
nokkuð oft stað. Ástæðan til
þessa er barátta milli einstakl.
ingseðlis þíns og persónuleik-
ans, eða með öðrum orðum
milli viljans og hugsananna.
Þetta kemur fram í fæðingar-
korti þínu sem gagnafstaða
milli Sólar og Tungls. Sólin er
tákn einstaklingseðlisins eða
viljans, en Máninn er tákn
hugsananna eða persónuleik-
ans. Þegar þessir þættir eru
svona illa stilltir, kemur það
fram sem ofsalegur skapofsi.
þegar þessi áhrif eru tendruð
eða ert, en svo sérðu eftir öllu
saman á eftir, þegar jafnvægi
kemst á og þú heyrir rödd
innri mannsins, rödd einstakl-
ingseðlisins eða rödd Sólarinn.
ar. Það merkilega er, að svona
afstaða er svo til nákvæmlega
fyrir hendi hjá piltinum, sem
þér finnst þú elska. Þið eigið
því þessa geðsveiflueiginleika
sameiginlega, og ég álít ekki
heppilegt fyrir ykkur, ef þið
hefðuð náð saman. Þannig
hefðuð þið ekki öðlast þá
reynslu og þekkingu á lífinu,
sem æskilegt er. Þú talar um
að foreldrar þínir hafi verið
drykkjufólk og sömuleiðis sé
eiginmaður þinn þeim leiða
vana bundinn. Þetta er gefið
til kynna í ævisjá þinni í
fjórða húsi, húsi heimilisins,
sem er í vatnsmerki. Lægri
tegund áhrifa vatnsmerkjanna
er dýrkun Bakkusar, en hin
æðri áhrif er leit hinna duldu
vega náttúrunnar. í vatninu
er margt dulið og fólk, sem
er undir sterkum áhrifum
vatnsmerkja, leitar oft upp-
lífgunar í vínanda, sem sam-
svarar eldinum og lífgar oft
skynjun fólks upp, þannig að
því finnst drykkjuskapur
skemmtilegur. Eiginmaður
þinn er táknaður með Saturn
og hann er í einu af hinum
þrem vatnsmerkjum, Fiska-
merkinu í tólfta húsi, sem
mundi þýða að hann hneigðist
til drykkjuskapar og svart-
sýni.
Þú ræðir einnig um, að þér
þyki gaman að dansi, teikn-
ingu og að mála. Þetta orsak-
ast af stöðu Sólarinnar, Merk-
úr og Venusar í Vogarskálinni
þegar þú fæðist. Talið er, að
fólk fætt með þessari afstöðu
sé mjög listhneigt og gefið fyr-
ir réttlæti. Þú nefnir, að þú
missir jafnvægið, ef allt sé
ekki eins og þú vilt. Það staf-
ar af þessari réttlætiskennd
frá Metaskálinni. En þó þú
sért gefin fyrir réttlæti, máttu
ekki láta réttlætishneigðina
bitna hastarlega á öðrum. Oft
má satt kyrrt liggja, segir mál-
tækið. Þeir, sem eru undir
sterkum áhrifum Metaskálar-
innar, hneigjast helzt til þeirr-
ar listgreinar, sem lýtur að
formi eða lögun, það er að
segja höggmyndalist, leirmót-
un og húsagerðarlist. Því
mundi ég vilja ráðleggja þér
að reyna við eitthvað slíkt, ef
þú hefðir nokkra möguleika á.
Eiginmaður þinn er fæddur
undir Nautsmerkinu og slíkt
fólk hefur meira gaman af tón-
um og litum heldur en formi.
Bæði Nautsmerkið og Meta-
skálin eru aðal listamanna-
merki dýrahringsins. Hér
sérðu til dæmis einn þátt, sem
er sameiginlegur með ykkur,
og hann er mjög sterkur. Fyr-
ir fimm árum síðan giftust
þið sökum mjög hagkvæmra
aðstæðna þá. Ég álít, að þið
séuð tengd djúpsettari bönd-
um heldur en frá þessari jarð-
vist einni saman og komi þar
til karmisk tengsl. Því verð-
ur að segja að miklu heppi-
legra var fyrir þig að eiga
þennan mann heldur en hinn.
Einnig verður að segja, að eft-
ir korti eiginmanns þíns þá
ríkir mikið meira samræmi
hjá honum en þér, þ.e.a.s. á
því andlega þroskastigi sem
hann er núna. Þar af leiðandi
álít ég, að þú ættir ekki að
hugsa um að skipta um maka,
heldur að reyna að þroska
sameiginlega eðliskosti ykkar,
t. d. í sambandi við listasmekk
ykkar. Það getur veitt ykkur
meiri ánægju heldur en þig
grunar.
FALKINN
29