Fréttablaðið - 08.10.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 08.10.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Gunnleifur til FH Gunnleifur Gunnleifsson samdi við Íslands- meistara FH til þriggja ára. ÍÞRÓTTIR 56 Skór FYLGIRIT UM DÖMUSKÓ • 8. OKTÓBER 2009 Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 FYRIRSÆTAN JOURDAN DUNN tók þátt í tískusýningu Jeans Pauls Gaultier í París nýlega. Þetta þætti ekki tiltökumál ef ekki væri fyrir þá staðreynd að Jourdan á að eiga barn í desember og er því komin sjö mánuði á leið. „Þessa kápu keypti ég nú bara á útsölu í Debenhams fyrir um ári,“ segir Anna Gulla Rúnarsdóttirkápuna s starfaði við fatahönnun í mörg árallt fram til ársi e d Velur frekar vönduð föt Anna Gulla Rúnarsdóttir hefur klassískan stíl og segir það margborga sig að kaupa föt úr vönduðu efni og með góðu handbragði. Slík föt dugi lengi og megi nota nánast að eilífu. Anna Gulla Rúnarsdóttir í kápu sem hún keypti sér á útsölu. Hún heillaðist af mynstrinu enda segist hún hrifin af svörtu og hvítu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 FIMMTUDAGUR 8. október 2009 — 238. tölublað — 9. árgangur VEÐRIÐ Í DAG ANNA GULLA RÚNARSDÓTTIR Velur vandaðan fatnað sem endist lengi • tíska • heimili Í MIÐJU BLAÐSINS verndar viðkvæma húð Leynist þvottavél frá í þínum pakka? Gæði á góðu verði! Tilboðsdagar í TENGI Baldursnesi 6 Akureyri Sími 414 1050 Smiðjuvegi 76 Kópavogi Sími 414 1000 Heiðarskóli tíu ára Heiðarskóli í Reykjanesbæ hélt upp á afmæli sitt með pompi og prakt. TÍMAMÓT 34 DÖMUSKÓR Fjölbreytt úrval í skótísku vetrarins Sérblað um dömuskó FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG FÓLK Valgeir Guðjónsson og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir brydduðu í sumar upp á þeirri nýjung í ferðaþjónustu að bjóða ferðamönnum heim til sín og ætla að halda uppteknum hætti í vetur. Valgeir segir í samtali við Fréttablaðið að þau hafi kynnst þjónustu af þessu tagi erlendis en uppgötvað að ekkert slíkt væri fyrir hendi hér heima. Þau ákváðu því að slá til og hafa tekið á móti þó nokkrum hópum sem hafa fræðst um Ísland, þjóðina og menningu hennar á heimili þeirra í Vesturbænum. - fgg / sjá síðu 62 Valgeir Guðjónsson: Býður útlend- ingum heim HVESSIR Í dag verða suðaustan 10-18 m/s sunnan og vestan til en hægari fram eftir degi annars staðar. Lengst af þurrt norðan og austan til, annars slydda og síðar rigning þegar líður á daginn. VEÐUR 4 5 3 -1 -2 2 Sigur í Cannes Sigvaldi J. Kárason og Formula Fun slógu í gegn í Frakklandi. FÓLK 62 FÉLAGSMÁL Útgjöld sveitarfélaganna vegna félagslegrar þjónustu hafa hækkað um sextíu til sjötíu prósent að jafnaði eftir hrun. Dæmi eru um að útgjöld hafi tvöfaldast hjá ein- stökum sveitarfélögum. Þetta sýnir könnun sem Sam- band íslenskra sveitarfélaga hefur nýverið gert. Hún tók til tveggja þátta félagsþjónustunnar; fjárhags- aðstoðar og húsaleigubóta. Bornir voru saman fyrstu átta mánuðir áranna 2008 og 2009 hjá stærstu sveitarfélögunum með um áttatíu prósent íbúanna. Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs, segir að niðurstaða könnunarinnar hafi ekki komið sér á óvart. „Hvað varðar húsaleigubætur hafa tekjur margra lækkað mikið og fleiri falla því undir reglur um bæturnar. Fólk er líka komið út á leigumarkað- inn vegna missis á eigin húsnæði.“ Gunnlaugur segir að reglur vegna fjárhagsaðstoðar séu mjög strangar og tölfræðin beri með sér alvarleg tíðindi í því ljósi. „Fólk leitar ekki eftir þessari aðstoð nema þegar í nauðirnar rekur. Þetta er fólk sem á fá eða engin önnur úrræði.“ Hjá Reykjavíkurborg fengu 1.371 fjárhagsaðstoð vegna framfærslu fyrstu átta mánuði ársins 2008 en þeir voru 2.081 í ár. Fjölgun á milli ára var 52 prósent. 462 milljón- ir voru greiddar árið 2008 en 843 milljónir í ár, sem er aukning um 82 prósent. Húsaleigubætur fengu 5.292 á sama tímabili árið 2008 en voru 6.842 í ár. Útgjöld borgarinnar vegna húsaleigubóta hækkuðu um 44 prósent, úr 650 milljónum í 935 milljónir. Guðrún Sigurðardóttir, fram- kvæmdastjóri Fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar, segir að málin sem deildin fái til úrvinnslu hafi breyst. „Hefðbundnir viðskipta- vinir félagsþjónustunnar eru fólk sem hefur misst tekjur af einhverj- um ástæðum; vegna veikinda eða atvinnumissis,“ segir Guðrún. „Nú koma fleiri sem eru í alvarlegum vanda þótt þeir hafi tekjur og kemur þar til skuldavandi heimilanna eftir hrunið.“ - shá Rúmlega 700 fleiri fá hjálp frá borginni Útgjöld sveitarfélaga vegna félagslegrar þjónustu hafa aukist mikið eftir hrun. Um 52 prósentum fleiri en í fyrra hafa fengið fjárhagsaðstoð hjá borginni í ár. Bak við tölurnar er djúpstæður vandi einstaklinga, segir sérfræðingur. DÓMSMÁL Fyrsta ákæran fyrir mansal og vændisstarfsemi sem gefin hefur verið út á Íslandi verð- ur þingfest í Héraðsdómi Reykja- ness í dag. Catalina Mikue Ncogo, íslensk kona ættuð frá Miðbaugs- Gíneu, er grunuð um athæfið. Catalina er meðal annars ákærð fyrir að hafa blekkt konu til Íslands undir því yfirskini að hér biði hennar notalegt frí, en síðan hneppt hana í kynlífsánauð og neytt hana til að stunda vændi. Rúmlega fertugur maður, Finnur Bergmannsson, er ákærð- ur fyrir að aðstoða Catalinu við starfsemina. - sh / sjá síðu 6 Tímamótamál á Íslandi: Mansal í fyrsta skipti fyrir dóm VALGEIR GUÐJÓNSSON Bauð útlend- ingum heim til sín í sumar og ætlar að halda því áfram í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FLOKKSBRÆÐUR FAÐMAST Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson féllust í faðma áður en þingflokksfundur Vinstri grænna hófst um níuleytið í gærkvöldi. Jón Bjarnason fylgdist með sposkur á svip. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN STJÓRNMÁL „Við erum öll vinir og félagar og viljum vera það áfram,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, á leið inn á fund með þingflokki sínum um klukkan níu í gærkvöldi. Hann hafði verið spurður hvort væring- arnar innan flokksins upp á síð- kastið kynnu að skilja eftir sig sár. Hann faðmaði Ögmund Jónasson í lyftunni á leið á fundinn. Þingflokkurinn fundaði í gær- kvöldi á óhefðbundnum tíma og fór meðal annars yfir Tyrk- landsför Steingríms J. og þann mikla ágreining sem verið hefur í flokknum vegna Icesave-máls- ins og brotthvarfs Ögmundar Jónassonar úr ríkisstjórn. Á fund- inum átti meðal annars að reyna að sætta ólík sjónarmið í flokknum og koma í veg fyrir að ríkis stjórnin liðaðist í sundur. Fyrir fram var búist við löngum fundi og þegar Fréttablaðið fór í prentun hafði ekkert gerst þar sem tíðindum sætti. - sh Þingflokkur Vinstri grænna reyndi að sætta ólík sjónarmið á kvöldfundi: Viljum öll vera vinir áfram
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.