Fréttablaðið - 08.10.2009, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 08.10.2009, Blaðsíða 50
34 8. október 2009 FIMMTUDAGUR timamot@frettabladid.is Frændi okkar, Baldur Steinbach Skjóli v/Kleppsveg, áður til heimilis að Skeljagranda 8, Reykjavík, lést 24. september sl. Útför hans fer fram í kyrrþey. Margrét Guðmundsdóttir Ingibjörg Guðmundsdóttir Guðrún Guðmundsdóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, stjúpföður og sonar, Ágústs Björns Hinrikssonar Norðurvangi 34, Hafnarfirði. Margrét Hildur Steingrímsdóttir Örn Ingi Ágústsson Hildur Ársælsdóttir Hinrik Þór Ágústsson Hulda Magnúsdóttir Íris Tinna Margrétardóttir Þorsteinn Bjarni Viðarsson Hinrik V. Jónsson Hulda Magnúsdóttir Ástkær móðir mín, Ólafía Guðrún Blöndal (Lóa) Hverafold 27, lést á hjúkrunarheimilinu Eir 1. október sl. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 12. október kl. 13.00. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Anna María Hákonardóttir Blöndal Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Sigurðar Jóns Jóhannssonar frá Hlíð í Ólafsfirði, Skógarhólum 29a, Dalvík. Jóna Berg Garðarsdóttir Rósa María Sigurðardóttir Friðjón Sigurðsson Lára Steina Konráðsdóttir Gunnlaug Ósk Sigurðardóttir Sigurbjörg Helga Sigurðardóttir Hanna Gerður Sigurðardóttir og afabörnin. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Gunnar Hvammdal Sigurðsson veðurfræðingur, er andaðist mánudaginn 5. október, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 9. október kl. 13.00. Guðrún Ingibjörg Gunnarsdóttir Bill Jenkins Helga Gunnarsdóttir Val Bracey Ásta Kristín Gunnarsdóttir Oddur Björnsson og barnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þórir Daníelsson frá Bjargshóli, Miðfirði, sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn 30. september sl., verður jarðsunginn frá Digraneskirkju föstudaginn 9. október kl. 13.00. Margrét Þórisdóttir Magnús Jónsson Daníel Þórisson Helgi Þórisson Ingibjörg Þorkelsdóttir Alexander Þórisson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg systir okkar, frænka og vinkona, Kristjana A. Johnsen lést þriðjudaginn 6. október að hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum, Reykjavík. Útförin verður auglýst síðar. Gerd Inga og Johnny Anna Lisa og Svein Unnar Hrafnhildur, Þorleifur og fjölskyldur. Útför ástkærs eiginmanns míns og föður okkar, Friðriks Árna Kristjánssonar Túngötu 23 Tálknafirði, fer fram frá Tálknafjarðarkirkju laugardaginn 10. októ- ber kl. 14.00. Jarðsett verður í Bíldudalskirkjugarði. Nanna Júlíusdóttir, börn og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Elínborg Þuríður Magnúsdóttir Gullsmára 7, Kópavogi, lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 29. september. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 9. október kl. 13.00. Jóhannes Pétursson Þuríður Ingólfsdóttir Sólborg Anna Pétursdóttir Þórður Friðriksson Magnús Rúnar Pétursson barnabörn og langömmubörn. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. JESSE JACKSON ER 68 ÁRA Í DAG. „Stóratburðir gerast á litlum stöðum. Jesús Kristur fæddist í Betle- hem. Jesse Jackson fæddist í Greenville.“ Jesse Jackson hefur um árabil barist fyrir rétt- indum blökkumanna í Bandaríkjunum og margoft sóst eftir útnefn- ingu Demókrataflokksins sem forsetaframbjóðandi. „Þetta er búinn að vera mjög skemmti- legur dagur, við brutum hann upp að mestu leyti og breyttum út af hefð- bundnu skólastarfi,“ segir Gunnar Þór Jónsson, skólastjóri Heiðarskóla í Reykjanesbæ, en skólinn fagnaði tíu ára afmæli sínu í gær. Hátíðahöldin hófust með því að nemendur smíðuðu eins konar ísmola- skúlptúr á hringtorginu við skólann. Hver nemandi kom með eigið ísmola- listaverk í púkkið, og höfðu margir skreytt molana sína með matarlit, gróðri eða jafnvel leikföngum. Því næst föðmuðu nemendur og starfsfólk skólann sinn með því að mynda utan um hann keðju. Þá tók við skemmtidagskrá í íþrótta- húsi skólans, þar sem viðstaddir sungu afmælissönginn, horfðu á danssýningu nemenda og fylgdust með ljóðagjörn- ingi. Þá vakti tónlistaratriði tveggja drengja í sex ára bekk óskipta athygli, en þeir tóku lagið Mýrdalssandur sem GCD gerði frægt. Annar drengjanna deilir einmitt nafni með öðrum for- sprakka þeirrar sveitar, Rúnari Júlíus- syni. Framlag félaga hans, Hrannars Albertssonar, þótti ekki síðra. Auk þess var nýr skólasöngur valinn úr tillögum sem borist höfðu í samkeppni þar um. Verðlaunalagið var frá Bryndísi Jónu Magnúsdóttur, kennara við skólann, og heitir Skólinn á Heiðinni. Að því loknu var blásið til hádegis- verðar og síðan tók við hefðbundið skólastarf, það er þangað til nemend- ur fengu skúffuköku og mjólk í tilefni dagsins. Gunnar Þór hefur starfað við skól- ann frá stofnun hans árið 1999. Fyrst var hann aðstoðarskólastjóri en tók við skólastjórastarfinu árið 2001. Hann segir skólastarfið hafa þróast allt frá upphafi. Reynt sé að leggja áherslu á listir og verkkennslu, og í skólanum sé góður andi og mikil jákvæðni ein- kenni hópinn. En ætlar hann að vera við skólann í tíu ár enn? „Ég lofa því nú ekki, ég er orðinn háaldraður maður.“ segir hann og hlær, ekki nema 57 ára gam- all. „En ætli maður verði ekki eitthvað lengur,“ bætir hann síðan við. stigur@frettabladid.is HEIÐARSKÓLI: FAGNAÐI TÍU ÁRA AFMÆLI SÍNU MEÐ POMPI OG PRAKT Sex ára Rúni Júl tók lagið ÍSMOLAVERKIÐ Krakkarnir mættu með heimatilbúin ísverk og stöfluðu þeim á miðja umferðar- eyjuna. Ekki er vitað hve marga lífdaga verkið á eftir. MYND/HEIÐARSKÓLI Á þessum degi árið 1977 lauk 29 klukkustunda málflutningi í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Upphaf málsins má rekja til hvarfs Geirfinns Einarssonar 19. nóvember 1974. Seinna meir blandaðist hvarf annars manns inn í málið, Guðmundar Einarssonar. Fjögur ungmenni voru hneppt í gæsluvarðhald og höfð í haldi svo mánuðum skipti. Meðferð á sakborningum var um- deild og Þjóðverjinn Karl Schütz, sem var feng- inn til að stýra rannsókn málsins, lýsti því yfir að meðferð þeirra hefði minnt sig á blómatíð nasismans. Dómur féll í Hæstarétti árið 1980 og voru ungmennin fundin sek. Játningar sínar drógu þau síðar til baka og reyndi Sævar Cieselski að fá málið tekið upp aftur, árið 1996, án árangurs. Sérstaka at- hygli vakti á þeim tíma að Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, hvatti til endur- upptöku málsins. ÞETTA GERÐIST: 8. OKTÓBER 1977 Málflutningi lauk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.