Fréttablaðið - 08.10.2009, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 08.10.2009, Blaðsíða 70
54 8. október 2009 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is Miðjumaðurinn Aron Einar Gunnarsson hjá Coventry hefur farið hægt af stað með enska b-deildarfélaginu Coventry á þessu keppnistímabili en hann var lykilmaður hjá liðinu á síðasta tímabili og var meðal annars kosinn leikmaður ársins af stuðningsmönnum félagsins. „Ég er búinn að eiga í smá veseni þar sem ég er búinn að standa í samningaviðræðum við Coventry og það var ekki að ganga eins og ég hafði vonað. Ég var því pirraður og lét ástandið fara í taugarnar á mér og skorti kannski einhvern drifkraft á æfingum og í leikjum. Ég var bara ekki með hausinn hundrað prósent í lagi og því tók knattspyrnu- stjórinn Chris Coleman mig út úr liðinu. Hann sagði mér að ég hefði ekkert endilega verið að spila illa en að greinilegt væri að ég væri ekki með einbeitinguna í lagi. Það var gott spark í rassinn að vera settur út úr liðinu og ég ákvað bara að ýta þessum samningavið- ræðum til hliðar og fara að einbeita mér að því sem skiptir máli og það er að spila fótbolta. Ég er því kominn aftur í mitt gamla form og hlakka bara til þess að halda áfram að spila með liðinu. Ég á enn eitt og hálft ár eftir af samningi mínum við Coventry og ef þeir eru ekki tilbúnir að bjóða mér nægilega góðan samning þá kemur bara í ljós hvað gerist en þessi mál eru alla vega alfarið í höndunum á umboðsmanni mínum núna,“ segir Aron Einar. „Ég fór í skoðun og myndatöku á hnénu í gær og það er eitthvað að brjóskinu í hnénu á mér og það hefur truflað mig síðustu vikur. Ég fékk sem sagt högg á hnéð í lands- leiknum á móti Noregi á dögunum og eftir skoðun- ina í gær ráðlögðu læknarnir mér að hvíla í viku en sögðu að þetta væri ekkert til þess að hafa miklar áhyggjur af. Ég þurfti því alla vega að draga mig út úr hópnum fyrir leikinn með U-21 árs landsliðinu á föstudag en ég kem heim á sunnudag og þá kemur í ljós hvort ég sé klár fyrir leikinn með a-landsliðinu gegn Suður- Afríku á þriðjudaginn. Við sjáum hvernig þetta fer,“ segir Aron Einar vongóður. ARON EINAR GUNNARSSON: Á NÝ Í BYRJUNARLIÐI COVENTRY EN ÞÓ TÆPUR FYRIR LANDSLEIKINN GEGN SUÐUR-AFRÍKU Gott spark í rassinn að vera settur út úr liðinu > Jóhannes tekur við af Wake Blikar hafa ráðið nýjan þjálfara fyrir kvennalið sitt í knattspyrnu. Jóhannes Karl Sigursteins- son skrifaði í gær undir tveggja ára samning við félagið. Jóhannes Karl er ekki ókunnug- ur í Kópavoginum en hann hefur verið aðstoðarmaður Vöndu Sigurgeirs- dóttur og síðan Gary Wake síðustu tvö sumur. Jóhannes var þar áður aðalþjálfari hjá kvennaliði Stjörnunnar. FÓTBOLTI Eyjapeyinn Atli Jóhanns- son er samningslaus frá KR og hefur verið orðaður við nokkur lið eftir að tímabili lauk. Sjálfur hefur hann þó ekki í hyggju að yfirgefa Vesturbæinn. „Ég hef áhuga á að vera áfram hjá KR og þeir hafa áhuga á að halda mér. Ég mun setjast niður með þeim í vikunni og vonandi klárum við nýjan samning,“ sagði Atli við Fréttablaðið. „Ég er annars voða rólegur yfir þessu öllu. Ég hef eitthvað heyrt af áhuga annarra liða en er lítið að velta því fyrir mér. Ég vil vera áfram hjá KR og það gengur fyrir að spjalla við KR-inga.“ - hbg Atli Jóhannsson: Vill vera áfram hjá KR ATLI JÓHANNSSON Átti fínt tímabil með KR í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR FÓTBOLTI „Ég er með samning við FH og á að mæta til æfinga hinn 8. nóvember næstkomandi. Þannig er staðan hjá mér,“ segir Tryggvi Guðmundsson FH-ingur en hann er talsvert orðaður við brottför frá FH-liðinu. Tryggvi á ár eftir af samningi sínum við félagið en þrátt fyrir það herma heimildir Fréttablaðs- ins að framtíð hans sé ekki trygg hjá félaginu. Tryggvi lenti á bekkn- um í sumar og var að vonum afar ósáttur við það. „Ég vil vera áfram hjá FH en ég neita því ekkert að mig langar að spila meira næsta sumar en ég gerði í sumar. Ég hef trú á því að það geti gerst. Þetta var svolítið skrítið sumar. Ég lenti á bekknum snemma en kom aftur inn sterkur og hélt mér í liðinu út tímabilið. Sýndi að ég hef enn talsvert fram að færa,“ segir Tryggvi, sem úti- lokar samt ekki aðra möguleika. „Maður veit aldrei hvað gerist í þessu. Ef eitthvert félag vill fá mig þá verður það bara að hafa sam- band við FH og það er þá þeirra að ákveða hvort þeir vilji halda mér eður ei. Ég er samt til í að vera áfram,“ segir Tryggvi og neitar að hafa rætt við einhver félög. Orðrómur er um að honum gangi illa að vinna með Heimi Guðjóns- syni, þjálfara FH, en hann blæs á það. „Það er allt fínt hjá okkur Heimi. Ef ekki þá væri hann væntan lega búinn að losa sig við mig,“ sagði Tryggvi. - hbg Tryggvi Guðmundsson segir líklegt að hann verði áfram í herbúðum FH: Vil fá að spila meira næsta sumar TRYGGVI EKKI AÐ HUGSA SÉR TIL HREYFINGS Tryggvi Guðmundsson segir það ekki vera í kortunum að hann sé að yfirgefa FH. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI „Við gerðum okkur náttúr- lega mjög erfitt fyrir með að tapa fyrri leiknum 4-1 á Ítalíu og þegar þær komast yfir í þessum leik þá vorum við í vondum málum. Ég er annars mjög ánægður með hugar- farið hjá mínu liði því stelpurnar voru enn að berjast þegar níutíu og tvær mínútur voru komnar á klukkuna og þannig þekki ég þess- ar stelpur. Þær gefast aldrei upp,“ sagði Freyr Alexandersson, þjálf- ari Vals. Boðið var upp á íslenskar aðstæður með kulda og vindi í gær. Hallbera Guðný Gísladóttir og Laufey Ólafsdóttir komust báðar í ákjósanlegar skotstöður um mið- bik fyrri hálfleiks en skotin rötuðu ekki á rammann. Varnarlega lentu Valsstúlkur annars ekki í stórkost- legum vandræðum. Eitthvað sofnuðu Valsstúlkur þó á verðinum þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik því þá slapp Panico inn fyrir vörn Vals og lagði boltann snyrtilega á fjærstöngina þar sem Sandy Iannella var mætt og gat ekki annað en skorað. Valsstúlkur börðust áfram og uppskáru árangur erfiðisins þegar Katrín Jónsdóttir jafnaði leik- inn með skallamarki á 69. mín- útu eftir hornspyrnu Dóru Maríu Lárus dóttur. Valsstúlkur voru svo nálægt því að taka forystu þegar tíu mínútur lifðu leiks þegar Thelma Björk Einarsdóttir átti þrumuskot langt utan af velli sem fór í slá og yfir. Mínútu síðar náðu gestirnir hins vegar að komast yfir þegar Panico slapp inn fyrir vörn Vals og skoraði af miklu öryggi framhjá Maríu Björgu Ágústs- dóttur í marki Vals. María Björg kom þó í veg fyrir að sigur Torres yrði stærri á lokakafla leiksins þegar hún varði snilldarlega. „Þetta var mjög erfitt og kuldinn hjálpaði ekki til en ég held að við höfum nú þolað hann betur en þær ítölsku. Við vissum að við þurftum að eiga toppleik til þess að fara áfram. Við þurftum líka að taka áhættu með því að færa liðið framar á völlinn og það bauð hætt- unni heim og þær ítölsku kunnu að nýta sér það. Við klúðruðum þessu náttúrlega í fyrri leiknum úti og það er meira en að segja það að vinna upp þann mun hér heima,“ sagði Katrín Jónsdóttir, fyrirliði Vals, í leikslok. omar@frettabladid.is Torres of stór biti fyrir Valsstúlkur Valsstúlkur töpuðu í gær, 1-2, gegn ítalska liðinu Torres og féllu úr keppni í Meistaradeild UEFA. Torres vann einvígið 6-2 samanlagt en þjálfari Vals segir tölurnar ekki gefa rétta mynd af styrkleika liðanna. SNJÓBOLTI Leikið var við kuldalegar aðstæður á Hlíðarenda í gær. Hallbera Guðný Gísladóttir skeiðar hér upp vænginn framhjá snjósköflunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Fyrsta lífvarðanámskeið á Íslandi Öryggisvarðaskólinn 14 til 28 Nóvember 2009 Terr security býður uppá starfsmöguleika á heimsvísu Sími: 698 1666 ovskoli.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.