Fréttablaðið - 08.10.2009, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 08.10.2009, Blaðsíða 78
62 8. október 2009 FIMMTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. sigtun, 6. frá, 8. forsögn, 9. pili, 11. fyrir hönd, 12. skran, 14. veldis, 16. tveir eins, 17. einatt, 18. umfram, 20. rykkorn, 21. gefa frá sér reiðihljóð. LÓÐRÉTT 1. lengdareining, 3. klaki, 4. skynja, 5. lík, 7. sviptur veruleikaskyni, 10. mánuður, 13. sjáðu, 15. flóki, 16. efni, 19. gjaldmiðill. LAUSN „Ég hlusta mikið á gamlar plötur eins og Glenn Campbell og Anne Murray, sem er gamal- dags „feelgood“-tónlist. Svo hlusta ég líka á Hercules and Love Affair og Emiliönu Torrini sem er bara týpísk stelputónlist held ég.“ Sigrún Halla Unnarsdóttir, fatahönnuður. LÁRÉTT: 2. síun, 6. af, 8. spá, 9. rim, 11. pr, 12. drasl, 14. ríkis, 16. tt, 17. oft, 18. auk, 20. ar, 21. urra. LÓÐRÉTT: 1. yard, 3. ís, 4. upplifa, 5. nár, 7. firrtur, 10. maí, 13. sko, 15. strý, 16. tau, 19. kr. Franco og Formula Fun, teiknimyndaþáttaröð sem nokkrir Íslendingar koma að, var valið áhugaverðasta barnaefnið á sjónvarps- og auglýsingahátíðinni í Cannes sem nú fer fram við strendur Miðjarðarhafsins. Sigvaldi J. Kárason er leikstjóri þáttanna og hann var kampakátur þegar Fréttablaðið náði tali af honum. „Þetta er bara rosalegt, þvílíkur rússíbani,“ segir Sigvaldi en hann var stadd- ur inni í fatabúð þegar Fréttablaðið náði tali af honum og var klæða sig upp fyrir kvöld- verð sem honum var boðið að sækja. „Þetta er svona lokuð veislu, hundrað manns mæta og maður á víst að vera snyrtilegur til fara,“ segir Sigvaldi en hann var að einbeita sér að því að hneppa skyrtu sem Fransmaður var að reyna selja honum á meðan samtalið fór fram. Sigvaldi segir að sigurinn hafi gjörsamlega breytt öllu. Nú sé verið að semja um land- svæði sem þáttaröðin á að vera sýnd á. Slíkir samningar séu yfirleitt ekki gerðir fyrr en þættirnir hafa farið í sýningu. Stóru hákarlarnir í bransanum syndi í kringum þau. „Við höfum hitt fólk sem við töldum nær útilokað að hitta en það beið reyndar bara eftir því að ná tali af okkur. Þetta hefur verið alveg ótrúlegt.“ Franco og Formula Fun fjallar um strákinn Franco sem hverfur á vit Formúlunnar með hrað- skreiðu bílunum sínum sem hann ferjar heims- hornanna á milli með flugvélinni sinni. Braut- irnar eru á þeim stöðum sem alvöru Formúlan fer fram nema þær eru gæddar meiri ævin- týrablæ. - fgg Sigvaldi J. Kárason sigraði í Cannes SIGUR Sigvaldi J. Kárason og teiknimyndaserían Franco and Formula Fun sigruðu á Cannes. Hún var valin áhugaverðasta barnaefnið og sigurinn hefur gjör- breytt öllu um dreifingu. „Við Ásta höfum stundum rætt þetta, hvort það væri ekki gaman að bjóða upp á svona hér á Íslandi. Við höfum séð þetta í útlöndum og farið í svona og þetta er miklu persónulegra heldur en að láta ein- hvern fararstjóra þusa yfir manni á fleygiferð inni í rútu,“ segir Val- geir Guðjónsson, Stuðmaður með meiru. Hann og eiginkonan, Ásta Kristrún Ragnarsdóttir, ákváðu í sumar að opna hús sitt í Vestur- bænum fyrir útlendingum, bjóða þeim upp á alvöru íslenska gest- risni með smá fyrirlestrum um íslenska þjóð, sögu hennar og menningu. Ef einhverjir vilja geta þeir fengið að gæða sér á rammís- lenskum veigum sem þau hjónin reiða fram. Heimasíðan reykjavikhospita- lity.com segir raunar allt sem segja þarf en verkefnið er ungt og enn í mótun. Valgeir útskýrir að það hafi kviknað í sumar. „Við ákváð- um að kanna málið og sáum að það var ekkert svona í boði og höfum í róleg heitunum verið að koma þessu á koppinn.“ Valgeir segir að þau hafi gert sér grein fyrir því að þau væru ágætlega sett til þess að taka á móti fólki heima hjá sér. „Maður grípur í gítar inn og svo tengdist ég fornaldar- og víkingasögunni ágætlega hér á árum áður og get því frætt fólk um þann tíma í lífi þessarar þjóðar.“ Valgeir segir þetta hafa farið nokkuð rólega af stað, þau hafi þó fengið nokkra hópa þar sem þetta hafi mælst vel fyrir. „Við fengum til að mynda hóp af Bandaríkja- mönnum hingað til okkar um dag- inn, þetta eru gamlir starfsfélagar, vísindafólk, og það hefur verið þeirra ær og kýr að ferðast saman og fara inn á heimili fólks um allan heim. Það var því ekkert síðra fyrir okkur en þau að hittast og við áttum mjög ánægjulega stund.“ Valgeir bætir því við að þeim hafi alls ekki liðið eins og þau væru stödd á einhverjum útnára, hér töluðu til að mynda allir ensku upp á 8,5. Aðspurður hvort þjón- ustan standi Íslendingum til boða segir Valgeir að auðvitað séu land- ar hans velkomnir heim til þeirra. „Ef fólk er að fara eitthvað út þá bjóðum við fram krafta okkar sem gestgjafar,“ en áhugasamir Íslend- ingar geta nálgast það á heimasíð- unni nematorg.is. Útlendingum er hins vegar bent á áðurnefnda heimasíðu, reykjavikhospitality. com. freyrgigja@frettabladid.is VALGEIR GUÐJÓNSSON: NÝR KOSTUR Í FERÐAÞJÓNUSTU STUÐMAÐUR OG FRÚ BJÓÐA ÚTLENDINGUM HEIM TIL SÍN VELKOMIN Valgeir Guðjónsson og Ásta Kristrún hafa bryddað upp á þeirri skemmtilegu nýjung að bjóða útlendingum heim til sín í Vesturbæinn. Íslendingar geta líka fengið að kynnast þessari sérstöku ferðaþjónustu og hlýtt á ljúfa tóna og fyrirlestur um fornöld og víkinga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fjölmenni var á frumsýn- ingu heimildarmyndar- innar Guð blessi Ísland í Háskólabíói á þriðjudag. Fjölmörg þekkt andlit voru í salnum þó að fjarvera íslenskra útrásarvíkinga hafi verið æpandi, enda biðu þeirra merktir stólar á besta stað. Ólíklegasta þríeykið í salnum var án efa að finna í þriðju efstu sætaröð, en þar sátu saman Hemmi Gunn, Ásgeir Kolbeins og lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson og virtust skemmta sér vel. Hlynur Sigurðsson, upplýsinga- fulltrúi Latabæjar, hefur ákveðið að söðla um og snúa sér aftur að fjölmiðlum. Hann hefur verið ráðinn fréttastjóri sjónvarpsfrétta á Mbl.is og Skjá einum en útsendingar hefjast í næstu viku. Eins og kunnugt er hefur Inga Lind Karlsdóttir verið ráðin fréttales- ari á Skjá einum í tengslum við þetta verkefni. Hlynur er ekki ókunnur því að starfa við fjölmiðla. Hann var frétta- maður á Ríkisútvarpinu og kom svo á fót Fasteignasjónvarpinu sem dó drottni sínum þegar mestu lætin gengu yfir á fasteignamarkaðinum. Tökur standa nú yfir á Wipeout- þætti Stöðvar 2 í Argentínu. Í einu hollinu sem fór út voru samankomin Auðunn Blöndal sjónvarpsmaður, Egill Einarsson líkamsræktarþjálfari, Baldur Rafn Gylfason hárgreiðslu- maður og Alexandra Helga Ívars- dóttir fegurðardrottning svo fáeinir séu nefndir. Einhver mistök urðu við bókun á farseðlum fyrir þennan hóp. Flogið var frá Keflavík til Kaup- mannahafnar og þaðan til Madríd. Þegar þangað var komið varð hópurinn hins vegar að bíða í sólarhring áður en hægt var að fljúga lokaáfangann til Argentínu. Munu þessi þekktu andlit því hafa skemmt sér vel saman við mojito- drykkju, pókerspil og fleira í þeim dúr. - afb, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI „Stóru hárgreiðslufyrirtækin senda reglulega frá sér hárlínur, alveg eins og fatahönnuðir gera. Mér datt í hug að það gæti verið gaman að gera mína eigin línu og ákvað að láta verða af því þar sem þetta er eitthvað sem mér þykir gaman að gera og það hefði verið leiðinlegt ef hugmyndin hefði bara grotnað í hausnum á mér,“ segir Anna Sigríður Pálsdóttir hárstíl- isti, sem sendi frá sér sína fyrstu hárlínu, Psychobilly, fyrir stuttu. Anna sótti innblástur til dagatals- stúlkna sjötta áratugarins og til listamannsins Gil Elvgren auk þess að vera undir áhrifum frá „quiff“-hártískunni sem var vin- sæl á sjötta áratugnum. „Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið gert hér á landi áður þannig að það gæti verið að ég sé sú fyrsta sem prófa mig áfram í þessu hér heima. Vanalega eiga línur sem þessar að veita hár- greiðslufólki innblástur en ég ákvað að gerast svo djörf að dreifa þessu bara til almennings og ekki á stofur,“ segir Anna sem hyggst halda áfram og ætlar að senda frá sér vor- og sumarlínu í byrjun næsta árs. Hárgreiðslustofan Gel hætti fyrir ári og í hennar stað opnaði Barber Theater þar sem Anna Sigga tekur á móti fólki í hár- snyrtingu auk þess að hýsa ýmsar uppákomur. „Rýmið er í boði fyrir hvern þann sem vill nota það. Þar að auki ætla ég að halda bíókvöld mánaðarlega í vetur og sýna myndir sem eru teknar á 8mm filmu. Þett verður allt auglýst betur þegar nær dregur.“ - sm Anna Sigga með fyrstu íslensku hárlínuna HÁRLÍNA Anna Sigríður hefur sent frá sér sína fyrstu hárlínu sem ber heitið Psychobilly. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON PSYCHOBILLY Fyrirsætan skartar hárgreiðslu úr hárlínu Önnu sem hefur hlotið nafnið Psychobilly. MYND/ESTHER ÍR Strandgötu 43 | Hafnarfirði Sími 565 5454 | www.fridaskart.is íslensk hönnun og handverk VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Umhverfismál. 2 Moka snjó. 3 Tölvupóstar blaðamanns Morgunblaðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.