Iðnneminn - 01.03.1997, Side 11
þýtt þessa bók annað-
hvort að hluta eða í heild
sinni á móðurmálið, en
ekki Island. Um þessa
bók var h'ka mikið rætt á
ráðstefnunni, unt rétt
nemenda, útgáfumál Ob-
essu, sem gefur út ritið
„On the Blackboard“ og
framkvæmdastjórn Ob-
essu óskaði eftir að INSI
myndi gefa það út í
framtíðinni. Framboð var
í stjórn Obessu af hálfu
INSI og var Asdís í
framboði. Hún stóð sig
með prýði en náði þó
ekki kjöri. Kosinn var
fulltrúi frá Slóveníu. Einnig var fjailað um
þær ráðstefnur sem voru haldnar á síðasta ári
og var rætt um að Island myndi halda
ráðstefnu um iðnnám árið 1998. Allt það
mál er í vinnslu hjá INSI og BISN.
Þegar aðalfundinum
lauk, þá tók ráðstefnan
við sem fjallaði um rétt
nemanda í skólum. Ráð-
stefnan var mjög áhuga-
verð og var greinilegt að
þjóðirnar vestanmegin í
Evrópu hafa mun meiri
peninga til ráðstöfúnar
en hinar þjóðirnar í
Evrópu. Ráðstefnan fór
þannig fram að skipt var í
hópa og reynt að hafa
ekki tvo frá sama landi í
hverjum hóp og skilaði
vinnuhópurinn svo áliti
til ráðstefnunnar. Þetta
virtist fara eithvað
vitlaust í Norðurlandabúa og voru
Norðurlöndin nánast alltaf saman fyrir utan
Island. Við reyndum að fara í sitthvora
hópana, en að vísu var ég ávallt hjá Norð-
urlandaþjóðunum og fékk mikið af gagnleg-
um upplýsingum úr þeim
vinnuhópum sem hægt
var að nota hér á Islandi.
Ráðuneytismaður frá
ungverska forsætisráðu-
neytinu, György Here-
zeg sem er alþjóðaftilltrúi
(international officer)
kom á ráðstefnuna. Þessi
rnaður var algjörlega
ósamála László Pap frá
utanríkisráðuneytinu.
György talaði mikið um
veldi Rússlands, hversu
mikið herveldi það væri
ennþá og vildi helst
hoppa upp í sæng með
Rússum og gefa skít í
mjög stór borg. Um miðja
borg liggur á sent heitir
Dóná með átta risastórum
brúm sem tengja Pest og
Búda saman. Mikið er um
kastala í borginni og einnig
mikið af fallegum styttum.
Langbest er að ferðast í
lestum milli bæjarhluta á
meðan maður þeytist um
alla borgina. Verðlag í Búda-
pest er mjög misjafnt, á úti-
mcirkuðum var hægt að gera
mjög góð kaup, en aftur á
móti í stóru kringlunum var
verðið eins og hjá Sævari
Karli. Allar nauðsynjavörur
voru ódýrar. Þegar líða tók á
ráðstefnuna var stúlka frá Macedoníu mikið
með okkur. Reyndar elti hún okkur út urn
allt en það var svo sem allt í lagi nema hvað
að hún hafði þá áráttu að vera hrædd við
nánast hvað sem er s.s. kettí, hunda, að vera
ein osfrv. Ekki batnaði það
að öryggisverðirnir voru
með risastóran hund, þá fór
hún ekki út úr húsi nema í
fylgd með einhverjum
traustum aðila og það voru
við Islendingar að sjálf-
sögðu.
Ungverskur matur er mjög
góður, eiginlega allt of góð-
ur því að ég held að ég hafi
bætt nokkrum kílóum á mig
í þessari ferð. Eitt kvöld á
ráðstefnunni eiga allar þjóð-
ir að koma með eitthvað frá
landi sínu til að borða eða
drekka. Við frá Islandi
komum náttúrulega með
íslenskt Brennivín og hákarl sem Gunnar,
varaformaður INSI, hafði stungið að mér
rétt áður en við lögðum af stað til Ungverja-
lands. Hákarlinn var búin að kólna og hitna
nokkrum sinnurn áður en ég bauð ráð-
stefnugestum upp á öll
herligheitin. Þessi gífúrlega
lykt spratt upp og það ætlaði
að líða yfir suma. Sungum
við allt kvöldið og borð-
uðum íslenskan hákarl og
drukkum íslenskt Brennivín.
Flestir fengu sér að smakka
og sumum fannst það
nokkuð gott. Svissneski
fúlltrúinn, Alessandro drakk
t.d. nánast hálfa flösku í
einum teig. I lokin vil ég
þakka þeim Asdísi og
Elísabetu fyrir gott starf
bæði á ráðstefnunni og aðal-
fundinum. Þær stóðu sig
með sóma.
Vesturlöndin. Gaf hann upp tvo kosti til að
bjarga Ungverjalandi upp úr efna-
hagskreppunni, fýrir utan þennan um
Rússland, fara í Nató og ESB eða gera eklci
neitt og standa einir í samfélagi þjóðanna.
Skiptar skoðanir voru á ýmsum málum en
eins og ég hef sagt áður heppnaðist
ráðstefnan rnjög vel.
A meðan við vorum í Búdapest náðum við
að skoða borgina nokkuð vel. Búdapest er
Iðnneminn 1]