Fréttablaðið - 05.11.2009, Page 64

Fréttablaðið - 05.11.2009, Page 64
44 5. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR Hjartaknúsarinn Brad Pitt hefur notað ferðalag sitt til Japans, þar sem hann kynnir myndina Ing- lorious Basterds, til að leita sér að nýju mótor- hjóli. Uppáhaldsmótorhjólið hans eyðilagðist í síð- asta mánuði og hefur hann því notað frítíma sinn í Japan til að finna nýtt. Pitt skemmdi gamla hjól- ið í Los Angeles þegar hann klessti á kyrrstæðan bíl. Sjálfur slapp hann með skrámur. „Það skadd- aðist ekkert nema egóið mitt,“ sagði Pitt. „Ég var að reyna að stinga einhverja papparassa af en í staðinn höfðu þeir góða frétt upp úr krafsinu.“ Verkefnið Love Recycled var kosið besta verkefnið á námskeiði á vegum Háskólans í Reykjavík og Listaháskóla Íslands, en þar fengu nemendur að vinna úr hugmyndum að fjórtán fyrirtækjum og var þema námskeiðsins „góðverk“. „Hugmyndin að baki Love Recycled er að endurvinna skart. Það er fullt af fólki sem byrjar saman og hætt- ir síðan saman einhverju seinna. Í millitíðinni skiptist það ef til vill á gjöfum eins og skarti sem það vill ekki nota eftir sambandsslitin. Hugmyndin er sem sagt sú að fólk komi með þetta skart og við end- urvinnum það. Allur ágóði renn- ur svo til góðgerðarmála,“ segir Svala Hjörleifsdóttir, nemandi við Listaháskólann, sem vann verk- efnið ásamt þeim Haraldi Unasyni Diego, Alexander Clemm, Caroline Inge Baumann, Guðbjörgu Tómas- dóttur, Arnari Frey Guðmundssyni og Bergþóru Jónsdóttur. Svala segir að kynningin hafi átt stóran þátt í að hópurinn hafi unnið verðlaun fyrir bestu hugmyndina. „Kynningin spilaði held ég mikið inn í það að við unnum þessi verð- laun. Við vorum mjög vel undirbú- in og þar af leiðandi lítið stressuð. Svo spiluðum við myndband sem við höfðum gert og það var líka mjög vel unnið.“ Hún segir enn óráðið hvort við- skiptahugmyndin eigi eftir að verða að veruleika í framtíðinni en segist vonast til þess að svo verði. Harald- ur Unason Diego samsinnir þessu og segir verkefnið geta hagnast mörgum í framtíðinni. „Við höfum þegar fengið hringi frá nokkrum einstaklingum og það sem er svo spennandi við þetta er að þeir sem koma að þessu hafa sýnt þessu svo mikinn áhuga. Tækniháskólinn hefur til dæmis efnt til hönnunar- samkeppni þar sem skartið er allt endurunnið. Allur peningurinn rynni til UNICEF og þau samtök yrðu okkar helsti þegi yrði verk- efnið að raunveruleika. Því gætu margir hagnast á þessu.“ sara@frettabladid.is folk@frettabladid.is SNJÖLL HUGMYND Svala Hjörleifsdóttir og Haraldur Unason Diego voru í hópi þeirra nemenda sem unnu að hugmyndinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands urðu alls 549 lögskilnaðir árið 2008, en sama ár voru 1.642 hjónavígslur framkvæmdar. Árið 2007 var fjöldi lögskilnaða talsvert hærri, en samkvæmt Hagstofu urðu alls 1.293 lögskilnaðir það árið. Hafi 549 lögskilnaðir orðið árið 2008 þýðir það að 1.098 hringa væri hægt að endurvinna á einhvern hátt, líkt og Love Recycled býður upp á. Ódýrustu giftingarhringarnir kosta um fjörutíu þúsund krónur hvor og því væri ágóðinn sem rynni til góðgerða- starfs í kringum 43.920.000 krónur á síðasta ári ef allir þeir einstakling- ar gæfu Love Recycled hringa sína. GRÍÐARLEGAR UPP- HÆÐIR Í GIFTINGA- HRINGUM „Það var engin sérstök ástæða að baki þessu, mér fannst bara komið nóg af neikvæðum kreppufréttum og fannst kominn tími til að vera örlítið jákvæð- ari, manni líður vel þegar maður dans- ar og það losar um streitu. Íslendingar ættu að hugsa meira eins og Pollýanna á svona tímum,“ segir Hafdís Arn- ardóttir, sem skipuleggur þög- ult diskó á samskiptavefnum Fésbók. Þögult diskó er orðið nokk- uð þekkt fyrirbæri erlendis. Þá hittist fólk og dans- ar saman en tónlistin sem dansað er við kemur ekki úr hátölurum heldur úr heyrnartólum sem hver og einn ber. Hafdís, sem flutti nýverið heim frá London, segir að mikið sé um þögul diskó þar í borg. „Ég fór á svona viðburð í London. Þar er engin sérstök ástæða fyrir því að svona atburðir eru haldnir heldur þykir fólki þetta bara vera skemmti- legt. Það var mjög súrt að sjá alla dansa við mismunandi takt og heyra enga tónlist.“ Hafdís segist ekki hafa búist við því að atburðurinn mundi vekja eins mikla athygli og raun ber vitni en um 400 manns hafa boðað þátttöku sína. „Ég veit ekki hvort allt þetta fólk muni svo mæta á laugardaginn. En þá dansa ég bara ein við mömmu og pabba, þau ætla bæði að mæta auk annarra fjölskyldu- meðlima og nokkurra vina minna,“ segir Hafdís hlæjandi. Dansinn fer fram á Austurvelli á laugardaginn og hefst klukkan 22.10 og stendur til 22.35. Hafdís tekur fram að fólk eigi að mæta með eigin tónlist til að dansa við. - sm Þögult diskó á Austurvelli DANSAR TIL AÐ GLEYMA Hafdís Arnardóttir boðar fólk á Austurvöll til að taka þátt í þöglum diskódansi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ENDURUNNIN ÁST ÞÓTTI BERA AF BRAD PITT Brad Pitt er að leita sér að nýju mótorhjóli í Japan. Kaupir nýtt mótorhjól Jennifer Hud- son segist enn vera mjög náin móður sinni, Darnell. Ár er liðið síðan hún var skotin til bana ásamt bróður Hudson, Julian, fyrir utan heim- ili þeirra í Chicago. Lík sjö ára frænda hennar fannst sömuleiðis í yfirgefnum bíl þremur dögum síðar. Hudson segir að móðir hennar sé verndarengillinn sinn og fylgi henni hvert sem hún fer. Hún segist finna mikið fyrir nær- veru hennar á hverjum einasta degi. „Ég áttaði mig ekki á því að ég væri svona lík móður minni þar til núna. Hún var ótrúlega sterkur persónuleiki.“ Hudson náin móður sinni JENNIFER HUDSON Sextán ára gamall sonur leikarans Seans Penn, Hopper Jack Penn, var handtekinn í skóla sínum í síðustu viku. Lögreglan í Malibu neitaði að tjá sig um málið þar sem Hopper Jack er enn undir lögaldri. Þrátt fyrir þagmælsku lögreglunnar hafa þær fréttir borist að pilturinn hafi verið handtekinn fyrir að vera með fíkniefni í fórum sínum. Sean Penn og fyrrverandi eiginkona hans, leikkonan Robin Wright Penn, skildu fyrir skömmu og vilja margir meina að hægt sé að rekja handtökuna til erfið- leika heima fyrir. Sonur Penns hand- tekinn í skólanum SONURINN HANDTEKINN Sean Penn var ekki barnanna bestur á sínum yngri árum og nú fetar sonur hans sömu leið. www.facebook.com/graenaljosid FRUMSÝND 6. NÓVEMBER > HOLMES Í GAMANMYND Leikkonan Katie Holmes hefur hlaupið í skarðið fyrir Liv Tyler í gam- anmyndinni The Romantics sem er í undirbúningi. Hún mun einnig koma að framleiðslu myndarinnar. Hún fjallar um átta vini úr menntaskóla sem hittast á nýjan leik í brúðkaupi. Meðal annarra leikara eru Elijah Wood og Anna Paquin.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.