Æskan - 01.10.1974, Blaðsíða 88
BEECH C-45H: Hreyflar: Tveir 450 ha. Pratt & Whitney R-985-
AN-14B. Vænghaf: 15.13 m. Lengd: 10.30 m. Hæð: 2.90 m. Væng-
flötur: 33.5 m=. Farþegafjöldi: 10. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 2.788 kg.
Hámarksflugtaksþyngd: 4.620 kg. Arðfarmur: 7.930 kg. Farflug-
hraði: 300 km/t. Hámarkshraði: 412 km/t. Flugdrægi: 1500 km.
Hámarksflughæð: 5.400 m. 1. flug: 1937.
NR. 184 TF-FRA, -OAA
CLOUDMASTER
Skráð hér 28. apríl 1969 sem TF-FRA, eign Fragtflugs hf. Hún
var keypt af Japan Air Lines (JA 6207).
Hún var smíðuð hjá Douglas Aircraft Company, Long Beach,
Kaliforníu. Raðnúmer: 45060.
Þessi flugvél var notuð sumarið 1969 til birgðaflutninga til
Biafra.
19. des. 1969 var stöfum vélarinnar breytt i TF-OAA. Hún hefur
síðan verið notuð til vöruflutninga að og frá íslandi. 22. júní 1973
var flugvélin skráð eign íscargo hf.
Fyrsta flug til Islands ■
„Flugvélarnar eru a5 koma! Flugvélarnar eru að koma!“
hrópuðu krakkarnir, sem komu hlaupandi út úr símstöð-
inni á Höfn í Hornafirði síðdegis hinn 2. ágúst 1924. Hún
Anna símastúlka hafði fylgst vel með öllu varðandi þessar
flugvélar, sem voru á leið til landsins, og hún vissi því vel
um þetta.
En hvaða flugvélar voru þetta? Það vissu börnin ekki
svo gjörla fyrir 50 árum, en nú vitum við meira. Vélflugið
var ekki nema 20 ára, þegar lokið var við að smíða nokkrar
flugvélar vestur í Kaliforníu, og var þeim ætlað að fljúga
umhverfis hnöttinn. Svo löng leið hafði ekki áður verið
flogin. Margir flugkappar í ýmsum löndum vildu gjarnan
verða fyrstir til að vinnia slíkt afrek. Það voru því vfða
gerðar áætlanir og teikningar af nýjum flugvélum í þessu
skyni.
Donald W. Douglas flugvélasmiður teiknaði og sá um
smíði á fimm sterkum flugvélum af gerðinni DWC. Fjórar
þeirra lögðu af stað frá Smáravelli 17. mars 1924 og þar
með var fyrsta hnattflugið hafið. Hér verða allir viðkomu-
staðirnir (yfir 70) ekki taldir upp, en tveir þeirra standa
okkur nærri, nefnilega Hornafjörður og Reykjavík.
Símastúlkan á Höfn hafði rétt fyrir sér: Flugvélarnar
voru að koma, og um klukkan hálf sjö að kvöldi hins 2.
ágúst settist hin fyrri af tveimur flugvélum á Mikleyjarál.
Flugstjóri hennar hét Erik H. Nelson, af sænskum ættum.
Honum var boðið hingað til lands árið 1959, á 40 ára
afmæli (slenska flugsins. Þá var reistur stuðlabergsdrang-
Ljósm.: Arngrimur Sigurðsson.
DOUGLAS DC-6B CLOUDMASTER: Vænghaf: 35.81 m. Lengd;
32.18 m. Hæð: 8.72 m. Vængflötur: 136 m». Áhöfn: 2. Tómaþyngd-
27.000 kg. Hámarksflugtaksþyngd: 48.000 kg. Arðfarmur: 8.000
kg. Farflughraði: 440 km/t. Hámarkshraði: 550 km/t. Flugdrægi-
4.800 km. Hámarksflughæð: 7.620 m. 1. flug: 1951.
Flugvélarnar yflr Reykjavík.
ur til minnis um þetta fyrsta flug til íslands. Flugvél Nelsons
hét New Orleans og var nr. 4, en hin flugvélin hét Chicag0’
nr. 2.
Hinn 5. ágúst 1924 flugu báðar flugvélarnar til Reyki3
víkur, og var eftirvæntingin ekki minni þar en á Höfn,
bæjarbúar fylgdust með af áhuga. í Reykjavík var dýtta
að flugvélunum og flugmennirnir hvíldu sig. Héðan
þeir til Grænlands 21. ágúst, og var það fyrsta fluð ír
íslandi.
A. S.
Fyrsta heimsflugifi 1924
86