Æskan - 01.10.1974, Blaðsíða 112
■n
Jón E. Guðmundsson ásamt nokkrum brúðum.
ÚtilegumaSur.
Siggi snarráSi og útilegukonan.
fslenska brúðuleikhúsiS mun bráðlega hefja starfsemi
sína að nýju, og er þetta 20. starfsárið. Alls hefur það flutt
11 leikrit á þessum tíma, og hafa sum þeirra verið flutt
mjög oft. Má þar til nefna leikritið Eldfærin eftir H. C.
Andersen. Það var í gangi af og til á árunum 1955—1960
og var þá sýnt 125 sinnum. Einnig kom það í sjónvarþinu
árið 1970. Þá má og geta leikritanna Dýranna í Hálsaskógi
og Kardimommubæjarins, en þau voru bæði sýnd um það
bil 100 sinnum.
Leikrit það, sem (slenska brúðuleikhúsið ætlar að sýna
okkur núna í vetur, nefnist Norður kaldan Kjöl og er eftir
Ragnar Jóhannesson cand. mag. Efni þess er f stórum
dráttum það, að eitt sinn f gamla daga þurfti Skálholts-
biskuþ að senda mann með bróf norður til Hóla í Hjaltadal,
og var það að vetrarlagi. Lendir sendimaður ( ýmsum
ævintýrum og mannraunum á leið sinni norður, enda var
í þann tíð meira af tröllum og útilegumönnum uþþi á fjall"
lendinu en nú gerist!
Leikrit þetta, NorSur kaldan Kjöl, verður sýnt f Norræna
húsinu um mánaðamótin október—nóvember og má segjn,
að Þetta verði yfirlitssýning, því að þarna mun Jón E. GuÖ-
mundsson teiknikennari sýna einnig þrúður úr eldri leik-
ritum, en Jón hefur haft veg og vanda af Islenska brúðu-
leikhúsinu allt frá uþþhafi þess.
ÁHUSALJÓSM YNDARINN
110