Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1976, Side 76

Æskan - 01.11.1976, Side 76
Heimilið Napóleonssúpa Napóleonssúpa er búin til úr mjög kröftugu kjötseyði; gott er að bæta kjötseyðið með oxokrafti og bolla af sherry. Uppbakaðar bollur eru notaðar í súpuna, tilbúnar af 125 g vatni, 125 g smjöri og 200—250 g hveiti. Hveitið er látið í, allt í einu og þeytt saman við vatnið og smjörið. Lambakótilettur eru tilbúnar úr lambahrygg. Hér um bil 5 cm af rifjunum er látið fylgja með. Sagið hrygginn langs eftir miöju og höggvið síðan kótiletturnar eftir lið- um. Berjið þær létt. Blandið salti í tví- bökumylsnu. Dýfið kótilettunum í þurrt hveiti. Síðan í vel útþeytt egg og síðast í brauðmylsnu. Látið smjör á pönnu, brúnið það vel, látið kóti- letturnar á og brúnið þær fallega í smjörinu, h. u. b. 10 mínútur. Gætið þess að láta kótiletturnar ekki brenna, en snúið þeim á pönnunni. Brúnaða smjörið er framborið ásamt hvítum kartöflum. Gott er að hafa blandað grænmeti, svo sem gulrætur, grænar baunir, blómkál eða rauðkál. Karamellubúðingur Karamellubúðing er best að búa til daginn áður. Byrjið á að brúna sykur í vatni, svo sem 1 pund strausykur, Vz pela af vatni. Hrærið stöðugt í, þang- að til sykurinn rennur út aftur. Látið sykurlöginn fá fallegan, brúnan lit á sig. Takið hringform, vefjið handlegg og hönd handklæði, hellið síðan nokkrum hluta af karamelluleginum í formið, snúið því fljótt í hendi ykkar, til þess að sósan storkni ekki á einum stað í forminu, heldur látið hana renna vel um botninn og hliöar formsins. Afgangurinn af sykur- leginum er blandaður heitu vatni og hann geymdur til næsta dags. Áður en sósan er fram borin, er hún baeú með þeyttum rjóma. Karamellubúðingurinn er búinn til úr 12 eggjarauðum, hrærðum meó 75 g strausykri, þangað til rauðurnar verða hvítar sem þeyttur rjómi væri. Sjóðið 1 I af rjóma eða rjómablöndu (má nota góða mjólk), 1 stöng vanillu sem þið skerió langs yfir. Er rjóminn sýður, hellið þið sjóðandi rjómanum ' dropatali í eggjarauðurnar. Þeytið með þeytara vel í eggjunum. Þegar þið hafið hellt rjómanum í eggin. haldið þið áfram að þeyta kremið, uns kalt er. Þeytið 6 eggjahvítur, blandió þeim í kremið og fyllið síðan formið- Sjóðið búðinginn hér um bil 2 klst. við hæga suðu í vatnsbaði og hafið þétt* an hlemm yfir forminu. Næsta dag. þegar þið berið fram búðinginn. hvolfið búðingnum á fat. Þeytið 1 ^ pela af rjóma og fyllið inn í hringinn og skreytið búðinginn með því að sprauta rjóma þvers yfir röndina a 4—6 stöðum. KÖKUR Smjördeig (Butterdeig) Mörgum finnst butterdeig erfitt o9 vandasamt viðureignar. En ef cétt e meö fárið, komist þið á aðra skoðun- Leggið butterdeigið tveim klst. áðo en þið fletjið það út. Butterdeig ® búið til úr 1 pundi hveiti, 1 Pun smjöri og 1 pela vatni. Hveitið er lá*1 á borðið. Helmingur af smjörinu mu inn milli handanna saman við hveiti ÆSKAN — Sendið blaðinu ykkar sögur, ferðaþætti og Ijósmyndir 74

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.