Skírnir - 01.01.1931, Síða 162
156
Um Gauk Trandilsson.
[Skirnir
nafn hans úr Styrmisbók, en Þórðarbók virðist hins vegar
hafa þenna kapítula úr Melabók, að minnsta kosti að nokkuru
leyti. Verður því að ætla, að Sturla eða síðari afritari
Sturlubókar hafi fellt nafn Gauks niður. Kapítulinn, seni
hér um ræðir, er þannig í Þórðarbók (eftir heimild Mela-
bókar:1)
»Þorbjörn laxakarl nam Þjórsárdal allan og Gnúp'
verjahrepp ofan til Kálfár og bjó hinn fyrsta vetur að Mið-
húsum; hann hafði þar vetrsetu, áður hann kæmi í Haga
og byggði þar til dauðadags. Hans synir voru þeir Otkell
í Þjórsárdal og Þorgils, faðir Otkötlu, móður Þorvalds, föður
Döllu, móður Gizurar byskups; þriði var Þorkell trandill;
hann var faðir Gauks i Stöng«.
Þorbjörn laxakarl er einn þeirra landnámsmanna, sem
ekki er getið, hvaðan komið hafi til íslands, en af kvon-
fangi hans mætti ráða, að hann hafi komið vestan um haf-
Kona hans var Una, dóttir Steinólfs hins lága úr Hrísey,
Ölvissonar, barnakarls. Ölvir var »ágætr maðr í Noregi;
hann var víkingr mikill; hann lét eigi henda börn á spjóts-
oddum, sem þá var víkingum títt; því var hann barnakarl
kallaðr«, segir Landnámabók.2) Ætt Ölvis dreifðist víðs
vegar um Vesturlönd og gerðist mjög fjölmenn á íslandi
er fram liðu stundir; er það Ölfusinga kyn. Systir Unu var
Salgerður, er Ingjaldur að Þverá átti, sonur Helga magra;
þeirra sonur var Eyjólfur, faðir Víga-GIúms. Annar sonur
Ölvis barnakarls var Einar, faðir Ófeigs grettis, Ólafs breiðs
og Hrolleifs. Dóttir Ófeigs grettis var Ása, er Önundur
tréfótur átti, að sögn Grettis sögu. Sonur Ólafs breiðs var
Þormóður skafti, faðir Þórvarar, móður Þórodds goða, föður
Skafta lögsögumanns, en sonur Hrolleifs var Svertingur
faðir Gríms lögsögumanns að Mosfelli. Þriðji sonur Ölvis
var Steinmóður, faðir Konáls, föður Álfdísar hinnar barr-
1) Landnámab. 1921, bls. 23. Sbr. útg. 1843, bls. 310, útg-
1925 bls. 25.
2) Ldn. útg. 1843, bls. 30S, útg. 1925 bls. 24. Um viðurnefnið
barnakarl má benda á ritgerð eftir Halldór Hermannsson í Arb~
Fornleifafél, 1920, bls. 3-7.