Skírnir - 01.01.1931, Page 206
200
Eirikur i Bót og Eirikur á Rangá.
(Skirnir
liðu og það þótti nægilegt að nefna hann »Eirík á Rangá«f
til þess að menn vissu, við hvern væri átt. Hann stóð fyrir
minni manna sem hinn alkunni sæmdarmaður, »Eiríkur á
Rangá«.
Á skólaárum mínum átti ég tal við gamla konu i Borg-
arfirði, sem Katrin hét, um ætt hennar, og fann að hún
var minnug vel og greind og fróð um ætt sína og fleir*
ættir, og skrifaði ég ýmislegt eftir henni. Faðir hennar var
Jón hreppstjóri á Urriðavatni í Fellum, Árnason bónda á
Löndum í Stöðvarfirði, Torfasonar í Sandfelli, Pálssonar
prófasts á Kolfreyjustað, Ámundasonar. Móðir Jóns var Guð'
laug dóttir Sigurðar prests í Heydölum Sveinssonar. Jón
var gáfumaður og fróðleiksmaður mikill um ættir og margt
fleira og i miklu áliti meðal almennings í Fljótsdalshéraði-
(Systir hans var Guðrún móðir Jóns ættfræðings á Ketils-
stöðum á Völlum og í Eskifirði.) Kona Jóns og móðir Kat-
rínar var Ingibjörg dóttir Einars bónda á Urriðavatni Hildi'
brandssonar; en móðir Einars var Ingibjörg dóttir Snjólfs
Sæmundssonar á Urriðavatni og Kristínar dóttur »Eiríks á
á Rangá«. Katrin var þannig 5. maður frá Eiríki á Rangá-
En ekkert vissi hún, hvers son hann var eða neitt um fram-
ætt hans.
Aftur á móti mundi hún það með fullri vissu, að Kristín
á Urriðavatni, dóttir Eiríks á Rangá, hefði verið náskyld
Oddnýju á Arnheiðarstöðum, móður Árna hins ríka. Hafði
hún heyrt ýmislegt um vináttuskifti milli þeirra. En ekki
vissi hún, hvernig skyldleika þeirra \rar háttað, en taldi
hann eigi að síður óyggjandi.
Föðurnafn Eiríks fékk ég fyrst að vita 1927 af fyrir-
sögninni á eftirmælum séra Þorvalds eftir hann í safni Jóns
Sigurðssonar, sem áður var minnzt á, þar sem hann er
kallaður »Hallsson«.
Kristin dóttir Eiríks á Rangá er 12 ára 1703 og er þá
»í fóstri« á Hrafnabjörgum í Hlíð hjá Katrínu dóttur Ás-
mundar blinda og Hróðnýjar frá Bót. í eftirmælunum segiL
að Eiríkur hafi verið orðinn aldraður maður (»af eldri
mönnum heldra«), en þó eigi kominn á elliár (»að ei elh