Kirkjuritið - 01.12.1942, Blaðsíða 19
Kirkjuritið. 400 ára minning Guðbr. Hólab.
321
segja, að biskupsdæmið væri í innra skilningi að mikiu
leyti kaþólskt, er Guðbrandur biskup kom á Hólastól.
Siðbót Lúters liér á landi ruddi sér, ef til vill, i upphafi
fremur braut af öðrum ástæðum en hinum trúarlegu,
þar sem almenningur ‘átti í hlut. Menn voru þrevttir á
binu þunga valdi kirkjunnar, þreyltir á ofríkisfullum
klerkum og óttuðust, að kirkjan eða hinir kaþólsku bisk-
unar seildust um of eftir eignum þeirra og fjármunum.
Með siðbótinni vænti, án efa, margur maður i bessu
landi, að siðbótin kæmi með meira öryggi og frelsi. —
Þjóðin var á þessu skeiði að ýmsu levti illa setl í trúar-
legum skilningi. Kirkjulífið lantað og í fjötrum. Presta-
stéttin var fátæk og' dauf og, að vísu með ágætum undan-
tekningum, fáfróð um flest, er laut að hinum nýja sið,
og svo mátti raunar segja um allan þorra manna. En
nú var foringinn kominn, nýr, glæsilegur og' djarfur foringi,
eldheitur siðbótarmaður, hertygjaður áræði, glæsileik,
lærdómi og gáfum, albúinn þess að leggja fram alla
krafta sína. Ilann skildi J)að auðvitað strax, að iiið fyrsta
verkefni hans var að gera eitthvað fyrir prestana, eftir
að hann hafði tekið við embættinu. Hjálpa þeim áfram
lil ytra og innra sjálfstæðis og þroska. Hann vissi, að
verkefni lians í kirkjustjórninni mundu verða svo mörg
og stór, að hann þvrfti mjög á því að halda, að presta-
stéttin skildi þau og stæði með honum. Hann gerði sér
lika ágætustu presta í Hólastifti að tryggða- og trúnað-
arvinum: Séra Sigurð Jónsson á Grenjaðarstað, séra
Gottskálk Jónsson í Glaumbæ, séra Björn Gíslason í
Saurbæ, séra Erlend Pálsson að Breiðabólstað o fl. Ég
nefndi séra Sigurð Jónsson á Grenjaðarstað. Hann hafði
einnig verið alúðarvinur Ólafs biskups Hjaltasonar.
An efa hefir þar verið sérstaklega drenglyndur og ágæt-
ur maður. Hann var í raun og veru kjörinn Hólabiskup
al' Norðlendingum eftir Ólaf biskup, en ekki Guð-
brandur Þorláksson. En konungur vildi ekki sinna því
kjöri, er í hlut átti svo náinn ættingi Jóns biskups Ara-