Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Page 26

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Page 26
26 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ „Enn þann dag í dag er mér illa við að sjá ísingu“ Rætt við Þórð Guðlaugsson 1. vélstjóra sem hér minnist baráttu áhafnarinnar á Þorkeli mána RE-205 í Nýfundnalandsveðrinu í febrúar 1959 Marteinn Jónasson skipstjóri á Porkeli mána í brúarglugganum. Hann sýndi mikinn dugnað og þrek í hrakningum skipsins. Nýfundnalandsveðrið mikla í febrúar 1959 mun aldrei gleymast og sú minning sem við það er bundin og sárust er mun sú þegar togarinn Júlí frá Hafnarfirði fórst í þessu veðri með allri áhöfn, 30 manns. — En fleiri togarar lentu í miklum erfiðleikum sem í minnum verða hafðir og þó sérstaklega sú vá sem steðjaði að togaranum Þorkeli mána RE-205, en litlu mátti muna að skipið færist vegna óskaplegrar ísing- ar sem áhöfnin stóð í stanslausri bar- áttu við í 72 klukkustundir. Einn þeirra manna sem gat sér orð fyrir vasklega framgöngu í þessari raun var Þórður Guðlaugsson 1. vélstjóri, en það kom m.a. í hans hlut að log- sjóða hinar fjórar heljaþungu báta- uglur af afturdekki skipsins. Þórður Guðlaugsson var 24 ára þegar þetta var og enn er hann á sjónum, 63 ára gamall, 1. vélstjóri á Ottó N. Þorláks- syni. Þótt tíminn breiði yfir margt og menn muni ekki allt jafn nákvæm- lega og var þegar frá líður tók Þórður því vel að eiga viðtal við Sjómanna- dagsblaðið um þessa baráttu upp á líf og dauða fyrir 37 árum. Hann býr nú að Flúðseli 4 og er kona hans Ólöf Hafliðadóttir hjúkrunarfræðingur. Þau eiga 4 börn. „Eg er fæddur að Stóra Laugardal í Tálknafirði þann 10. júní árið 1933 og eru foreldrar mínir Hákonía Páls- dóttir sem enn er á lífi og Guðlaugur Guðmundsson bóndi sem látinn er fyrir nokkrum árum,“ segir Þórður Guðlaugsson. „Á Tálknafirði hófst ekki raunveruleg þorpsmyndun fyrr en eftir 1946 þegar þar var byggt frystihús og keyptur 27 tonna vélbát- ur, Sæfari að nafni, og er þorpið nú í daglegu tali nefnt Sveinseyri, sem kunnugt er. Fram til þess tíma höfðu bændur í Tungulandi, eins og byggð- in nefndist, aðeins stundað nokkra trilluútgerð. Búskap höfðu menn ekki mikinn, en talsvert var um að vinna væri sótt út í frá og þá helst til Patreksfjarðar." Ungur mótoristi „I Stóra Laugardal ólst ég upp uns ég hóf sjómennsku mína á áður- nefndum Sæfara frá Sveinseyri árið sem ég fermdist eða 13 ára gamall. Þar um borð vaknaði áhugi minn á vélstjórn, því ég var snemma gerður að vélamanni um borð, þótt kunn- áttu hefði ég litla. En sú var bót í máli að skipstjórinn var lærður vélstjóri og gat sagt mér til. Kom sú tilsögn að góðum notum bæði þá og síðar. Þannig stundaði ég nú sjóróðra allt til þess tíma þegar ég 18 ára hóf nám í smiðjunni „Sindra“ á Patreksfirði. Þetta var eina smiðjan á stóru svæði og verkefnin því margvísleg — þjón- usta við frystihúsið og togarana og önnur skip, bifreiðaviðgerðir, pípu- lagnir og allt sem nöfnum tjáir að nefna. Fyrir kom að smíðaðar voru líkkistur þegar smíða þurfti málm- kistur utan um lík manna af erlend- um skipum sem senda skyldi úr landi... Að smiðjutímanum liðnum lá leiðin svo að sjálfsögðu í Vélskól- ann og var það árið 1955. Og á vél- skólaárunum hófust kynni mín af togaramennsku, því á milli bekkja sótti ég sjó á Patreksfjarðartogurun- um, einkum Ólafi Jóhannessyni.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.