Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Side 32

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Side 32
32 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ höfn klukkutímum saman og beðið meðan menn smöluðu saman ein- hverjum náungum af strætunum og flyttu þá meira og minna drukkna á báti út í skipið. Þá man ég að haustið 1959 þegar konan mín var lögst inn á fæðingar- deildina og við væntum eins af börn- unum okkar vildi ég fá frí — en það var ekki nokkur lifandi leið. Ég rétt fékk að skreppa og kveðja hana og svo var rokið um borð. Það fór svo að allan næsta sólarhringinn komst ég ekki upp úr vélarrúminu, því ekki mátti fara frá vélinni, og var það loks næsta dag að ég gat skroppið upp og hringt og fregnað hvernig henni hefði reitt af. Þetta þætti hart nú, þegar menn geta hlaupið um allt skip hvenær sem er.“ Breytt tækni og aðbúnaður — en meiri vinna „En 1966 afréð ég að fara í land og réði mig sem vélstjóra hjá Mjólkár- virkjun í þrjú og hálft ár. En ein- angrun staðarins olli því að dvölin þar gat ekki orðið lengri, því börnin voru tekin að stálpast og þurftu að sinna skólaskyldu sinni. Þetta voru erfiðleikaár, atvinnuleysi og fólks- flótti, og varð það til þess að ég réði mig enn á ný hjá Bæjarútgerðinni og nú sem yfirvélstjóri á Þormóði Goða. Á honum var ég til ársins 1971, en þá fór ég um borð í Bjarna Benedikts- son sem kom nýr til landsins það ár. Á Bjarna var ég síðan óslitið til ársins 1980. Pá var ég settur til að hafa eftir- lit með byggingu hins nýja skuttog- ara BÚR, Ottós N. Þorlákssonar, meðan á smíði hans í Stálvík stóð. Mér bauðst skjótt staða fyrsta vél- stjóra á hinu nýja skipi og þáði ég hana vitaskuld fúslega, en það var árið 1981. Og þegar um borð í Ottó N. Þorláksson kom varð mér strax ljóst að allir hinir gömlu starfshættir um borð í togurum höfðu breyst frá því sem var. En ég held samt að vinn- an sé meiri á þessum nýju skipum en var á þeim gömlu, vegna þess hve áhafnir eru nú orðnar fámennar. Nú erum við til dæmis aðeins tveir vél- stjórar í fimmtán manna áhöfn á Ottó N. Þorlákssyni, sem er einn þessara minni skuttogara, 485 tonn. En á móti kemur mikil hagræðing og bættur aðbúnaður. Hvað okkur vél- stjórana snertir þá er það einkum hin aukna rafvæðing sem er áberandi og vinnan er satt að segja orðin meiri utan vélarrúmsins en innan þess. Því valda færibönd á millidekki, að- gerðavélar og miklu fleiri spil. Á gömlu togurunum var til dæmis aðeins eitt spil, en á Ottó N. Þorláks- syni eru átta spil. Þetta segir sína sögu. Öllu þessu þarf að líta eftir og ef eitthvað bilar verður að koma því í gang aftur. Þannig er gamli lærdóm- urinn frá smiðjuárunum enn í fullu gildi, þótt ekki sé því að neita að maður á erfitt með að fylgjast með öllu því sem gerist á sviði rafbúnað- arins. Það er satt að segja ekki orðið nema fyrir raftæknifræðinga að fást við — a.m.k. margt af því.“ Lít fremur sáttur um öxl „Ég á ekki von á að ég haldi lengi áfram á sjónum úr þessu og hefðu þeir ekki breytt þessum reglum um lífeyrissjóðinn væri ég líklega þegar kominn í land. Ég má að vísu hætta sextugur, en geri ég það verða dregin af mér 5% til 65 ára aldurs. Það er 25% frádráttur og þá þykir mér að lítið verði eftir. Ég verð 63 ára nú í vor og hef hugsað mér að þrauka til 65 ára aldurs ef heilsan leyfir. Ég er fremur sáttur með lífsstarf mitt þegar ég horfi yfir farinn veg — en víst hef ég átt betri ævi á sjónum þessi ár sem ég hef verið á Ottó N. Þorlákssyni. Fríin eru orðin svo miklu betri, því þótt við séum jafnan tveir vélstjórar um borð í skipinu þá erum við í raun- inni þrír, en sá þriðji er alltaf í fríi þriðja hvern túr. Það er mikil og góð breyting.“ AM ISLANDSBANKI - / takt við nýja tíma
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.